Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1995, Síða 26
26
LAUGARDAGUR 18. MARS 1995
Trommari
R.E.M.
veiktist
Bill Berry, trommuleikari
R.E.M., er sagður vera á góðum
batavegi eftir að hafa verið skor-
inn upp í skyndi vegna blæðing-
ar við heila. Berry veiktist á miðj-
um tónleikum með R.E.M. í Laus-
anne í Sviss og var fluttur í hend-
ingskasti á sjúkrahús og þaðan
rakleitt á skurðarborðið. Lækn-
ar segja að Berry muni ná sér að
fullu en engu aö síður er ljóst að
hann verður að taka sér frí frá
störfum um nokkurt skeið. Tals-
menn hljómsveitarinnar segja að
fyrirhugað tónleikahald á næst-
unni sé úr sögunni en vonir
standi til að R.E.M. geti tekið upp
þráðinn þar sem frá var horfið í
apríl.
Frumkvöðull
fellur frá
Melvin Franklin, einn af stofh-
endum Motown söngsveitarinn-
ar The Temptations, er látinn 52
ára að aldri. Franklin hafði átt
við veikindi að stríða og lést í kjöl-
far heilablæðingar. The Temp-
tations voru eitt af stóru nöfnim-
um í soultónlistinni og áttu ara-
grúa af vinsælum lögum um all-
an heim á árunum 1965 til 1975.
Snarráðir
áheyrendur
Engu munaði að stórslys yrði
á tónleikum hljómsveitarinnar
Faith no More í Portsmouth á
dögunum. Tónleikamir voru ný-
haíhir þegar stór ljósastandur féll
yfir áhorfendur. Sem betur fer
valt^tandurinn hægt á hliðina
þannig að þeir áheyrendur sem
undir honum urðu gátu brugðist
við og einfaldlega gripu standinn!
Oasis uppá-
koma
Liam Gallagher, liðsmaður
hinnar nýfrægu hljómsveitar
Oasis, virðist vera kominn með
snert af því mikilmennskubrjál-
æði sem því miður einkennir
ýmsa stórpoppara. Hann sat á
dögunum að sumbli á krá í
Manchester og hafði víst drukk-
ið heldur ótæpilega. í framhald-
inu fór hann að abbast upp á kon-
ur á staðnum sem endaði auðvit-
að með því að kærasti einnar
þeirra rétti homun einn á lúöur-
inn. Varð Gallagher hálf ómótt af
högginu og þeysti upp spýju mik-
illi en tók svo til óspiiltra mál-
anna við glasakast og slagsmál.
Varð loks að fjarlægja hann með
valdi af staðnum og má hann bú-
ast við feitum reikningi ffá eig-
endum kráarinnar vegna
skemmda.
í ÍSOÐI A fipffipl Á BYLGJUNNI Í DAG KL. 16.00
* I SN p »7 1 W V fgS^ felil LISI ¥ IV iV IV s. IH i E A A B b 1 m 1 1 I
1 T VSf W l |Í j ÍVNA 18.3. "11 ^ 6)) á f €| SZ & fLJr QÍí*
ÞESSI VIKA SlÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á LISTANUM TOl »p 4t
1 1 1 7 DANCING BAREFOOT • 5. VIKA NR. í— U2
|Q) 5 6 4 WHEN 1 COME AROUND GREEN DAY
3 2 2 7 THE BALLAD OF PETER PUMKINHEAD CRASH TEST DUMMIES
4 3 10 3 TOCCATA & FUGUE VANESSA MAE
G) 12 - 2 BELIEVE ELTON JOHN
6 4 3 4 WHERE DID YOU SLEEP LAST NIGHT NIRVANA
G) 10 35 3 1 KNOW DIONNE FARRIS
8 7 18 6 NO MORE 1 LOVE YOU'S ANNIE LENNOX
9 6 7 5 'OLD POP IN AN OAK REDNEX
(ÍÖ) 15 27 3 YOUGOTII BONNIE RAITT
•• NÝTTÁ LISTA -
Gi) 1 ICAN'T BEWITHYOU CRANBERRIES
12 9 12 8 STRONGENOUGH SHERYL CROW
<5D 29 30 3 - HÁSTÖKK V1KUNNAR - BOXERS MORRISEY
14 14 24 4 INDEPENDED LOVE SONG SCARLET
IMÝTT 1 TOTAL ECLIPSE OF THE HEART NICKI FRENCH
17 23 5 AS 1 LAY ME DOWN SOPHIE B. HAWKINS
17 11 9 6 THIS COWBOY SONG STING & PATO BANTON
20 21 5 SOMEDAY l'LL BE SATURDAY NIGHT < BON JOVI
19 8 4 6 THESE BOOTS ARE MADE FOR WALKING SAM PHILLIPS
20 18 25 4 1 LIVE MY LIFE FOR YOU FIREHOUSE
NÝTT 1 SHORT SHORT MAN 20 FINGER & GILLETTE
(3) 31 - 2 OPEN YOUR HEART M-PEOPLE
23 19 20 5 HOLD ON JAMIE WALTERS
24 24 •40 3 ONE DAY GARY MOORE
(25) 26 37 3 1 SAW YOU DANCING YAKI-DA
(2fi) NÝTT 1 CAN'T STOP LOVIN’ YOU VAN HALEN
27 13 5 9 SON OF A PREACHER MAN DUSTY SPRINGFIELD
<$> 33 38 3 MURDER INCORPORATED BRUCE SPRINGSTEEN
29 28 33 3 RUN AROUND BLUES TRAVELER
30 16 8 9 THE MAN WHO SOLD THE WORLD NIRVANA
<5) 35 - 2 FOR YOUR LOVE STEVIE WONDER
(32) 39 . 2 1 LUV YOU BABY ORIGINAL
33 21 13 7 SHE'S A RIVER SIMPLE MINDS
34 27 28 4 ÞAR SEM ALLT GRÆR NEMENDUR F.B.
