Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Síða 18
18
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
Erlendbóksjá
Metsölukiljur
Bretland:
Kiljur ársins
Bretland
Skáldsögur:
1. Dick Francís;
Decider.
2. Terry Pratchett;
Meo at Arntts.
3. Peter Heeg:
Miss Smilla's Feeling for
Snow.
4. Catherine Cookson:
The Qolden Straw.
5. Stephen King:
Nightmares and Dream-
scapes.
6. Gerald Seymour:
The Fighting Man.
7. Charles Dickens:
Mártin Chuzzlewit.
8. lain Banks:
Complicity.
9. Roddy Doyle:
Paddy Clarke Ha Ha Ha.
10. Margaret Atwood:
The Robber Bride.
Rit almenns eðlis:
1. Angus Deayton:
Have I Got News for You.
2. Andy McNab:
BravoTwo Zero.
3. Jung Chang:
Wild Swans.
4. Gary Larson:
The Curse of Madam.
5. W.H. Auden:
Tell Me the Truth about Love.
6. J. Cleese & R. Skynner:
Life and how to Survive It.
7. Bill Watterson:
Homicidal Psycho-Jungle Cat.
8. Vlz Top Tlps.
9. Carl Giles:
Giles Cartoons 1995.
10. Barry Fantoni:
Colemanballs 7.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Jorn Riel:
Haldurs ballader-og
andre skroner.
2. Margaret Atwood;
Katteoje.
3. Jung Chang:
Vitde svaner.
4. Peter Hoeg:
Froken Smillas
fornemmelse for sne.
5. Arturo Perez-Reverte;
Det flamske maleri.
6. Flemming Jarlskov:
Skjult kamera.
7. Herbjorg Wassmo:
Lykkens son.
(Byggt á Politiken Sondag)
Þaö er við hæíl nú um áramótin
að líta til baka á útgáfu ársins sem
er að líða. Ensk blöð hafa til siðs um
þetta leyti að velja úr öllum þeim
gífurlega fjölda pappírskilja, sem út
koma á hverju ári, nokkrar sem
þykja standa upp úr. Að mati bóka-
blaðs The Sunday Times í Bretlandi
eru eftirfarandi pappírskiljur í hópi
þeirra bestu:
The Robber Bride eftir Margaret
Atwood um þrjár vinkonur og þá
flóröu sem hefur ógnvekjandi áhrif
á líf þeirra.
Fire With Fire eftir Naomi Wolf:
hressilegt og skynsamlegt innlegg í
kynjabaráttuna.
The Blue Afternoon eftir Wilham
Boyd: skáldsaga sem gerist í Manila
og fjallar m.a. um rannsókn á dauða
tveggja bandarískra hermanna.
The Kenneth Williams Diaries -
dagbækur hins þekkta leikara; ein-
kennast af sjálfsdýrkun og beittum
skeytum að samferðamönnum.
City of Djinns: A Year in Delhi eftir
William Dalrymple. Lýsir eins og
nafniö gefur til kynna ársdvöl í hinni
einu sönnu Delhi.
The Laurel and the Ivy eftir Robert
Kee. Kunnur sagnfræðingur lýsir lífi
írska þjóðemissinnans Charles
Stewart Parnell sem varö fórnar-
lamb ástarinnar á örlagastundu.
Landing on Clouds eftir Oliviu
Fane: ástarsaga sem hlaut svonefnd
Betty Trask-verölaun.
A Short Walk From Harrods -
framhald frábærrar sjálfsævisögu
leikarans Dirk Bogarde. Hér segir frá
sjúkdómi og dauða sambýlismanns
hans til fjörutíu ára.
Harry Houdini - ný ævisaga hans
er meðal bestu pappírskilja ársins
í Bretlandi.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
Leonardo - ævisaga snillingsins
mikla eftir Serge Bramly.
Birdsong eftir Sebastian Faulks:
metsölusaga um ungan Englending
sem kynnist vonlausri ást og hryll-
ingi fyrri heimsstyrjaldarinnar.
The Life and Many Deaths of Harry
Houdini eftir Ruth Brandon. Ævi-
saga mesta sjónhverfingamanns
allra tíma.
Samarkand - þessi frábæra skáld-
saga Amin Maalouf hefur sem mönd-
ul handrit hins stórmerka Rubaiyat
aHt frá miööldum til siglingar Tit-
anic.
