Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.1994, Page 50
62 FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1994 Afmæli Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri, Hagamel 27, Reykjavík, verð- ur fertug á morgun, gamlársdag. Starfsferill Ingibjörg Sólrún fæddist í Reykja- vík og ólst þar upp. Hún lauk stúd- entsprófi frá MT1974, BA-prófi í sagnfræði og bókmenntum frá HÍ 1979, var gestanemi í sagnfræði við Kaupmannahafnarháskóla 1979-81 og stundaði cand. mag. nám í sagn- fræði við HÍ1981-83. Ingibjörg Sólrún var borgarfull- trúi og húsmóðir 1982-88, ritstjóri timaritsins Veru 1988-90, stundaði ritstörf og blaðamennsku 1990-91, var alþingisk. fyrir Kvennahstann í Reykjavík 1991-94 og er borgarstjóri í Reykjavík frá sl. vori. Ingibjörg Sólrún var formaður Stúdentaráðs HÍ1977-78, borgarfull- trúi Kvennaframboðs í Reykjavík 1982-86 og Kvennalistans í Reykja- vík 1986-88, sat í skipulagsnefnd Reykjavíkurborgar 1982-86, sat í fé- lagsmálaráði Reykjavíkurborgar 1986-89 og í borgarráði 1987-88. Hún skrifaði bókina Þegar sálin fer á kreik, minningar Sigurveigar Guömundsdóttur kennara, útg. 1991. Þá hefur hún skrifað fjölda greina í blöð og tímarit um almenn stjórnmál og kvenréttindamálefni. Fjölskylda Eiginmaður Ingibjargar Sólrúnar er Hjörleifur Sveinbjörnsson, f. 11.12.1949, blaðamaður. Hanner sonur Sveinbjörns Einarssonar barnakennara og Huldu Hjörleifs- dóttur húsmóður. Synir Ingibjargar Sólrúnar og Hjörleifs eru Sveinbjörn, f. 26.1. 1983, ogHrafnkell, f. 10.11.1985. Systkin Ingibjargar Sólrúnar eru Kristinn Hilmar, f. 25.11.1945, vél- stjóri í Reykjavík; Halldóra Jenný, f. 14.11.1947, kennari í Reykjavík; Kjartan, f. 9.7.1950, rekstrarstjóri hjá Reykjavíkurborg; Óskar Sveinn, f. 26.9.1951, stýrimaður og verk- stjóri í Reykjavík. Foreldrar Ingibjargar Sólrúnar eru Gísh Gíslason, f. 30.11.1916, fyrrv. verslunarmaður í Reykjavík, og k.h., Ingibjörg Níelsdóttir, f. 23.2. 1918, húsmóður. Ætt Gísli er sonur Gísla þj óðhaga- smiðs á Haugi, bróður Jóns, móður- afa Helgu Sigurjónsdóttur, bæjar- fulltrúa í Kópavogi. Systir Gísla á Haugi var Guðrún, langamma Hrafnhildar Stefánsdóttur, lögfræð- ings VSÍ. Gísh var sonur Brynjólfs, hreppstjóra og dbrm. á Sóleyjar- bakka, Einarssonar, bróður Matthí- asar, langafa Haralds Matthíasson- ar menntaskólakennara og langa- langafa Alfreðs Flóka. Einar var sonur Gísla, b. á Sóleyjarbakka, Jónssonar, b. á Spóastöðum, Guð- mundssonar, ættföður Kópsvatns- ættarinnar, Þorsteinssonar. Móðir Gísla á Haugi var Valgerður, systir Bjarna, afa Guðmundar bhnda í Víði. Móðir Valgerðar var Gróa Gísladóttir, systir Gests á Hæli, langafa Steinþórs, fyrrv. alþm., föð- ur Gests skattstjóra. Móðir Gísla verslunarmanns var