Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1995, Blaðsíða 34
42
LAUGARDAGUR 18. MARS 1995
Iþróttir
„Mjög auðvelt að fá fólk
til starfa fyrir okkur"
- segir Hákon Gunnarsson, framkvæmdastjóri HM'95. Lokaundirbúningur stendur sem hæst
Undirbúningurinn fyrir stærstu
íþróttakeppni, sem haldin hefur ver-
iö hér á landi fyrr og síðar, stendur
nú sem hæst. 49 dagar eru þangað
til stóra stundin rennur upp.
Óhemjumikil vinna liggur aö baki
sem fjölmargir einstaklingar hafa
komið nærri. Vinnunni er ekki lokið
og fjölmarga hnúta á eftir að hnýta
áður en flautað verður til leiks. Há-
kon Gunnarsson, framkvæmdastjóri
HM’95, hefur haft i nógu að snúast
frá því að hann var ráðinn í þetta
mikilvæga starf fyrir tveimur árum:
„Það er ekki hægt að segja annað
en að undirbúningur standi vel. Það
hefur margt færst til betri vegar á
síðustu 2-3 mánuðum. Það er náttúr-
lega búið að ganga á ýmsu á þeim
tveimur árum sem ég hef starfað við
þetta verkefni. Við höfum þurft að
takast á við vandamál sem mig óraði
ekki fyrir að myndu koma upp. Við
getum nefnt í því sambandi húsbygg-
ingarmál sem ég stóö í þeirri trú að
væru öll klár. Ég átti heldur ekki von
á öllu þessu umstangi í kringum
sjónvarpsútsendingar. Ég bjóst hins
vegar við að ekki gengi vel að semja
við alþjóða handknattleikssamband-
ið. Það urðu vatnaskil fyrir nokkrum
mánuðum og í dag leggjast allir á
eitt um að leysa þetta vel af hendi.
Það er mjög gaman að þessu starfi
núna og mjög auðvelt að fá fólk til
að starfa. í heild lítur þetta vel út,“
sagði Hákon.
- Hvað hefur komið þér einna helst
á óvart í þessu starfi?
„Það held ég að sé hvað margir
kveiktu seint á stæröargráðunni.
Mér fannst starfið strax í upphafi
mjög spennandi og stundum fannst
mér ég tala fyrir daufum eyrum. Það
var ekki það að fólk væri aö gera lít-
ið úr þessu, almenningur áttaði sig
bara ekki almennilega á hversu stórt
þetta yrði í rauninni. Ég er alls ekki
að bera þetta saman við heimsmeist-
arakeppni í knattspyrnu heldur er
þetta, miðað við annað sem við höf-
um tekiö okkur fyrir hendur, gríöar-
lega stórt verkefni. Fólk kveikti bara
seint á perunni."
- Hvernig kom það til að þú tókst
þessa miklu vinnu að þér?
„Ég sótti ekki um starfið á sínum
tíma. Ég var í námi í Danmörku að
vinna að verkefni hér heima fyrir
dómsmálaráðuneytið. Það var hins
vegar hringt í mig einn góðan veður-
dag og ég boðaður í viðtal og eftir smá
umhugsun ákvað ég að slá til. Mér
leist þannig á málið að þetta yrði
skemmtilegt eins og raunin hefur
orðið á. Ég er alls ekki ókunnugur
íþróttahreyfingunni, var lengi fram-
kvæmdastjóri íslenskra getrauna og
starfaði ennfremur lengi í hreyfing-
unni við stjórnunarstörf og eins sem
leikmaður. Þetta var í fyrsta skipti í
15 ár sem ég steig fæti mínum inn
fyrir dyr handknattleikshreyfingar-
innar. Ég hafði ekkert veriö þar fyrir
utan að hafa spilað með Guðrúnu
sem er félag íslenskra námsmanna í
Kaupmannahöfn."
- Hefur þetta starf ekki verið góður
skóli fyrir þig sem nýtast mun svo
enn betur í framtíðinni?
„Undirbúningurinn snýst ekki
nema að litlum hluta um handbolta.
Ég var við nám í rekstrarhagfræði í
Kaupmannahöfn og hef reynt að
beita þeim aðferðum þegar því hefur
verið við komið, bæði úr starfreynslu
og náminu, til að stýra þessu sem
best. Starfið er að mestu fólkið í verk-
efnisstjórnun á dæmi sem veltir
langt yfir 200 milljónum króna sem
hefur ákveðið upphaf og ákveðinn
endi. Þetta er geysilega fín reynsla
og nýtist manni vonandi annars stað-
ar í lífinu.“
- Núna eru 49 dagar til stefnu. í
hverju felst lokaundirbúngurinn?
