Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1995, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 18. MARS 1995
41
Átök múslíma í Tyrklandi:
HOPKINS
Aziz Nesin ásamt nokkrum þátttakenda í menningarhátíðinni í Sivas á hótel-
inu klukkutíma eftir að það var umkringt af heittrúarmönnum.
»ps JUWDTO M fflms' M* HuRStJt <8
FERÐIR
riÆÆÆÆMÆÆÆÆÆÆMÆIÆÆÆÆMÆÆÆl.
AUKABLAÐ
FERÐIR - UTANLANDS
Miðvikudaginn 29. mars mun aukablað um
ferðir utanlands fylgja DV.
Efni blaðsins verður helgað sumarleyfisferðum til
útlanda í sumar og ýmsum hollráðum varðandi
ferðalög erlendis.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í
þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við
Björk Brynjólfsdóttur, auglýsingadeild DV, hið
fyrsta í sima 563-2723.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga
er fimmtudagurinn 23. mars.
Margra alda
ágreiningur
Undanfarin tuttugu ár hefur
ágreiningurinn milli súnníta og
alavíta farið vaxandi í Tyrklandi.
Alavítar eru minnihlutahópur mú-
slíma. Þeir eru um 20 prósent íbú-
anna og hafa í margar aldir verið
í andstöðu við heittrúarmenn.
Átökin sem hafa verið í fréttum
undanfarna daga koma því ekki á
óvart.
Árið 1978 voru mörg hundruð
alavítar drepnir í Sivas, Corum og
Kahramanmaras. Fyrir tveimur
árum kveiktu heittrúarmenn í hót-
eli í Sivas þar sem haldin var
menningarhátíð með þátttöku
fjölda alavíta. Þrjátíu og sjö manns
létu lífið. Meðal þeirra sem komust
undan var einn vinsælasti rithöf-
undur Tyrklands, Aziz Nesin, sem
boðið hafði verið að halda ræðu á
hátíðinni.
Nesin, sem oft hefur verið fang-
elsaður vegna skoðana sinna, sagði
stjórnvöld bera ábyrgð á mannsk-
aðanum. Frá því að heittrúarmenn
umkringdu hótelið og þar til eldur-
inn braust út sex klukkustundum
seinna voru hótelgestirnir í stöð-
ugu símasambandi við talsmenn
stjórnarinnar. Hótelgestum var
sagt að vera rólegir en herflokkur,
sem lofað var að kæmi á vettvang
og vitað var að væri ekki langt
undan, birtist ekki fyrr en vonlaust
var að bjarga nokkrum.
í þingskýrslu var staðfest að heit-
trúarmenn hefðu undirbúið hóp-
samkomu í Sivas með nokkurra
daga fyrirvara. Bréfasími lögreglu-
stöðvarinnar í Sivas var notaður
morguninn sem fjöldamorðin voru
framin til að senda fréttatilkynn-
ingar til vissra dagblaða. í tilkynn-
ingunum sagöi að komið yrði í veg
fyrir nærveru „trúvillinganna"
með valdi. Fullyrt er að rétt áður
en eldurinn braust út hafi herfor-
ingi komið inn á hótelið og hvatt
alla lögreglumenn til að yfirgefa
bygginguna.
Árás stjómmála-
manns með jámkrók
Gagnrýnendur stjórnarinnar í
Tyrklandi segjast hafa áhyggjur af
meintu aðgerðaleysi hennar gagn-
vart heittrúarmönnum múslíma.
Gagnrýnendur segja að þegar
Tansu Ciller forsætisráðherra snúi
sér i vesturátt vilji hún láta líkja
sér við Margaret Thatcher og sam-
starfsmenn hennar séu klæddir
eins og skriffmnarnir í Brussel. En
þegar þau snúi sér í austur séu þau
andlega skrýdd að hætti súnníta.
Yfirvöld láti sem þau séu hlynnt
trúfrelsi en daðri við heittrúar-
menn til þess að fá atkvæði. Þeir
sem eru svartsýnastir óttast að
þegar tækifæri gefist losi prestarn-
ir, sem í raun hafi þegar mikil pólí-
tísk völd, sig við stjórnina.
Þegar rithöfundurinn Aziz Nesin var kominn niður stiga slökkviliðsins réð-
ist þekktur stjórnmálamaður á hann með járnkrók. Atburðurinn átti sér stað
i Sivas i Tyrklandi fyrir tæpum tveimur árum þegar heittrúarmenn kveiktu
í hóteli.
ATH.I Bréfasími okkar er 563-2727.
Stjórnmálamaður
vopnaðurjárnkrók
Nesin hefur greint frá því að á
síðasta augnabliki hafi vinur hans
kippt honum með sér í herbergi
með glugga á framhlið hótelsins.
Hann hafi hrópað á hjálp og fengið
slökkviliðsmann til að reisa stiga
upp að glugganum.
Að sögn Nesins sló slökkviliðs-
maður, sem kom upp stigann á
móti honum, til hans svo að hann
kæmist ekki niður. Sjónarvottar
hafa staðfest þessa frásögn Nesins.
Samtímis hafi þekktur stjórnmála-
maöur í Sivas hrópað til æsts múgs
fyrir utan hótelið að Nesin yröi aö
deyja. Stjórnmálamaðurinn hafi
síðan ráðist á Nesin með jámkrók.
Lögreglumanni hafi hins vegar tek-
ist að komast á milh og flutt Nesin
í lögreglubíl á sjúkrahús en þá
hafði hann orðið fyrir mörgum
höggum.
Nesin taldi að slökkviliösmaður-
inn, sem reisti stigann, hefði ruglað
vini hans saman við lögreglumann
sem taliö var að væri enn inni í
hótelinu. Þegar uppgötvast hefði
hverjir þeir væru hefði átt að láta
mannfjöldann sjá um þá.
Innanríkisráðherrann sagði
ræðu Nesins hafa ögrað heittrúar-
mönnum. Nesin sagði hann ljúga.
Hver sem er hefði getað lesið ræðu
hans sem birtist í stærstu dagblöð-
um Tyrklands. Nesin fullyrti að
yfirvöld hefðu reynt að dylja að
íkveikjan hefði verið skipulögð fyr-
ir fram. Eini ráðamaðurinn sem
sakaði heittrúarmenn um glæp var
menningarmálaráðherra landsins.
Ráðuneyti hans átti þátt í skipu-
lagningu hátíðarinnar í Sivas.
BradPitt leikur
Tristan Ludlow.
Enginngat tamiö
þennan unga, villta
mann sem samfélag-
ið fordæmdi. a
brat) pin
AIDAN QUINN