Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.1988, Side 20
20
ÞRIÐJUDAGUR 24. MAí' 1988.
Erlend myndsjá
Geisl-
andi
af
ást?
Það verður ekki annað sagt en svo
virðist sem ástin geisli af þessu pari,
sem situr þarna á bekk í kvöld-
húminu og hefur það huggulegt.
Ekki er máliö þó alveg svo einfalt,
því geislarnir ganga ekki út frá höfði
konunnar, heldur koma þeir frá app-
arati einu miklu, sem notað er til
leysigeislasýninga.
Tækið er um borð í sýningaskipi á
ánni í miðri Frankfurtborg í Vestur-
Þýskalandi. Fyrir helgina héldu
skipveijar prufusýningu á herleg-
heitunum úr gripnum og var þessi
mynd tekin við það tækifæri.
Ekki svo að skilja að tilfmningar
parsins á bekknum geti ekki verið
jafnheitar fyrir því. Þau eru að
minnsta kosti ekki fjarlæg hvort
öðru.
Ekki „Star Wars“
Nei, þessar verur eru ekki utan úr geimnum. Þær eru ekki heldur að
keppast við að líta út eins og vondi kallinn í Star Wars, hann Darth Vad-
er. Þetta eru ósköp venjulegar íranskar konur, sem eru að fá tilsögn í
notkun á gasgrímum og öörum varnartólum sem þörf þykir á í stríðinu
við íraki.
írakir hafa þótt gjarnir á að beita efnavopnum í striði þessu og veitir
konunum því væntanlega ekki af aö kunna með slík tæki aö fara.
Flugræningjar
yfirheyrðir
Yfirvöld á Taiwan eru nú að yfir-
heyra flugræningjana sem fyrir
nokkru rændu kínverskri farþega-
flugvél og sneru henni til Taiwan.
Vandræöaástand mun vera meðal
stjórnvalda vegna þeirra, þar sem
þau vilja hvorki refsa þeim né fyrta
kínversk stjómvöld.
Vafalítiö verður athyglisvert að sjá
hvaða leið þeir finna til að fullnægja
báðum skilyröum.
Nyjar arasir
íranir hófu í síðustu viku að nýju árásir sínar á olíuflutningaskip á
Persaflóa, eftir nokkurt hlé.
Réðust þeir í vikunni á að minnsta kosti tvö olíuflutningaskip, annað
japanskt en hitt norskt. Myndin til hægri sýnir kúlugat á yfirbyggingu
norska skipsins, þar sem skot lenti alla leið inn í íbúðir áhafnarinnar.
Stórveldin eru enn öll með herskip á flóanum, enda hefur ástandiö þar
ekkert batnað. Hér að neðan má sjá sovéskan flotaliöa á vakt um borð í
einu af þeirra skipum á svæðinu.
s, ►
'v ■*
v*v
Hverjir eru þeir
þessir Kínverjar?
Hljótt hefur verið um Tíbet í heimsfréttunum undanfarið, en Tibetbúar
sjálfir hafa þó ekki gleymt baráttu sinni við stjómvöld í Peking. Þeir
mótmæla enn hástöfum meðferðinni á löndum sínum og krefjast þess aö
þeir sem hafa verið handteknir fyrir stjórnmálaskoðanir sínar verði tafar-
laust látnir lausir. Þessar konur mótmæltu við kínverska sendiráöið í
Delhi nú fyrir helgina og þótti þeim greinilega þörf á að spyrja hveijir
þessir Kínverjar væru eiginlega.
Kondórtímgun í dýragarði í Mexíkó
Fyrir nokkru skýrðum við frá því að tekist hefði að koma unga af ætt kalífomíukondórs úr eggi í dýragarði í Los
Angeles og þótti mikið til þess koma. Kaliforníukondórinn er sjaldgæfur og hefur ekki fyrr tekist svo vel til um
útungun eggja hans.
Andeskondórinn er nokkm auðveldari og hefur nokkrum sinnum tekist að koma ungum á legg í dýragörðum.
Þessi er hinn nýjasti, í Chapultepec-dýragarðinum í Mexíkóborg.