Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1987, Blaðsíða 41
40
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1987.
fþróttir
Rothögg í
Digranesi
- ívar Webster sló Bjöm Hjörlerfsson í
gólfið er Blikar unnu Hauka, 54-52
Ivar Webster, körfuboltamaöurinn
góðkunni, var heldur betur í sviös-
ljósinu í Digranesi um helgina í leik
Hauka og Breiðabliks. Þegar liðin
gengu til búningsklefa í hálfleik kom
til handalögmála milli Websters og
Björns Hjörleifssonar, Breiðabliki,
sem enduðu með því að Webster sló
Björn rothögg. Björn lá síðan eftir
alblóðugur í gólfmu meðan Hauka-
menn róuðu Webster niður og sendu
hann í kalda sturtu. Webster var
óánægður með gang mála í fyrri hálf-
leik og fór það í skapið á honum með
áðurtöldum afleiðingum.
Þessi hnefaleikasýning var það
eina eftirminnilega sem gerðist í af-
spyrnulélegum leik, eins og sést best
á skorinu í leiknum ,54-52. Blikar
fógnuðu mjög í leikslok enda fyrsti
sigur liðsins í úrvalsdeildinni stað-
reynd.
Það sýnir kannski best áhugann á
körfuboltanum að einn einasti áhorf-
andi fylgdist með leiknum frá áhorf-
endapöllunum.
Stig Blika: Kristján 15, Sigurður 12,
Kristinn 12, Guðbrandur 10 og Ólafur
5.
Stig Hauka: ívar Á. 16, Pálmar 16,
Skarphéðinn 6, Henning 5, Webster
4 og Tryggvi 2. -RR
Fimm spjöld á
loft í Charieroi
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Fjórða tap Anderlecht varð að
staðreynd um helgina er liðið lá
fyrir Charleroi á útivelli, 1-0.
Eríiðleikarnir halda því áfram
hjá félaginu og þrátt fyrir góðan
leik máttu meistararnir sætta sig
viö enn eitt tap.
Eina mark leiksins kom frá hin-
um 32 ára gamla Berto Bosh,
skoraði hann með bananaskoti
af um 40 metra færi, glæsilegt
mark og óverjandi fyrir mark-
vörð Anderlecht.
Eftir mark hans sótti And-
erlecht ákaft en Niliz vantaði í
sóknina til aö reka smiðshöggiö
á aðgerðir liðsins.
Arnór var með betri mönnum
á vellinum, átti meðal annars tvö
dauðafæri, í fyrra skiptið varði
markvörður Charleroi skalla
hans en í það síðara glæsilegt
skot. Arnór tók þá boltann á lofti
inni í miðjum teig og þrumaði á
mitt markið.
Fimm gul-spjöld fóru á loft í
Charleroi og fékk Arnór að líta
eitt þeirra.
Gummi Torfa fór af velli
Guðmundur Torfason náði ekki
að leika allan fyrri hálfleikinn í
viðureign Liege og Winterslag
sem endaði með 0-0 jafntefli á
sunnudag. Mátti hann yfirgefa
völlinn vegna meiðsla í baki.
Nýr þjálfari er nú tekinn við
liði Winterslag, heitir hann Ernst
Kúnnecke og er íslenskum knatt-
spymumönnum að góðu kunnur.
Stýrði bæði Lárusi Guðmunds-
syni og Ragnari Margeirssyni er
þeir léku í búningi Waterschei í
Belgíu. Hann virðist vera á réttri
leið með liðið því það náði nú
loksins ágætum úrslitum' eftir
afleitt gengi í síðustu leikjum.
Baráttan var oft mikil í leik ÍR og Grindavíkur á laugardag. ÍR-ingar unnu frækinn sigur, sinn fyrsta
í urvalsdeildinni í talsverðan tíma. Breiðhyltingar höfðu tapað fjórum leikjum í röð en réttu loks úr kútnum.
DV-mynd Brynjar Gauti
Danskt
jólahlaðborð
aðeins 750 kr. á mann
27 heitir og kaldir réttir
Opið virka daga frá kl. 12-14.30
föstudag-laugardag 12-20
Þorláksmessu 12-22
Veitingahúsið
UXINN
Glæsibæ
Breiðhyttingar
rétta úr kútnum
- ÍR vann Grindavík, 60-52
„Við æfðum vel fyrir þennan leik
og það bar árangur,“ sagöi Einar
Bollason, þjálfari IR, í spjalli við DV.
