Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1995, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1995, Page 10
10 LAUGARDAGUR 18. MARS 1995 Björg Kristín konditor ólst upp í bakaríi: Kökuskreytingar eru listgrein „Ég ólst upp í bakaríi. Þegar ég var lítil var bakaríið hans pabba leik- skólinn minn. Það má segja að ég hafi hreinlega fæðst inn í þetta starf,“ segir Björg Kristín Sigþórsdóttir, konditor í Bakarameistaranum Suð- urveri. Aðeins tvær konur á íslandi eru læröir konditorar eða það sem á íslensku kallast kökuskreytingar- fólk. Björg Kristín lærði kökugerðarlist í Kransekagehuset í Kaupmanna- höfn og bóklega námið tók hún í Tækniskólanum í Ringsted. Hún dvaldi við nám í Danmörku í tvö og hálft ár en sneri heim á síðasta ári. Kökur hennar og tertur hafa vakið mikla athygli, þær þykja listilega skreyttar og hún er líka óhrædd við að taka upp nýjungar. Björg byijaði að vinna í bakaríi föður síns aðeins 12 ára gömul um helgar og með skólanum. Eftir að hafa verið eitt ár í menntaskóla fór hún að vinna fullan vinnudag í bak- aríinu. 22 ára gömul ákvað hún hins vegar að fara til Danmerkur að læra kökuskreytingar. Það segir hún hafa verið mjög skemmtilega reynslu. Setti íslandsmet í brúðartertubakstri Þegar Björg kom heim úr námi í fyrra byijaði hún á að setja íslands- met í brúöartertubakstri. Systir hennar var að gifta sig og Björg ákvað að baka veglega brúðartertu handa henni. Það tók um tvo mánuði að gera tertuna sem var um tveir og hálfur metri á hæð og vó um 200 kíló. Skreytingamar voru allar handunn- ar og tók langan tíma að gera þær. „Þetta var gífurleg vinna og það verður langt þangað til ég geri svona lagað aftur. Undirbúningurinn tók heila tvo mánuði. Þegar verið var að setja kökuna saman vakti ég í eina Það fyrsta sem Björg geröi eftir að hún kom heim úr námi frá Dan- mörku var að baka risastóra brúð- artertu handa systur sinni. Tertan var tveir og hálfur metri á hæð. DV-mynd GVA þrjá sólarhringa," segir Björg Krist- ín. Björg segir að nóg hafi verið að gera síðan hún kom heim úr námi. Tertupantanirnar streymi inn. Björg lærði í Kransekagehuset eins og áður sagði. Staðurinn er við hiið- argötu við Strikið í elstu hverfunum í Kaupmannahöfn. Yfirmaður henn- ar þar hefur starfað við kökugerðar- Ust í um 35 ár og hefur gífurlega reynslu. Hún hafi því verið mjög heppin að komast þar að. s kmmmm Frðbœr fax/módem fyrir PC- og Macintoshtölvur Bullet ÍOOE fd /módem Alvöru 28.800 bps mótald með: nýja samrœmda CCITT V.34 staðlinum, skjó, möguleika ó uppfœrslu ef staðlar breytast.O.fl. 100% villuleiðrétting: Gagnaþjöppun Fyrir þð sem vilja það besta! UfoMate P1414 MX fox/módem Lítið nett módem með stóra eiginleíka. 14.400 bps mótald með CCITT MODEM DULLET UFiÍMÖTE V.32bis staðlinum, O.fl. Tengipakkar fyrir INTERNETIÐ fra Miðheimum ístel h.f. - Sfðumúla 37 S. 687570 - Fax. 687447 Björg Kristín með nókkrar glæsilegar smátertur. Sú sem hún heldur á er orðin sérstaklega vinsæl. Kökugerðarlistin á hærra stigi í Danmörku Björg segir nokkurn mun vera á kökugerðarlist í Danmörku og á ís- landi. Danir séu auðvitað komnir miklu lengra og menningin sé öðru- vísi. í náminu var lögð áhersla á að allt þaö sem færi í skreytingu kök- unnar yrði að vera hægt að borða. Allt veröi að verða gott á kökunni. Björg segir aö bestu fagmennirnir í Danmörku séu komnir miklu dýpra í fagið en gengur og gerist hér heima. Þar sé meiri stemning fyrir konditor- um og meiri skilningur á faginu. Fólk sæki í að fá að læra það. „Við erum að reyna að fara inn á nýjar brautir í fyrirtækinu okkar. Við ætlum aö taka upp nýjung um páskana, eitthvað sem hefur ekki verið hér á íslandi áður. Það kemur allt saman í ljós rétt fyrir páska og svo eru fleiri nýjungar á leiðinni." Hún segir störfin í bakaríinu vera mjög árstíöabundin. Mest sé að gera um jólin og páskana og sumarið sé betra en veturinn. „Ég mæti alltaf klukkan sjö á morgnana og baka til kl. 11. Eftir hádegi er ég aö undirbúa tertubakst- ur morgundagsins, taka á móti pönt- unum og sjá um að allt sé í lagi.“ Hún segir að hstin viö að skreyta kökur komi meö æfmgunni og engu öðru. Menn þurfi líka að hafa mikinn metnað. Kökuskreytingar séu list- grein og framfarir séu miklar. Björg segist hafa heyrt í mörgum að undanförnu sem hafi veriö að spyija um ráð varðandi bakstur fyrir fermingarveislur. Hún segir erfitt aö gefa fólki bein ráð en gæði hráefnis- ins séu aöalmálið. Það borgi sig ekki að spara á þvi sviði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.