Miss Smilla’s FeeHng for Snow eftir
Danann Peter Hoeg. Snjöll spennu-
saga um leyndarmál í grænlenska
snjónum.
The Road to San Giovanni hefur
að geyma sjálfsævisögulega þætti eft-
ir einn kunnasta rithöfund ítala, It-
alo Calvino.
Foxfire eftir Joyce Carol Oates seg-
ir frá hópi táningastúlkna í New
York á sjötta áratugnum.
Disclosure - hin umdeilda spennu-
saga Michael Crichtons um kynferð-
islega áreitni á vinnustaö.
The Ern Malley Affair eftir Michael
Howard fjaUar um frægt bókmennta-
plat í Ástralíu.
Masai Dreaming eftir Justin
Cartwright: saga um árekstur milli
tveggja ólíkra heima á tímum nas-
ista.
The Book of Guys eftir Garrison
KeiUor: sögur af strákum á miöjum
aldri.
Adrian Mole: The Wilderness Years
- framhald dagbóka hins unga og
ruglaða meðalmanns eftir einn
fyndnasta rithöfund Englendinga
um þessar mundir, Sue Townsend.
Life and How to Survive It er fynd-
in úttekt á vandamálum lífsins eftir
Robin Skynner og Monty Python-
snillinginn John Cleese.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Ken Follett:
A Dangerous Fortune.
2. Michael Crichton:
Disclosure.
3. Anne Rice:
Interview with the Vampire.
4. Anne Rice:
The Vampire Lestat.
5. Dean Koontz:
Mr. Murder.
6. E. Annie Proulx:
The Shipping News.
7. Robert James Walker:
Slow Waltz in Cedar Bend.
8. Jonathan Kellerman:
Bad Love.
9. Lawrence Sanders:
McNally's Caper.
10. Johanna Lindsey:
You Belong to Me.
11. Peter Hoeg:
Smílla's Sense of Snow.
12. Anne Rice:
The Queen of the Damned.
13. Elizabeth Lowell:
Forget Me Not.
14. Danielle Steel:
Vanished.
15. R. Marcinko 8i J. Weisman:
Rogue Warrior II: Red Cell.
Rit almenns eðlis:
1. B.J. Eadie 8. C. Taylor:
Embraced by the Light.
2. Delany, Delany 8c Hearth:
Having Qur Say.
3. Thomas Moore:
Care of the Soui.
4. Maya Angelou:
Wouldn't Take Nothing for
My Journey now.
5. Rush Limbaugh:
See, I Told You so.
6. Thomas Moore:
Soul Mates.
7. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
8. Joan Wester Anderson:
Where Angel's Walk.
9. Karen Armstroncj
A Hístory of God,
10. Tom Clancy:
Armored CAV.
11. M. Scott Peck:
Further along the Road Less
Traveled.
12. Erma Bombeck:
A Marriage Made in
Heaven...
13. Maya Angelou:
I Know why the Caged Bird Sings.
14. Kathleen Norris:
Dakota.
15. BaileyWhite:
Mama Makes up Her Mind.
(Byggt á New York Times Book Review)
Vísindi
Góöar fréttir fýrir eldri konur:
Berjist við beinþynn-
inguna með sprikli
Hressileg líkamsrækt getur komið í veg fyrir að konur beinbrotni vegna
beinþynningar þegar þær verða eldri.
Blóðsugur
hata bjór
Blóösugur geta veriö hin mesta
plága, eins og þeir ferðalángar
sem i þeim liafa ient vita manna
best, þegar þær leggjast á líkama
manns og taka til við iöju sína.
En bjálpin er kannski ekki langt
undan.
Norskir visindamenn skýrðu
frá því fyrir skömmu að blóðsug-
urnar þyldu ekki hvítlauk og
bjór. Hvitlaukurinn hreinlega
drepur þær en þær verða bara
fullar af bjórnum.
Blóðsugur eru aftur á móti yfir
sig hrifnar af sýrðum rjóma og
því ættu feröamenn að varast að
bera svoleiðis á húðina.
Ekkert að
tómu hreiðri
Ekkert er hæft í því að miðaldra
konur verði daprar og eínmana
þegar tórnin fijúga úr hreiðrinu
og skilja þær eftír einar heima.