„Það koma alltaf upp vandamál og
þessa dagana erum við að skipu-
leggja og samræma allar aðgerðir á
keppnisstöðunum fjórum. Við erum
að þjálfa starfsfólkið eftir því sem viö
verður komið og prufukeyra ýmsa
þætti eins og tölvukerfið. Loka-
hnykkurinn, sem lýtur að móttöku
þeirra aðila sem við berum ábyrgð á
og eru um eitt þúsund, stendur yfir
um þessar mundir. Fjáröflunin geng-
ur betur núna en nokkurn tímann
áður. Við ætlum einnig að keyra upp
þannig stemningu að fólk láti ekki
þann hálfa mánuð sem keppnin
stendur yfir líða án þess að sjá að
minnsta kosti einn leik,“ sagði Há-
kon Gunnarsson.
Sex fastráðnir menn vinna á skrif-
stofu HM’95 og er um að ræða úrvals-
fólk sem vinnur sitt verk samvisku-
samlega að mati Hákonar.
• Starfsfólk HM’95. Aftari röð frá vinstri eru Hákon Gunnarsson framkvæmdastjóri, Geir Sveinsson sölumaóur, Sigurjón Friðjónsson markaðsstjóri, Gunnar Gunnarsson tækni-
stjóri, Pétur Ormslev sölustjóri og Stefán Konráðssson mótsstjóri. Fyrir framan: Thelma Theódórsdóttir skrilstofumaður og Ásdis Höskuldsdóttir skrifstofustjóri. DV-mynd JAK
Ingólfur Hannesson hefur haft nóg að gera í þeim málum sem snúa
að sjónvarpi og útvarpi. DV-mynd JAK
Ingólfur Hannesson verkefnisstjóri:
Umfangið meira en
við gerðum ráð fyrir
„Við erum í dag búnir að ganga
frá samningum við 26 sjónvarps-
stöðvdr og 7 útvarpsstöðvar sem
við þurfum að þjónusta meðan á
heimsmeistarakeppninni stendur.
Við eigum von á því að bætist við
að minnsta kosti 2-3 sjónvarps-
stöðvar en á þessari stundu veit
ekki hvort fleiri útvarpsstöðvar
koma en mér þætti það samt ekki
ólíklegt. Við erum búnir að senda
út til allra þessara aðila mjög ítar-
leg spurningablöð um þá þjónustu
sem viðkomandi aðilar þurfa á að
halda. Einnig hvaða leiki þeir viljar
aðstöðu á leikjum og klippingar,
svo eitthvað sé nefnt. Þessum atrið-
um er búið að safna aö mestu leyti
og okkur sýnist að þetta ætli að
verða nokkuð víða meira heldur
en í upphafi. Það verða fleiri sjón-
varpsstöðvar sem ætla að taka
myndir af sínum leikjum, sem ekki
tóku myndir af leikjum sinna liða
á heimsmeistarakeppninni í Sví-
þjóð fyrir tveimur árum. Þannig
að umfangið á þeirri hlið er meira
en við gerðum ráð fyrir,” sagði Ing-
ólfur Hannesson, verkefnisstjóri
með sjónvarps- og útvarpsmálum í
heimsmeistarakeppninni í hand-
knattleik.
Ingólfur er yfirmaður íþrótta-
deildar RÚV en var tekinn út úr
því starfi um sex mánaða skeið til
að geta sinnt eingöngu verkefnis-
stjórastarfinu frá síðustu áramót-
um.
„í stuttu máli höfum við gert
verkáætlanir fyrir hvern vinnuþátt
í þessu máh og þær hafa staðist
algjörlega, bæði hvað varöar fram-
kvæmdina og það sem lýtur að fjár-
hagshliðinni. Það er á annan tug
manna sem alltaf eru með annan
fótinn í þessu verkefni hér innan-
húss með fram annarri vinnu. Við
erum einnig í raun að vinna verk
sem aðrar stöðvar hafa ekki þurft
að spekúlera í. Við erum til að
mynda búnir að fara-margar feröir
á keppnisstaðina til skrafs og ráða-
gerða um rafmagn, lýsingar og að-
stöðumál og annað í þeim dúr. Ég
vil að það komi komi sérstaklega
fram að við höfum átt frábært sam-
starf við stjórnendur keppnisstað-
anna, menn eru almennt mjög já-
kvæðir og ákveðnir í að þessi
keppni verði okkur til sóma,“ sagði
Ingólfur Hannesson.