Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 1988.
3
i>v Viðtalið
--------------------
Stunda mikið
hesta-
mennsku
iv. . .u~ i i
Nafn: Guðný Höskuldsdóttir
Aldur: 34
Staða: Hæstaróttarlögmaður
Guðný Höskuldsdóttir er önn-
ur tveggja kvenna sem fengu rétt-
indi sem hæstaréttarlögmenn í
síöustu viku. Áður höfðu aðeins
íjórar konur hlotiö slík réttindi
hér á íslandi. Guöný segist ekki
hafa neina skýringu á því hvers
vegna fleiri konur hafi ekki feng-
iö þessi réttindi. En hún telur að
kvenlögfræðingar séu fleiri sem
hafi snúið sér aö einhverju öðru
en beinni lögmennsku.
Elst fimm systkina
Guðný er fædd 16. nóvember
1953 og uppalin í Reykjavík Hún
er elst finrni systkina. Foreldrar
hennar eru Elín Gísladóttir,
starfsmaður á Borgarspítalanum,
og Höskuldur Jónsson, verka-
maður. Guöný er ógift og barn-
laus.
Guðný hefur stúdentspróf frá
Verslunarskóla íslands en hún
lauk lögfræðiprófi frá Háskóla-
íslands 1981. Hún tók svokallaðan
kúrsus 1 lögfræðinni hjá sýslu-
mannínum á ísafirði en strax að
námi loknu hóf hún störf á lög-
mannsstofu Arnmundar Back-
man í Reykjavík og hefur starfað
þar síðan.
Á bak á hvejum degi
„Ég stunda hestamennskumjög
mikið. Ég er með tvö hross auk
þess sem ég er með fleiri í minni
umsjá. Þetta er tímafrekt tóm-
stundagaman og held ég að það
þurfi mikla hestadellu til að halda
þetta út. Annan hvorn dág þarf
ég að gefa hestunum og hirða þá,
en við erum tvær sem skiptum
þessu á milli okkar. En ég fer oft-
ast á bak á hveijum degi.
Siðastliöin þtjú ár er ég búin
að vera með hestana í Reykjavík
á vetuma en þeir eru í Skafta-
fellssýslunni á sumrin hjá afa
minum og móðurbróður. Þar
stundaði ég hestamennskuna áö-
ur en ég hef verið mikið fýrir
austan.
Hestamennskan er raunar mitt
eina áhugamál en mér finnst ekki
hægt aö tala um áhugamál nema
að viökomandi viðfangsefhi taki
hug manns allan. Annars hef ég
til dæmis ferðast nokkuö bæði
innanlands og utan þótt ég vfiji
ekki segja aö það sé mitt áhuga-
mál nema akkúrat þegar á því
stendur því þá hefúr maður ekki
um neitt annað að hugsa.“
Fréttir
Úthlutunarreglum LÍN breytt:
Kristaltært að nú borgar sig
fyrir námsmenn að vinna
segir Sigurbjöm Magnússon, formaður LIN
Stjóm Lánasjóðs íslenskra
námsmanna hefur endurskoðað
úthlutunarreglur sjóösins fyrir
skólaárið 1988-1989 og hefur
menntamálaráðherra staðfest
breytingamar.
Meginbreytingin er að 35% af
tekjum umfram framfærslu í sum-
arleyfi koma til lækkunar á hám-
arksláni í stað 50% áður. En eins
og áður er nú gert ráð fyrir að
námsmaður sé í leyfi í 3 mánuði á
ári og afli tekna á þeim tíma sér til
framfærslu.
„Við höfum á undanfórnum
árum verið að lækka þetta hlutfall
jafnt og þétt,“ sagði Sigurbjörn
Magnússon, formaður LÍN, í sam-
tali við DV. „Á árunum 1980 og
1981 var þetta hlutfall 95% og hefur
lækkað stig af stigi síöan. Við álít-
um að þetta valdi lánasjóðnum
ekki mikilli tekjuskerðingu. En
þetta er hagstæöara fyrir náms-
mennina og hefur haft þau áhrif
að þeir hafa aukið tekjur sínar. Nú
er orðið kristaltært að það borgar
sig fyrir námsmenn aö vinna.“
Einnig var breytt reglum um
námsmenn sem koma af vinnu-
markaðnum og hafa því ekki notið
aðstoðar sjóðsins. Þeir teljast hafa
verið í leyfi 3 síðustu mánuði áður
en nám hefst á skólárinu. Viðkom-
andi námsmaður getur fengið tekj-
ur, sem staðfest er að hann hafi
aílað á tímabilinu 1. janúar og þar
til leyfi hefst, felldar niður.
-JBj