Þjóðviljinn - 24.12.1967, Blaðsíða 63
pund, og það íór allt á maganrs.
Móðirin: Hvernig líður þeim,
— lögreglumönnunum? Slösuð-
wst þeir mikið?
Beggi: O, nei, skollakornið.
Skrámur og marþlettir, heila-
hristingur, taugaáfal. Þeir lifa.
Móðirin: Guði sé lof. Það
hefur þá ekki orðið dauðaslys.
Beggi: Ne' svo slæmt var það
ekki. En mál drengsins er
þrátt fyrir það mjög alvarlegt.
Móðirin: Hann er sjúkur
drengurinn. Hann þyrfti að
komast f annað umhverfi. eða
á sjúkrahús.
Beggi: Ég bjó mig undir þetta
systir mín. Ég á frátekið flug-
far fyrir tvo. Hann verður að
komast inn á stofnun, þar sem
hann getui fengið viðeigandi
meðferð. Svo ekki meira um
það. — Það verður að dempa
dálítið niður þessar ungu upp-
reisnai-hetjur og mannkyns-
frelsara.
Mútta: Að þú skulir tala svona
í viðurvist barna. Ekki nema
það þó. Mannkynsfrelsarar,
þessir ólátabelgir.
Beggi: Jæja, jæja mamma
mín. Þessi ungu mannkynsfrels-
sraefni, sem breyta þarf í
venjulegt fólk.
Mútta: Og telur þú þig þess
umkominn að ráða því hvort
upp komi mannkynsfrelsarar
eða ekki. Þú ættir nú að leggja
niður allan spraðurbassahátt,
þegar þú ert orðinn læknir og
ábyrgur maður.
Beggi: Ja, segja mætti mér
að hér eftir yrðu ekki mann-
kynsfrelsarar á hverju strái,
enda bættur skaðinn. Og þó,
— þó væri kannski tilbreyting
að því að fá svona einn og einn
með nokkurra alda millibili. En
ekki núna, nóg baslið samt.
Nei, mín elskulegu. Ekki núna,
ekki núna.
Mútta: Ösköp er að heyra til
þín drengur.
Beggi (tekur drenginn af
móður sinni): Hvað segir minn
stóri og fallegi frændi? (Dans-
ar með hann um gólfið).
Drengurinn: Bráðum verð ég
eins stór og pabbi minn.
Stjúpinn (hefur tekið fram
vínföng); Einn sjúss læknir?
Beggi: Sannaðu til móðir
mín. Gefðu okkur Dengsa eitt
ár, og hann kemur niður úr há-
loftunum, og verður fyrirmynd-
arbókari. Vandinn er aðeins sá
að hitta á púnktinn. Hleypa
út mátulega miklu lofti.
Mútta: Hættu, hættu. Halda
að hægt sé að minnka eða bæta
lofti í fólk, eins og í bíldekk.
Bannsett fjarstæða. Þetta er
ekki einu siuni fyndið Beggi.
Beggi: Ja, sannaðu bara til.
Dengsi verður kominn niður í
úrvals bókara eftir árið. Sann-
aðu bara til móðir mín.
Stjúpinn: Skál, læknir. (Þeir
skála. Drengurinn fylgist með
af áhuga).
Móðirin: Ég er hrædd um að
Dengsi samþykki aldrei að fara
með þér. Og óframkvæmanlegt
verður að flytja hann nauðugan.
Beggi: Þegar tugthús er á
næsta leiti ætti það að vera
möguleiki. Ég tók með mér
nokkrar töflur til öryggis, ef
hann yrði erfiður. Gætum við
ekki treyst mömmu til að koma
þeim málum í lag. (Fær henni
öskjur). Tvær til fjórar í einu.
Mútta (tekur við öskjunum,
snýr við eins og í vafa): Er
það satt að hægt sé að lækna
fólk af samvizkubiti?
Beggi: Tja, ef til vill mætti
orða það svo.
Mútta: Og óhagkvæmum ást-
artilfinningum?
Beggi (hlær): Ja, því ekki
það.
Mútta (gengur að herbergis-
dyrum): Og getið þið einnlg
gert fólk að aumingjum og
hálfvitum?
Beggi (reiðilega): Við lækn-
um fólk, móðir mín, — lækn-
um fólk.
Mútta (hverfur inn í her-
bergið): Ég þvæ hendur mínar.
Stjúpinn (lyftir glasi): Skál
mágur. (Þeir taka út).
Beggi (Dansar um gólfið með
drenginn, staðnæmist hjá mági
sínum): Þessi verður læknir
þegar hann hefur aldur til.
Stjúpinn: Jæja. A hverju
merkirðu það?
Beggi: Hendurnar mágur.
Jájá hendurnar. (Snýr sér að
drengnum). Er það ekki Satt
frændi. Ætlar þú ekki að verða
læknir þegar þú verður stór?
Drengurinn: Nei. Ég ætla
bara að drekka brennivín eins
og hann pabbi minn. (Þögn,
síðan vandræðalegur hlátur).
Beggi: Ja. Hann var góður
þessi.
Móðirin (tekur drenginn): Nú
skalt þú fara út í garðinh, vin-
ur minn. Kannski sérðu fiigl-
inn sem þú sást í gær.
Drengurinn: Nei nei marbma.
Fuglinn er farinn upp í himin-
inn til pabba síns. (Fer)
Beggi (tekur hatt sinn); Þú
kemur Dengsa á flugvöllinn
klukkan tvö kæri mágur. Ég
verð þar fyrir og tek á móti
honum. (Veifar hendi). Heil og
sæl, sjáumst brátt aftur.
Þau: Vertu sæll og góða
ferð. (Þau fara af sviðinu.
Sviðið er autt).
Endurtekning frétta.
Unglingaóeirðir brutust út í
nótt. Mörg hundruð unglingar
æddu um borgina, frömdu
skemmdarverk, og höfðu í
frammi ósiðlegt athæfi á al-
mannafæri. Nokkrir lögreglu-
menn slösuðust, og ýmsir veg-
farendur urðu fyrir hnjaski. ÖI-
æði var með mesta móti. AUar
fangageymslur lögreglunnar yf-
irfullar, og átta bifreiðastjórar
teknir úr umferð vegna ölvun-
ar við akstur. Innbrot voru
framin á þrem stöðum og stolið
peningum og verkfærum. Er-
lendar fréttir. Hemaðarátök
hafa verið með mesta móti nú
yfir helgina í Vietnam, enda
nýbúið að fjölga allverulega í
bandaríska hernum. Talið er að
um sjö hundruð skæruliðar hafi
mwfILL
Sími 22-4-22
ER STÆRSTA BIFREIÐA-
STÖÐ LANDSINS.
HREYFILL veitir yður þjónustu allan
sólarhringinn.
TALSTÖÐVARNAR í bifreiðum vorum
gera kleift, að hvar sem þér eruð stadd-
ur í borginni er HREYFILS-bíll
nálægur.
Þér þurfið aðeins að hringja í síma
22-4-22
WRCVFILL
Samvinnuverzlun
tryggir sannvirði
Þökkum félagsmönnum vorum ánægju-
legt samstarf á árinu, og óskum þeim og
öllum viðskiptavinum vorum
gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
KAUPFÉLAG
TÁLKNAFJARDAR
Sveinseyri.
JÓLABLAÐ — 63