(35) NÝTT 1 BAD REPUTATION FREDDY JOHNSTON
36 23 11 11 WHATEVER OASIS
NÝTT 1 AN ANGEL KELLY FAMILIE
38 38 - 2 MISHALE ANDRU DONALDS
(33) NÝTT 1 GOTTA GET AWAY FROM YOU THOMAS HELMIG
<$> NÝTT 1 WHAT HAVE WE GOT TO LOOSE HANNEBOEL
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunarsem erframkvæmd af markaðsdeild DVi hverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á íslenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 16.00 sama dag. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn tekur
þátt i vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music & Media sem
er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
S89
GOTT ÚTVARP!
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og f ramleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Plötufréttir
Hljómsveitin Babes in Toyland
er að ganga fr á upptökmn á nýrri
plötu sem stefnt er að komi út 25.
apríl næstkomandi...Mudhoney
er líka að ljúka við frágang á
nýrri plötu sem sér dagsins ljós
þann 27. mars næstkom-
andL.Boy George er að rísa úr
öskustónni heldur betur því
drengurinn er ekki einungis að
leggja síðustu hönd á nýja plötu
sem á að koma út í 1. maí, held-
ur kemur sjálfsævisaga hans
„Take It like A Man“ út 21. apr-
íl... Og Brianna Corrigan sem eitt
sinn söng með The Beautiful
South, er með fyrstu sólóplötu
sína í smíðum...
Geldof
hjálparþurfi
Bob Geldof, fyrrum söngvari
Boomtown Rats, sem þekktastur
er fyrir Band-Aid aðstoðina við
hungraða um árið er maður í sár-
um þessa dagana. Ástæðan er sú
aö Paula Yates, konan sem hann
hefúr verið giftur undanfarin 18
ár, er farin frá honum. Og hún
var ekki lengi að finna sér nýjan
kavaler því fregnir herma að hún
hafi sést í slagtogi við INXS
söngvarann og glauiugosann,
Michael Hutchence, sem að und-
anfömu hefur verið í nánu vin-
fengi við dönsku fegurðardrottn-
inguna Helen Christiansen.
-SþS-
Á toppnum
Strákamir í írsku hljómsveit-
inni U2 eiga topplag íslenska list-
ans fimmtu vikuna í röð en þetta
er hins vegar sjötta vikan sem
lagið er á listanum. Dancing
Barefoot heitir lagið eins og flest-
ir tónlistamnnendur ættu nú að
vita en það má einnig heyra í
kvikmyndinni Threesome. Það
var Patti Smith sem samdi og gaf
fyrst út lagið fyrir mörgum árum.
Nýtt
Hæsta nýja lagið í þessari viku
heitir I Can’t Be with You en flytj-
andinn er Cranberries en þetta
framlag fer beinustu leið í 11. sæti
íslenska listans. í síðustu viku
var það knattspymuáhugamað-
urinn Elton John sem átti hæsta
nýja lagið á listaniun en Believe
fór þá í 12. sætið. Nú hoppar Elton
John hins vegar enn ofar eða í 5.
sætið og verður fróðlegt að sjá
hvort Cranberries gerir betur í
næstu viku.
Hástökkið
Morrisey er hástökkvari þess-
arar viku með lagið Boxers en
það er nú í 13. sæti listans. Nú er
bara að bíða og sjá hvað Morris-
ey gerir í næstu viku.