Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Síða 24
24
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994
Hvemigverðurárið 1995 áíslandi?
Þjóðin stendur
á tímamótum
- segir Guðrún Hjörleifsdóttir sem hér spáir fyrir um nýtt ár
Guðrún Hjörleifsdóttir hefur getið sér gott orð sem spákona og miðill og hér reynir hún að spá
í þjóðfélagið árið 1995. DV-mynd GVA
„Áriö 1995 veröur gott ár í héildina
séð. Þó verða talsverð læti í febrúar
út af kjaramálum og kosningabarátt-
an mun snúast um kjaramál, fjöl-
skylduna og manngildið. Á þessu ári
stendur þjóðin á nokkurs konar
tímamótum því margt á eftir að
breytast í þjóðfélaginu og munum við
sérstaklega finna fyrir því árið 1996
en á því ári mun uppgangur verða á
ný hér á landi,“ segir Guðrún Hjör-
leifsdóttir, spákona og miðill í Hafn-
arfirði sem DV fékk til aö spá fyrir
•árinu 1995, lesendum til skemmtun-
ár.
„Mér finnst eins og komi upp þrjú
tímabil á árinu þar sem mjög mikið
verður að gerast; í febrúarlok, júlí
og september. Upp úr miðjum febrú-
ar verður mikil harka á vinnumark-
aðnum og mér sýnist að kjaramál
verði mjög í umræðunni fram yflr
kosningar í vor. Þetta verður gríðar-
lega erílð kjarabarátta og mikið um
verkfóll. í kosningunum sýnist mér
enginn stjórnmálaflokkur standa
upp úr og stjórnarmyndun mun
ganga illa. Kosningaúrslitin eiga eftir
að koma á óvart. Þrír flokkar munu
væntanlega skipa næstu stjórn og
það verða miklar breytingar á ráð-
herraliði, ein kona veröur þar. Nýr
utanríkisráðherra á eftir að koma
mjög á óvart. Mér sýnist að fólkið i
landinu muni kjósa um traust, ör-
yggi og siðferði. Sjálfstæðiflokkur-
inn, Framsókn og Kvennalistinn
koma sterkt upp.
Tvö leiðinleg mál munu koma upp
áður en kosningar hefjast í vor innan
tveggja stjórnmálaflokka, Sjálfstæð-
isflokksins og Framþknarflokksins.
Breytingar
í sjávarútvegi
í september sé ég miklar breyting-
ar á sjávarútvegsmálum þjóöarinn-
ar. Áherslumar verða settar á miklu
víöara svið og samskipti við Rúss-
land og Noreg verða mun meiri. Dan-
ir eiga eftir að koma inn í deilu ís-
lendinga og Norðmanna sem sátta-
semjarar. I september verða einnig
gerðir stórir samningar varöandi
orku eða orkuver. Á Norðurlandi
verður hafist handa við einhvers
konar stóriðju og á Suðurlandi sé ég
orkuver þar sem erlendir aðilar
koma að.
Landsbyggðin mun breytast á
næstu árum, fólk mun leita í auknum
mæh út á land. Hvert kjördæmi verð-
ur sérhæfðara en áður, landbúnaður
mun verða mestur í einu kjördæm-
inu meðan iðnaður verður allsráð-
andi í því næsta og sjávarútvegur i
því þriðja. Kjördæmin munu fá
meira vald og sveitarstjórnir þurfa
að taka meiri ábyrgö. Það veröur
mikil umræða í sambandi við þessi
mál á árinu.
Erlentfjármagn
Það verður stefnubreyting í vaxta-
málum í haust. Mér sýnist erlendur
banki koma hingað til lands og fjár-
magnskerfið opnast við útlönd. Þessi
erlendi banki er í miklum tengslum
viö Sviss og England og hann mun
hafa töluverð áhrif á íslenska banka-
kerfið.
Það kemur upp sprengja varðandi
skólamál. Mikil umræöa verður í
þjóðfélaginu fljótlega á árinu 1995 um
skólamál og þegar frá líöur verður
stokkað mjög mikið upp, sérstaklega
í framhaldsskólum. Það verður já-
kvætt.
Stjórnmálaflokkar geta ekki vænst
þess að eiga fast fylgi í framtíðinni;
unga fólkið, sem er að taka viö, fylg-
ir frekar stefnum og ábyrgð flokk-
anna og þaö þykir ekkert tiltökumál
aö skipta um flokka.
Það sem mér finnst líka merkilegt
er hversu mikil aukning verður í
smáiönaði hér á næstu árum. Lítil
fjölskyldufyrirtæki munu rísa upp
en minna verður um stórfyrirtæki.
Þó verður mikið rætt um nýtt olíu-
fyrirtæki og samkeppni þar verður
hörð.
Aukning ferðamanna
ísland mun eflast mjög sem ferða-
mannaland og við munum finna fyr-
ir verulegri aukningu ferðamanna á
þessu ári. Við þurfum aö byggja upp
ferðamannaþjónustuna til framtíðar
og gæta þess að gæðin verði ávallt
höfð að leiöarljósi.
Umhverfismál verða mjög í deigl-
unni árið 1995 og koma inn í kosn-
ingabaráttuna. Fólk mun fara að
huga meira að umhverfinu, meng-
un og þess háttar.
Það verður leitað til íslendinga er-
lendis frá og við munum flytja hug-
vitið út í ríkari mæli en áður og sér-
staklega til Afríku.
Þaö verður ýmislegt að gerast í
samgöngumálum þjóöarinnar. Flug-
félagiö Atlanta mun fá mjög stór
tækifæri og þá sérstaklega í Banda-
ríkjunum. Það verða hins vegar
miklar breytingar hjá Flugleiðum í
byrjun október. Mér sýnist að meiri
Díana prinsessa mun koma til
íslands á árinu.
Vigdís Finnbogadóttir mun
þurfa að koma inn í stjórnar-
myndun sem sáttasemjari.
samkeppni verði á þessum markaöi.
Kanada verður í umræðunni og
þangað eiga margir íslendingar eftir
að flytja á næstu árum. Tekið verður
upp öflugt samstarf íslendinga og
Kanadamanna á nokkrum sviðum,
t.d. varðandi menntun.
Breytingar
á fjölmiðlum
Samskipti íslenskra fjölmiðla við
erlenda verða meiri en áður hafa
þekkst. Ríkissjónvarpið mun taka