Breski sálfræðingurinn Bernice
Andrews segír að flestar konur á
fimmtugsaldri noti nýíengið
frelsi til aö breyta lífi sínu til hins
betra.
Andrews fylgdi 102 konum,
flestum úr vorkamannastétt. eftir
í sjö ár og komst að því að flestar
urðu hamingjusamari þegar
Mrnin voru farin að heiman.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
FuUorðnar konur geta barist gegn
áhrifum beinþynningar með hressi-
legri líkamsrækt í 45 mínútur tvisvar
í viku og þar með dregið verulega
úr líkunum á því að brotna á mjöðm
eða annars staðar við fall, segir í nið-
urstöðum rannsóknar bandarískra
vísindamanna.
„Rannsóknin sýnir í fyrsta skipti
að ein tegund meðferðar geti orðið
til mikilla bóta í sambandi við hrygg-
brot og mjaðmabrot í eldri konum,“
segir Miriam Nelson, sem starfar við
Tufts háskólann í Bandaríkjunum.
„Þéttleiki beina er aðeins einn þátt-
urinn í þessum beinbrotum. Það
kann jafnvel að vera enn mikilvæg-
ara að auka vöðvastyrk kvennanna
og jafnvægi til þess að koma í veg
fyrir að þær detti. Mesta hættan á
beinbrotum í fullorðnu fólki er jú
vegna þess aö það dettur.“
Miriam Nelson og félagar hennar
greina frá rannsókn sinni, sem stóð
í heilt ár, í tímariti bandarísku
læknasamtakanna. Þrjátíu og níu
konur á aldrinum 50 til 70 ára tóku
þátt í rannsókninni.
Sumar kvennanna voru látnar
stunda líkamsrækt sem byggði með-
al annars á alls kyns teygjuæfingum.
Hinn hluti hópsins var beðinn um
að halda uppteknum hætti við líkam-
legt álag á meðan á tilrauninni stæði.
Vísindamennimir segja að kon-
umar sem tóku þátt í styrkingaræf-
ingunum hafi fengið aukinn vöðva-
og beinmassa, styrkur þeirra og jafn-
vægi hafi aukist og þær hafi verið
miklu áhugasamari um að reyna á
sig. Konurnar sem juku ekki líkams-
rækt sína töpuðu bæði vöðva- og
beinmassa, máttur þeirra og jafn-
vægi minnkuðu og þær voru ekki
jafn viljugar og hinar að leggja á sig
líkamlegt erfiði.
Beinþynning hrjáir helming allra
kvenna yfir fimmtugt og þegar konur
eru orðnar 65 ára era tvær af hverj-
um þremur með beinþynningu. Við
beinþynningu hverfur prótín úr
beinunum og veldur því að þau verða
stökk. Beinþynningin er mun al-
gengari meðal kvenna en karla og
herjar fremur á hvíta en svarta.
Samstarfshópur nokkurra hol-
lenskra fyrirtækja hefur kynnt
nýja aöferð til að auðkenna fólk,
eins konar rafræn fingrafór sem
gerð eru með aðstoð þrívíddar-
tækninnar. Vonast er til að þetta
nýja kerfi muni koma í veg fyrir
svindl af ýmsu tagi,
Þessi nýju rafrænu fingraför
verða fyrst í stað notuð á hol-
lenskum sjúkrahúsum til að auö-
kenna og skrá sjúklinga en notk-
unarmöguleikar þeirra eru fleiri.
Að sögn er útilokaö að beita föls-
unum með þessu kerfi og sérstök
tæki þarf til að lesa úr upplýsing-
unum.
lll.frum-
efnið er
fundið
Hópur þýskra vísindamanna
hefur verið iöinn við að finna ný
frumefm upp á síðkastið. Vís-
indamennirnir, sem starfa í
Ðarmstadt, fundu nýlega ,111.
framefnið, aðeins mánuði eftir að
þeir uppgötvuðu 110. frumefnið.
Nýjasta frumefnið er þyngra en
öll önnur frumefni og efnafræði-
lega er það skylt kopar, silfri og
guili.
„Viö höfum ekki enn gefið því
nafn,“ sagði talsmaður hópsins.
Hið sama gildir um 110. frumefn-
iö. Nýja efnið hefur atómþyngd-
ina 272 sem þýðir að það er 272
sinnum þyngra en vetni. Það eyð-
ist eftir fióra þúsundustu úr sek-
úndu.