Kristín Jónsdóttir, b. í Austur- Meðalholtum í Flóa, Magnússonar, b. á Baugsstöðum, Hannessonar, af Bergsætt. Móðir Kristínar var Kristín, systir Guðnýjar, ömmu Sig- urjóns Olafssonar myndhöggvara og langömmu Erlings Gíslasonar leikara. Kristín var dóttir Hannesar, hreppstjóra í Kaldaðarnesi, bróður Þorkels í Mundakoti, langafa Guðna Jónssonar prófessors og Ragnars í Smára. Hannes var sonur Einars, spítalahaldara í Kaldaðarnesi, Hannessonar, ættföður Kaldaðar- nesættarinnar, Jónssonar. Ingibjörg er dóttir Níelsar, b. á Kóngsbakka, Sveinssonar, sjó- manns á Skagaströnd, Guömunds- sonar. Móðir Níelsar var María, systir Jóns á Másstöðum, föður Ingibjargar J. Ólafsson, aðalfram- kvæmdastjóra KFUM á Norður- löndum, og langafa Guðrúnar Hall- dórsdóttur, forstöðukonu Náms- flokka Reykjavíkur og alþk. Ingibjörg Sólrún Gisladóttir. Kvennalistans. María var dóttir Ól- afs, b. á Barkarstöðum, Pálssonar. Móðir Ingibjargar var Halldóra, systir Rósu, móður Hallgríms Guð- jónssonar, fyrrv. hreppstjóra í Hvammi i Vatnsdal, og móður Þór- hildar, konu Jóns ísbergs, fyrrv. sýslumanns. Halldóra var dóttir ívars, sjómanns frá Skeggjastöðum, Jóhannessonar, og Ingibjargar Kristmundsdóttur, systur Þorleifs, föður Þórarins, skálds á Skúfl, afa Þorleifs Kristmundssonar, prófasts á Kolfreyjustað, og langafa Þórðar Skúlasonar, framkvæmdastjóra Sambands íslenskra sveitarfélaga. Til hamingju með afmælið 31. desemher Merkurteigi 1, Akranesi. 90 ára 60 ára Ármann G. Jónsson, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavik. Guðrún M. Bjarnadóttir, Staðarbakka 10, Reykjavík. Birgir B. Pétursson, Egilsgötu 18, Reykjavík. 85ára Ásdís Kjartansdóttir, Bugðustöðum, Suðurdalahreppi. Sveinbjörg Árnadóttir, Hringbraut 50, Reykjavik. Vilborg Helgadóttir, Eystra-Súlunesi 2, Leirár- og Mela- hreppi. Kristín Sigutjónsdótth, Bakka, A-Landeyjahreppi. Húneraðheiman. Guðbjörg Benediktsdóttír, Keldulandi 15, Reykjavik. Auður Jónasdóttir, Eiði, Eyrarsveit. 80ára 50ára Sigurlaug Jónasdóttir, Kárastöðum, Rípurhreppi. Sveinn Karlsson, Vallholti 8, Vopnafirði. Jóna Gréta Magnúsdóttir, Ægisgötu 10, Stykkishólmi. 75 ára Halla Kjartansdóttir, Heinabergi 16, Þorlákshöfn. Ingibjörg Vermundsdóttir, Víðidalsá, Hólmavíkurhreppi. Jónas M. Guðmundsson, Strandgötu 81, Hafnarfirði. Þormóður Haukur Jónsson, Ugluhólum 12, Reykjavík. Hanneraðheíman. 