Þjóðviljinn - 24.12.1967, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 24.12.1967, Blaðsíða 21
EKKJAN A ALFTANESI Þorkell hét maður norðan úr Húnavatnssýslu. Hann var vænn yfirlitum og ásjálegur. Um tvítugsaldur fór l.ann suð- ur til sjóróðra. Var hann dug- legur til hvers sem gekk. ílent- ist hann á Álftanesi og var í þjónustu danskra á sumrin og kom sér vel við þá, enda lét hann þá hafa sig til hvers sem þeir vildu. Græddist hon- um nú fé, og var mælt hann væri í þingum við unga ekkju þar á nesinu, ásjálega og efn- aða. En skapmikil og sköruleg þótti hún vera. Sagði margur, að það væri jafnræði. En um þessar mundir komst Þorkell í mikla kærleika við hirðstjór- ann sjálfan, var hann honum fylgisamur gegn innanlands- höfðingjum og biskupum. Hugð- ist nú hirðstjórinn að launa honum liðveizluna, hét honum þjónustustúlku sjálfs sín og gjörði Þingeyrarklaustur upp- tækt til handa honum. Skyldi Þorkell fara norður um vor- ið til að losa klaustrið, en vitja ráðahagsins vorið eftir. Þó fór ráðagjörð þessi dult. Þegar Þor- kell bjóst af stað grunaði þó ekkjuna, hvað um var að vera og spurði hann, hvort hann væri heitinn öðrum kvenmanni. Þorkell gaf henni óglögg svör. Hún mælti: „Vita skaltu það, Þorkell, að bráðum skal ég verða vís hins sanna, og séu svik í tafli, skal ég verða bani hinnar dönsku pútu, er þú hef- ur metið meira en mig, og síð- an drepa sjálfan þig. Muntu þá stutta stund búa að þeirri höfðingjahylli, er þú hefur keypt með drengskap þínum“. Ekki er getið annarra orða þeirra. Fór Þorkell norður og tók Þingeyrarklaustur undir sig. Um sumarið kom ekkjan að Bessastöðum. Hitti hún þá hina dönsku stúlku að máli og spurði, hver hefði gefið henni fingurgull það, er hún hafði á hendi. Hún sagði Þorkell hefði gjört það. Rausaði hún nú allt af högum sínum, eins og dönskum er títt, sagðist hún ekki muna önnur orð hirðstjór- ans en þau, að hann mundi' gifta sig íslenzkum sveini sín- um. Ekkjan sagði: „Berðu eng- an kvíðboga fyrir því“. Skildi hún síðan við hana heldur fá- lega, og varð ekki af kveðj- um. Fám dögum síðar dó ekkj- an, og þótti það kynlegast, að líkið hvarf fyrstu nóttina, sem það stóð uppi. Nóttina eftir tók hin danska stúlka á Bessa- stöðum meinsemd mikla, svo . bún mátti engan frið hafa. Dó hún innan þriggja nátta með mestu harmkvælum. Þetta var að áliðnum slætti, þegar nótt var farin að verða dimm. Þess er getið, að kaupa- maður nokkur sunnan af Álfta- nesi, heldur aldurhniginn, fór suður um haustið og fór einn sér. Maður þessi var skyggn og vissi svo mikið frá sér, að hann gat forðað sjálfum sér voða. í rökkrinu reið hann upp Skúteyjar og hafði hest í taumi. Sá hann þá, hvar kven- maður kom á möti honum, 'og þekkti hann þar ekkjuna. Þótti honum hún vera heldur skrefa- drjúg og fasmikil. Þóttist hann sjá, hvað vera mundi, því hann hafði grun á, hvernig á stóð. Hann hopaði hestinum úr göt- unni, en þegar hana ætlaðið að bera fram hjá, segir, hann: „Hvert ætlarðu núna?“ „Að Þingeyrum", segir hún. „Það er ekki svo langt þangað, að ég nái ekki háttum og geti geng- ið til sængur með Þorkeli, því þeir fara * seint að hátta, höfð- ingjarnir. En þú varst hygginn að tálma ekkí för minni, því það hefði hvorugu okkar ver- ið til gagns“. Hið sama kveld, þá er Þorkell gekk til sæng- ur, fannst honum eins og grip» ið utan um sig. Fylgdi því hið harðasta tak. Kvaldist hann svo, að beinin skröptu í skinn- inu, og þóttust menn oft heyra millum kastanna, að hann beiddist vægðar. Við þessi harmkvæli lá hann fram til jóla og andaðist svo. En þó Þorkell yrði ekki langgæðari en þetta, var hann þó hinn fyrsti valdsmaður á Þingeyr- um, og hefur þar jafnan síð- an verið höfðingjasetur. (Úr Sagnakveri Skúla Gislasonar). SKOPMYNDIN Hiwduriiw ei; bezti vinur maunsius! JÓLABLAÐ — 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.