Lið hans lagði Grindvíkinga í úrvals-
deildinni á laugardag í baráttuleik,
60-52.
„Þetta var afar dýrmætur sigur
fyrir okkur. Það er ljóst að ef við
höldum haus og gerum okkur grein
fyrir eigin stöðu getum við velgt
hvaða liði sem er undir uggum. Við
gerðum okkur grein fyrir því strax í
upphafi mótsins að það yröi erfitt að
festa liðið í sessi í deildinni, þessi
sigur er því á margan hátt móralskur
stuðningur við leikmenn, sigur fyrir
liðið,“ sagöi Einar.
Leikur liðanna á laugardag var
annars tvísýnn og spennandi frá
upphafi til enda. Var barátta talsverð
í leikmönnum - sérlega þó í ÍR-ingum
sem gáfu hvergi eftir. Höfðu þeir
enda betur og tryggðu sér sigurinn á
lokamínútunum, voru ákveðnari og
fastari fyrir þegar mest reið á.
Stór hópur stuðningsmanna fylgdi
hinu efnilega og skemmtilega liði
Grindvíkinga í höfuðstaöinn og
studdi vel við bakið á sínum mönn-
um. Setti fólkið skemmtilegan svip á
leikinn, var stemmning énda óvenju-
lega mikil í íþróttahúsi Seljaskólans.
• Stigahæstur í liði gestanna var
Rúnar Arnarsson með 12 stig en
Guðmundur Bragason kom á hæla
hans með 10.
• Stigahæstur í liöi heimamanna
var hins vegar Karl Guðlaugsson
með 21 stig en Jón Örn Guðmunds-
son kom honum næstur með 14.
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1987.
41
Iþróttir
Einar Vilhjálms-
son var fyrir helgina kjörinn fijáls-
íþróttamaður ársins af stjórn FRÍ.
Kemur sá úrskurður fæstum á óvart
enda hefúr Éiriar verið fremstur íslenskra
frjálsíþróttamanna um allangt skeiö.
Síðastliðiö tímabil var á margan hátt
ágætt hjá Einari og reis það hæst á lands-
mótinu á Húsavík. Setti Einar þar glæsi-
legt Norðurlandamet í íþrótt sinni,
spjótkasti, kastaðí þá 82,96 metra.
Iþróttafrétta-
maðurinn góð-
kunni, Víðir Sigurðsson, hefur
sent tvær bækur úr ritsmiöju sinni, ís-
lenska knattspyrnu 1987 og Arnór Guð-
johnsen.
íslensk knattspyrna 1987, sem er 160 síð-
ur, er árbók íþróttarinnar í myndum og
máli. Við annálinn sjálfan er síðan fléttað
viðtölum við þekkta knattspyrnumenn,
meðal annars þá Arnór Guðjohnsen,
Rúnar Kristinsson og Pétur Ormslev.
Bókin um Arnór, sem er 142 síður, segir
hins vegar frá ferli Amórs Guðjohnsen
sem knattspyrnumanns öðru fremur. Er
verkið skreytt fjölmörgum myndum sem
varpa enn frekar ljósi á daglegt lif hans
og baráttuna á knattspymuvellinum.
Skjaldborg gefur bækur Víðis út.
Pétur Ormslev,
Fram, var fyrir helgina kosinn knatt-
spyrnumaður ársins af stjórn KSÍ.
Pétur lék enda vel á síðasta sumri og
var í kjölfarið kjörinn knattspyrnumaður
ársins af stallbræðram sínum í fyrstu
deildinni.
Pétur varð markahæstur í fyrstu deild
á síðasta tímabili, geröi tólf mörk og hlaut
því gullskó Adidas.
Kristián Sig-
munasson, hinn frábæri
markvörður Víkinga og íslenska lands-
liðsins, var kjörinn handknattleiksmaður
ársins af stjórn HSÍ fyrir helgina.
Kjör þetta kemur í kjölfar annars svip-
aðs, en Kristján var valinn leikmaður
íslandsmótsins við lok síðasta tímabils.
Kom sú kosning fæstum á óvart enda hef-
ur Kristján verið í allra fremstu röö
síöustu árin.
1 V-Þýska-
halda með lið sín í sólina
strax eftir áramótin enda er þá vetrarleyfi
í Bundesligunni.
