Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.1987, Blaðsíða 22
22
MÁNUDAGUR 14. DESEMBER 1987.
Erlend myndsjá
Bilið brúað
meðfylgjandi myndum er ekki ljóst
hvort þeim Sergei Akhromeyev,
yfirmanni sovéska hersins, og kol-
lega hans frá Bandaríkjunum,
William Crowe, fórst það jafnvel
úr hendi. Að minnsta kosti virðast
þeir þurfa að hafa fyrir því.
Að loknum leiðtogafundinum
hélt Gorbatsjov langan fund með
fréttamönnum og á hann hlýddu
meðal annarra Sovétmennimir
Anatoly Dobrynin og Edvard Sé-
vardnadze. Heymartól vom þarfa-
þing fyrir marga en fyrmefndir
félagar fundu upp nýjar aðferðir til
að nota þau. Reyndar má ganga út
frá því sem vísu að þeir hafi ekki
þurft að hlýða á túlk í gegnum tólin.
Símamyndir Reuter
Það voru fleiri en leiðtogarnir Re-
agan og Gorbatsjov sem reyndu að
brúa bihð miUi stórveldanna á
meðan á fundi þeirra stóð í Was-
hington. Þeim félögunum tókst
reyndar þaö vel upp að þeir sáu
ástæðu til að klappa hvor fyrir öðr-
um að fundi loknum en á einni af
Mælst til mannréttinda
Mannréttindadags Sameinuöu
þjóðanna, þann 10. desember, var
víða minnst. í Moskvu virtust yfir-
völd ekki almennilega vita hvemig
bregðast skyldi við mótmælum
þremenninga nokkurra sem mót-
mæltu fyrir utan Lenin-bókasafniö
þar í borg. Kröfðust þremenning-
arnir frelsis til þess að fá að yfirgefa
Sovétríkin. Eftir hálftímaumþótt-
im lögreglunnar voru mótmælend-
umir handteknir.
Heldur voru mótmælendur fleiri
í Tékkóslóvakíu, eða rúmlega eitt
þúsund. Höfðu þeir bann sljóm-
valda við opinberum mótmælaað-
gerðum að engu og minntust
mannréttindadagsins með friösam-
legum útifundi og fjöldagöngu.
í Póflandi hlekkjuðu sex stjómar-
andstæðingar sig viö grindverk í
miöborg Varsjár og kröfðust þeir
lausnar fanga sem fangelsaðir
hefðu verið vegna stjómmálaskoð-
ana.
Útlagar frá Tíbet, búsettir í Nýju-
Delhi á Indiandi, lögðu upp í göngu
að indverska þinginu á mannrétt-
indadaginn. Vildu þeir vekja
athygli á því misrétti sem þeir segja
kínversk yfirvöld beita Tífcetbúa.
Til átöka kom milli mótmælenda
og lögreglumanna sem reyndu að
stöðva göngumenn.
Ókyrrð var meðal ungra Palest-
ínumanna á Gazasvæðinu á
mannréttindadaginn og kastaði
ungdómurinn gijóti að lögreglu-
mönnum sem svömðu með tára-
gasi. Einn imglinganna var skotinn
til bana.
Friðsamlegra var í Lundúnum á
mannréttindadaginn. Trevor
Huddleston erkibiskup, formaður
breskra andstæðinga kynþáttaað-
skilnaðarstefnunnar, afhenti
öryggisverði við bústað forsætis-
ráðherrans, Margaretar Thatcher,
skjal þar sem vakin var athygli á
aöstæðum fanga í Suður-Afríku og
Namibíu.
Og í Suður-Afríku sakaði Des-
mond Tutu erkibiskup suður-afrísk
stjómvöld um aö hvetja blökku-
menn til mótmæla með ofbeldisað-
gerðum með því aö banna
fjöldagöngu. Símamyndir Reuter
' SBHK
«** Hisesui
'Utiea****