Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1995, Blaðsíða 4
Fréttir LAUGARDAGUR.18.MARS 1995 DV slensku tónlistarverðlaunin veröa viðameiri með hverju ári, segir Jónatan Garðarsson í und- irbúningsnefndinni. íslensku tón- listarverð* launin afhent ámorgun „Undirbúningurlnn hefur gengið vel en hann hófst í des- ember og við höfum verið aö stöð- ugt síðan og hist á vikulegum fundum. Síöustu dagana höfum við svo fundað daglega. Það er töluvert lagt í þetta og samkoman er viðameiri heldur en í fyrra og á eftir aö fara stækkandi með hverju ári sem líður,“ segir Jón- atan Garðarsson sem á sætí í undirbúningsnefnd íslensku tón- listarverðlaunanna 1994 en þau verða afhent á Hótel íslandi ann- að kvöld. íslensku verðlaunin eru nú veitt í annað sinn en þau eiga sér nokkurn aðdraganda. „Það var búiö að ræða um það í mörg ár í tónlistargeiranum að koma aö einhverri verðlaunaafhendingu eða viðurkenrtingu sem sátt yrði um. Stjömumessan, sem Dag- blaðið 'stóð fyrir á sínum tíma, var ágætis fydrbæri en á ein- hverjum tímapunkti kom upp ágreiningur á meðal yngra fólks- ins hvort verið væri að veita snobb-verðlaun eða ekki, senni- lega vegna þess aö þetta var al- gjörlega vinsældaval,“ segir Jón- atan, en nú er tekið mið af bæði vinsældum og eins færni eða getu tónlistarmanna. Víð afhendinguna á raorgun verða veitt verðlaun i fimmtán flokkum en úrslitunum ráða les- endur DV, sem tóku þátt í sér- stakri atkvæöagreiðslu, og fjöl- menn fagdómnefnd tónlistar- fólks. Hélt þetta yrði mitt síðasta - segir Eiríkur Jónsson sem lenti 1 snjóflóði í Akraíjalli Garðar Guðjónsson, DV, Aktanesi: „Við áttum ekki beint von á að lenda í snjóflóði á þessum slóðum en þegar við komum upp brekkuna viss- um við ekki fyrr en heilmikið fleka- flóð hreif okkur með sér. Ég lenti undir flóðinu og barst með því langa leið. Mér fannst það heil eilífð og hélt að þetta yrði mitt síðasta. Þetta var hrikaleg lífsreynsla," segir Eirík- ur Jónsson í samtali viö DV. Hann lenti í snjóflóði í Selbrekku í hlíðum Akrafjalls síðdegis á fimmtudag ásamt þremur félögum sínum. Eiríkur og Þórður Guðmundsson lentu undir flóðinu en félagar þeirra, Reynir Georgsson og Hollendingur- inn Juri Klafer, flutu ofan á því og komu Eiríki og Þórði til bjargar þeg- ar flóðið stöðvaðist. Enginn þeirra slasaðist alvarlega en Eiríkur kvart- aði undan eymslum í bald. Þetta voru fyrstu kynni Klafers af íslandi. Hann kom til landsins þennan sama dag. Kollarnir á Eiríki og Þórði stóðu upp úr flóðinu svo hinir áttu ekki í erfiðleikum með að finna þá. Þórður segist hafa fengið flóðið framan á sig áður en hann grófst undir því. „Ég fékk snjó upp í mig, missti andann og fékk mikla köfnunartil- finningu en ég náði að losa mig fljót- lega eftir að flóðjð stöðvaðist," segir Þórður. Félagarnir voru hins vegar talsverða stund að ná Eiríki upp úr flóðinu. Miklar snjóhengjur eru á brún Selbrekku og flórmenningamir vilja vara fólk við að vera þarna á ferð uns aðstæður breytast. Fjórmenningarnir sem lentu í þeirri Klafer, Reynir, Þórður og Eirikur. óvæntu en hrikalegu lífsreynslu að lenda í snjóflóði í Akrafjaili. Frá vinstri: DV-mynd Garðar HappdrættiHÍ: Sá stóri á níunni - átján milljónir í vasann Stærsti vinningurinn í síöasta hafði keypti nífaldan trompmiða. flokki Happdrættis Háskólans kom á Aðalvinningurinn var 2 milljónir miða sem seldist hjá Frímanni í þannig að konán fékk heilar 18 millj- Hafnarhúsinu í Reykjavík. Eigandi ónir í sinn