70 ára 40 ára Ólafur Björnsson, Austurvegi 21, Vík í Mýrdal. Þórarinn Grímsson, Bogahhð 13, Reykjavík. Kristín Kristinsdóttir, Lena Kristbjörg Paulsen, Einarsnesi 78, Reykjavík. Kristján Guðlaugsson, Bollagörðum 1, Seltjarnarnesi. Ámý Guðmundsdóttir Árný Guðmundsdóttir, húsmóðir og saumakona, Heiðarbæ 3, Reykjavík, verður sjötug á morgun, gamlárs- dag. Fjölskylda Árný fæddist á Sæbóh á Ingjalds- sandi og ólst þar upp. Hún giftist 6.1.1950 Högna Jónssyni, f. 2.7.1921, skipstjóra. Hann er sonur Jóns Högnasonar skipstjóra og Stefaníu Vilborgar Grímsdóttur húsmóður sem bæðieru látin. Börn Árnýjar og Högna eru Vil- borg, f. 1.7.1950, d. 23.4.1951; Jón Vilberg, f. 10.6.1952, læknir í Reykjavík, kvæntur Þórunni E. Baldvinsdóttur kennara og eiga þau þrjú börn, Guðnýju Steinunni, f. 17.11.1974, en hennar dóttir er Val- dís Birta Árnardóttir, f. 3.8.1993, Högna Baldvin, f. 12.10.1979, og Þor- stein Baldvin, f. 7.1.1993; Gunnar, f. 18.12.1957, vélfræðingur í Reykja- vík; Sveinbjörn, f. 26.5.1960, við- skiptafræðingur í Reykjavík en unnusta hans er Sigríður Jónsdóttir húsmóðir og á hún tvö börn, írisi ogReyniViðar. SystkiniÁrnýjar: Halldóra, f. 11.5. 1916, d. 28.4.1990, húsfreyja á Ár- skógssandi; Sigurvin, f. 24.12.1917, lengst af bóndi á Ingjaldssandi; Her- dís, f. 3.7.1920, húsmóðir í Kópa- vogi; Kristbjörg, f. 1..4.1923, hús- móðir í Reykjavík; Jensína, f. 9.9. 1928, húsmóðir í Reykjavík; Guðrún, f. 1.12.1929, ekkja og starfsmaður við sjúkrahús, búsett í Hafnarfirði; Ragnheiður, f. 7.7.1932, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Árnýjar voru Guð- Arný Guðmundsdóttir. mundur Guðmundsson, f. 12.2.1889, d. 15.10.1969, bóndi á Ingjaldssandi og síðast verkamaður í Reykjavík, og k.h., Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 15.12.1890, d. 22.9.1965, húsfreyja. Þorsteinn Marinósson Þorsteinn Marinósson bifvélavirki, Skarðshlíð 32A, Akureyri, er sex- tugurídag. Starfsferili Þorsteinn fæddist í Engihlíð á Ár- skógsströnd og átti heima á Ár- skógsströndinni í foreldrahúsum fram yfir tvítugt. Hann lauk skyldu- námi og var einn vetur í unglinga- skóla. Þorsteinn fór í vegavinnu er hann var sautján ára, var sjö ár í mjólkur- flutningumtil Akureyrar og bjó fjögur ár á Árskógssandi þar sem hann m.a. gerði út, ásamt mági sín- um og frænda. Hann fékk land- spildu frá Engihlíð og Litla-Árskógi þar sem hann byggði iðnaðarbýlið Hhðarland, ásamt bílaverkstæði. Hann hefur nú átt heima á Akur- eyri sl. sex ár og stundað þar ýmsa vinnu, m.a. í efnaverksmiðjunni Sjöfn, á bifreiðaverkstæðinu Þórs- hamri og hjá rafeindafyrirtækinu DNG. Þorsteinn hefur verið virkur félagi í UMF Reyni, Lionsklúbbnum Hræ- reki og fleiri félögum og er nú for- maður skemmtiklúbbsins Líf og íjör. Aðaláhugamál Þorsteins eru húsbílasmíði og steinasöfnun. Fjölskylda Þorsteinnkvæntist21.4.1957Fjólu Kristínu Jóhannsdóttur, f. 22.9.1937, d. 31.8.1990, húsmóður. Hún var dóttir Jóhanns Friðbergs Bergvins- sonar og Signínar Guðbrandsdóttur er bjuggu á Áshóli í Grýtubakka- hreppi. Börn Þorsteins og Fjólu eru Sig- rún Jóhanna, f. 14.6.1957, ræsti- tæknir á