Ásgeir Sigumnsson og félagar í Stutt-
gart, sem nú eru í fríi frá knattspyrnu,
haldá þá til Costa Rica. Á að æfa undir
sólinni af miklu kappi til að koma sem
sterkastir til leiks cr keppni liefst að nýju.
Atli Eðvaldsson
og stallbræður hans í Bayer Uerdingen
munu dvelja í Suöur-Frakklandi við æf-
ingar fyrir komandi átök. Allt er hins
vegar óvíst hvað lið Lámsar Guðmunds-
sonar, Kaiserslautern, varðar. Hefur enda
allt verið í hershöndum hjá félaginu það
sem af er vetri. -JÖG
Ajólunum veljum við gjaman það sem
okkur þykir best á jólaborðið og
auðvitað helst sem þjóðlegast. íslenska
lambakjötið er hráefni sem á fáa sína líka,
svo meyrt og safaríkt ef það er meðhöndlað
rétt. Spennandi lambastórsteik er tromp á
jólaborðið. Hér er uppskrift af einni
ómótstæðilegri.
Hilmar B. Jónsson valdi þessa gimilegu
jólasteik handa okkur með óskum um
gleðilega hátíð.
Látið lambalærið þiðna í kæliskáp í 3-5
daga, helst í loftþéttum umbúðum.
Skerið mjaðmabeinið frá og hreinsið
leggbeinið. Skerið einnig mest af fitunni frá
ef lærið er of feitt. Stingið um 2 sm djúp göt í
íærið með 3-4 sm millibili. Geymið beinin og
kjötið utan af leggbeininu.
Skerið sellerístilkana og blaðlaukinn í
bita. Hitið olíuna á pönnu, setjið grænmetið
á pönnuna og kraumið þar til það fer aðeins
að taka lit. Bætið þá pipamum,
rósmarínkryddinu, sojasósunni,
sítrónusafanum og líkjömum útí og látið
-þegarþu
óvilí há
tíðannat*
Lambalæri
með Kahlua-sósu
Fyrir6-7.
1 meðalstórtlmbalæri
2 msk matarolía
3 sellerístilkar
Vi blaðlaukur (púrrulaukur)
1 tskgræneðabvítpiparkom
1 tskrósmarm (sléttfull)
2 dl kahlua-kafíilíkjör
2mskKikkomansojasósa
satiúr 1 sítrónu
salt
2dlljóstkjötsoð
dökkursósujafnarí
sjóða í 3-5 mín. Kæbð blönduna og hellið
henni síðan í sterkan plastpoka. Setjið
lambalærið í pokann og bindið vandlega
fyrir. Látið sem minnst loft vera í pokanum.
Takið utan um legginn á lærmu og sláið
pokanum með lærinu í nokkmm sinnum
þétt niður á borð. Snúið lærinu í hvert sinn.
Þetta er gert til þess að fá safann í pokanum
vel inn í holumar á kjötinu.
Geymið pokann með lærinu á köldum
stað í um einn sólarhring og snúið honum
öðm hvom og nuddið safanum vel inn í
lærið um leið.
Hitíðofninní220°C.
Takið lærið úr pokanum og skafið
kryddblönduna utan af með bakkanum á
borðhníf. Geymið blönduna. Kryddið lærið
með salti (og meiri pipar ef þurfa þykir).
Höggvið mjaðmabeinið í 4 eða 5 bita og
skerið hækilkjötið í bita. Leggið þetta í
hæfilega stóra steikarskál eða skúffu og
leggið lambalærið ofan á. Steikið kjötið í
ofninum þar til það er búið að fá á sig
faUegan bt. Minnkið þá hitann á ofninum
niður í 180°C. Eftir um einnar klst. steikingu
er kryddleginum sem eftir var ásamt
kjötsoðinu hellt yfir kjötið og það síðan
steikt í um 15-30 mín. í viðbót.
Færið lærið yfir á fatið sem þið ætlið að
bera það fram á og geymið í heitum og
hálfopnum ofninum á meðan sósan er löguð.
Sigtið soðið úr steikarskábnni yfir í pott
og bragðbætið með salti og pipar eftir
smekk. Látið suðuna koma upp á soðinu og
þykkið það hæfilega með sósujafnara.
Berið kjötið fram með nýju, soðnu
grænmeti og einhverju ljúffengu til þess að
skola því niður.
MARKAÐSNEFND
<
SPENNANDI