hlut. Þetta er með stærstu miðans var kona í Reykjavík sem vinningum í sögu happdrættisins. Getraunir: „Það hringdi maður í gær og um var seldur. Eigandi miöans sagðíst vera með miða sem hann reyndist vera kona á sextugsaldri. vildi vita hvort eitthvað væri á, Það Erla segir konuna nú vera 15,3 kom í ljós að þetta var stóri vinn- milljónum ríkari. Hún segir upp- ingurinn," segir Erla Sigurgeirs- hæðina hafa verið 15,6 milljónir en dóttir, eigandi söluturnsins Gerplu vegna gengisbreytinga hafi hún við Hofsvallagötu þar sem get- lækkað um 300 þúsund. raunaseðill frá íslenskum getraun- _rt Ólafur Karvel Pálsson fiskifræðingur um togararallið: Eini mælikvarðinn á raun- verulega stærð stofna - stefnt að öðru togararalli 1 haust „Ég er algjörlega ósammála Guð- jóni í því að þetta segi ekkert til um fiskmagnið. Þetta segir einmitt mjög mikið til um það. Miðað við allar þær breytingar sem orðið hafa í sóknar- munstri fiskiskipanna og allar þær tæknibreytingar sem orðið hafa þá tel ég að þetta sé eini mælikvaröinn sem við höfum á raunverulegar breytingar á stærð þessara fiski- stofna sem við höfum sem mestar áhyggjur af. Tæknibreytingamar þýða það að afli á sóknareiningu seg- ir afskaplega lítið," segir Ólafur Kar- vel Pálsson, fiskifræðingur á Haf- rannsóknastofnun, vegna þeirra ummæla Guðjðns A. Krisfiánssonar í DV að togararallið væri enginn mælikvarði á stærð fiskistofna. Olaf- ur segist vera alfarið ósammála þessu mati Guðjóns. „Við teljum rallið hafa fullkomlega skilað árangri sínum. Það er nfiög erfitt að spá fyrir um þær breytingar sem verða í hafinu og breyta rallinu í samræmi við það. Norðmenn voru með einhvern sveigjanieika í sínu togararalli þar sem það var að hluta til skipsfióranna að finna fisk. Þeirra rall hefur ekki skilað, að okkar mati, sama árangri og okkar rall. Okkar rall hefur skilað nfiög góðum ár- angri, ekki bara fyrir þorsk heldur allar botnlægar tegundir. Viö erum að mæla meðalafla í togi á öllu svæð- inu. Ef skipsfióramir væm beinlínis að leita að fiski væmm við að mæla meðalafla í togi þar sem mest er af fiski. Það er ekki sjálfgefið að það væri betri mæling,“ segir Ólafur. Hann segir aflaleysi Rauðanúps fyrir Norðurlandi ekki gefa neina vísbendingu um að stofninn sé í hættu. Það séu til fordæmi um að sjór hafi kólnað áður á svæðinu. „Þetta minnir á ástandið sem var 1989 þegar fiskurinn sópaðist af norð- ursvæðinu. Þetta er því ekki án for- dæma,“ segir Ólafur Karvel Pálsson. Hann segir að ekki séu hugmyndir um að yfirfæra togararallið á önnur veiðarfæri. Sú nýjung sé þó á döfinni nú að taka upp annað togararall aö haustinu. „Við erum með hugmyndir um að fara í togararall í haust og væntanlega verður farinn slíkur túr í haust. Það verður að vísu ekki með sama umfangi," segir Ólafur -rt IMARK, Islenski markaosklubburinn, afhenti við hátíðlega athöfn í Borgar- leikhúsinu í gær verðlaun fyrir athyglisverðustu auglýsingar ársins 1994. Verðlaun voru veitt í átta flokkum auglýsinga auk þess sem óvenjulegasta auglýsingin var valin. DV gaf verðlaun i flokki auglýsingaherferða. Þar hlaut auglýsingastofan Gott fólk verðlaun fyrir herferð Ölgerðar Egils Skallagrims- sonar, Egils Malt '94. Á myndinni afhendir Páll Stefánsson, auglýsinga- stjóri DV, verðlaun til handa fulltrúum frá Góðu fólki og Ölgerð Egils Skalla- grimssonar. Alls bárust 223 sendingar í keppnina sem fram fór í niunda sinn. DV-mynd JAK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.