Akureyri, var gift Árna Þórissyni og eiga þau þrjú börn, Guðbjörgu Stellu, f. 1975, Valgeir, f. 1980, og Einar Þóri, f. 1987; Marinó Steinn, f. 28.10.1958, bifvélavirki á Árskógssandi, kvæntur Indíönu Auöi Ólafsdóttur og eiga þau tvö börn, Þorstein, f. 1980, ogEyrúnu Elvu, f. 1986; Ingibjörg, f. 4.5.1961, sjúkraliði í Njarðvík, gift Óskari Jóni Hreinssyni og er dóttir Ingi- bjargar Fjóla Ósk, f. 1979, en börn Óskars eru Helgi Hreinn, f. 1985, og Dóra Lilja, f. 1987; Svanlaugur, f. 28.7.1963, verkamaður á Árskógs- sandi, kvæntur Heiðu Björk Sæv- arsdóttur og eiga þau þrjú böm, Erlu Kristínu, f. 1987, Sævar Þór, f. 1988, og Tómas Pál, f. 1993; Ása Val- gerður, f. 23.5.1973, húsmóðir á Akureyri, en sambýlimaður hennar er Jón Örvar Edvardsson og eiga þau eina dóttur, Herdísi Lind, f. 1994. Systkini Þorsteins: Valgerður, f. 5.12.1927, d. 18.3.1963, húsmóðir á Dalvík; Ása, f. 9.2.1932, ljósmóðir á Kálfskinni á Árskógsströnd; Birgir, f. 27.10.1939, bókhaldari á Akur- eyri; HUdur, f. 24.9.1941, saumakona áÁrskógssandi. Foreldrar Þorsteins: Marinó Steinn Þorsteinsson, f. 28.9.1903, d. 4.9.1971, bóndi, búfræðingur og odd- viti á Krossum og síðar í Engihhð, og k.h., Guðmunda Ingibjörg Ein- arsdóttir, f. 15.11.1905, ljósmóðir. Þorsteinn Marinósson. Ætt Marinó var sonur Þorsteins, b. og sjómanns á Litlu-Hámundarstöð- um, Þorsteinssonar, og Valgerðar Sigfúsdóttur frá Selá. Ingibjörg er dóttir Einars, hús- manns og sjómanns í Stafni í Deild- ardal í.Skagafirði, Ásmundssonar, b. á Þverá í Svarfaöardal og síðar í Hólakoti í Deildardal, Einarssonar. Móðir Einars var Hólmfríður Jóns- dóttir frá Bakka í Svarfaðardal. Móðir Ingibjargar var Birgitta Guðmundsdóttir, b. á Óslandi og í Ártúni á Höfðaströnd, Gíslasonar og Ingibjargar Magnúsdóttur frá Óslandi. Þorsteinn tekur á móti gestum í Fiðlaranum í Alþýðuhúsinu á 4. hæð frá kl. 15.30-20.00 á afmælisdag- inn. Þórður Kjartansson Þóröur Kjartansson, framkvæmda- stjóri og einn eigenda Keilulands, til heimilis að Torfufelh 9, Reykjavík, verður fimmtugur á morgun, gaml- ársdag. Starfsferill Þórður fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk prófi frá VI1964. Þórður starfaði hjá G. Albertsson hf. til ársloka 1993 en er nú einn eigenda og framkvæmdastjóri Keilulands í Mjódd. Fjölskylda Eiginkona Þórðar er Regína Aðal- steinsdóttir, f. 24.12.1947, húsmóðir. Börn Þórðar eru Ásgeir Þór, f. 13.11.1966, og Katrín, f. 30.9.1973. Foreldrar Þórðar eru Kjartan Guðjónsson, f. 2.9.1925, skrifstofu- maður, og Guðlaug Þórðardóttir, f. Þórður Kjartansson. 27.7.1927, kaupkona. Þórður er nú staddur í Manor House í Torquay á Englandi, ásamt eiginkonu og foreldrum og dvelur þarum áramótin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.