Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Page 12
i2 erlend bóksjá LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 JjV Osýnileg hetja og hetjulegur prins Metsölukiljur 1 ••••••••••••##< Bretland Skáldsögur: 1. John Grisham: The Ralnmaker. 2. Kate Atklnson: Behlnd the Scenes at the Museum. 3. Davld Guterson: Snow Falllng on Cedars. 4. Irvlne Welsh: Tralnspottlng. 5. George Dawes Green: The Juror. G. James Patterson: Klss the Glrls. 7. Anne Tyler: Ladder of Years. 8. Mlchael Rldpath: Free to Trade. 9. Pat Barker: Regeneration. 10. Colln Forbes: Fury. Rit almenns eölis: 1. Wlll Hutton: The State Welre In. 3. Alan Bennett: Wrltlng Home. 4. Andy McNab: Bravo Two Zero. 5. Nelson Mandela: Long Walk to Freedom. 6. Ranfurly: To War with Whltaker. 7. Jung Chang: Wild Swans. 8. Brlan Lowry: The Truth Is Out There. 9. S. Blrtwlstle & S. Conklln: The Making of Prlde and Prejudice. 10. J.Redfield & C. Adrienne: The Celestine Prophecy Experlential Gulde. (Byggt á The Sunday Tlmes) Danmörk 1. Jane Austen: Fornuft og folelse. 2. Jung Chang: Vllde svaner. 3. Llse Norgaard: Kun en plge. 4. Nat Howthorne: Den flammende bogstav. . Terry McMlllan: ndenod. 6. Use Norgaard: De sendte en dame. 7. Peter Hoeg: De máske egnede. (Byggt á Polltlken Sondag) vísindi Tveir afar ólíkir rússneskir rit- höfundar, karl og kona, hafa nýve- riö fallið í valinn. Konan hlaut eftir- mæli sem hin ósýnilega hetja rússneskrar ljóðlistar á öldinni. Karlinum var lýst sem samblandi hetjulegs prins og hungraðs baráttu- manns. Bæði máttu þau þola miklar ofsóknir af hálfu sovéska kerfisins. Ósýnilega hetjan hét Lydía Chukovskaja. Hún var 88 ára að aldri þegar hún lést fyrr í þessum mánuði - fæddist 24. mars árið 1907, heilum áratug fyrir byltingu komm- únista. Hún var því af kynslóð þeirra skálda sem mestu skipta i rússneskri ljóðlist á öldinni. Nægir þar að nefna Pasternak, Mandel- stam og Akhmatovu. Trúnaðarvinur Akhmatovu Nöfn Lydíu Chukovskaju og Önnu Akhmatovu eru tengd órjúf- anlegum böndum. Þær urðu báðar fyrir barðinu á ógnarstjórn Stalíns en sú sameiginlega lífsreynsla færði þær einmitt saman í upphafi. Þegar Lydía stóð á þrítugu, árið 1937, var eiginmaður hennar hand- tekinn af sovésku leyniþjónustunni á heimili þeirra i Leningrad; hann var drepinn ári síðar. Hún hefur lýst þessum ógnartímum í skáldsög- unni Sofia Petrovna sem var gefin út á ensku árið 1967 undir heitinu The Deserted House. Um sama leyti og eiginmaður Chukovskaju hvarf handtók leyni- lögreglan son Akhmatovu. Lydía frétti að Anna hefði farið til Kreml- ar með bréf til Stalíns og þannig náð að fá son sinn lausan. Hún fór að heimsækja þessa hugrökku konu og það var upphaf einlægrar vináttu Joseph Brodsky fékk nóbelsverð- launin árið 1987. Umsjón Elías Snæland Jónsson sem m.a. tryggði síðari kynslóðum aðgang að ljóðum Akhmatovu sem Lydía lærði utan að þar sem ekki var þorandi á þeim tíma að skrifa þau á blað og einstæðum frásögnum af samskiptum þeirra tveggja gegn- um tíðina með dagbókum sem Lydía skráði og hafa verið að birtast í bókarformi síðustu árin. Chukovskaja barðist óhikað fyrir öðrum skáldum sem sovéska kerfið ofsótti og veitti til dæmis Alexander Solzenitsyn húsaskjól þegar hann átti hvergi athvarf til að semja bæk- ur sínar um sovéska gúlagið - en það varð til þess að hún var hrakin úr rússneska rithöfundasamband- inu. Fyrir hugrekki sitt og merki- legt ævistarf fékk Lydía fyrst allra Shakarov- verðlaunin sem nefnd eru eftir andófsmanninum kunna og efnt var til skömmu eftir fall Sov- étríkjanna. Rússneskur Bandaríkjamaður Nóbelsskáldið Seamus Heaney sagði eitt sinn um Joseph Brodsky, sem andaðist nýverið á heimili sínu í New York aðeins 55 ára að aldri, að hann væri í senn hetjulegur prins og hungraður bardagamaður. Brodsky, sem fæddist árið 1948 í Leningrad, var útlagi í eigin landi löngu áður en hann var gerður brottrækur frá Sovétríkjunum árið 1972. Hann fann snemma fyrir of- sóknum fyrir að vera af gyðingaætt- um, sagði sig úr skóla fimmtán ára og hafði upp frá því einkum félags- skap af listrænum utangarðsmönn- um uns hann var handtekinn og dæmdur til þrælkunarvinnu sem „félagslegt sníkjudýr“ árið 1964. Mál hans vakti athygli á Vesturlöndum og hann slapp því út aftur eftir tvö ár en var áfram ofsóttur af sovésk- um stjórnvöldum. Brodsky var snemma afar hrifinn af ljóðum W.H. Audens. Sú aðdáun var gagnkvæm og Auden kom Brod- sky til hjálpar þegar honum var vís- að úr landi, útvegaði honum styrki og starf í Ameríku. Þar vegnaði Brodsky vel og gerðist bandarískur ríkisborgari. Ljóð hans. ritgerðir og minningarbrot birtust á ensku og öfluðu honum viðurkenningar, þar á meðal bókmenntaverðlauna Nóbels. Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. John Grlsham: The Ralnmaker. 2. Robln Cook: Acceptable Rlsk. 3. Davld Guterson: Snow Falllng on Cedars. 4. Julle Garwood: For the Roses. 5. Barbara Delinsky: Together Alone. 6. Terry McMillan: Waltlng to Exhale. 7. LaVyrie Spencer: Home Song. 8. Stanley Pottlnger: The Fourth Procedure. 9. Richard North Patterson: Eyes of a Chlld. 10. Jane Austen: Sense and Senslbility. 11. Robert James Waller: Border Muslc. 12. James Patterson: Klss the Girls. 13. P.D. James: Orlglnal sln. 14. Tami Hoag: NightSins. 15. Fern Michaels: Wish Llst. Rit almenns eölis: 1. Mary Plpher: Revivlng Ophelia. 2. Helen Prejean: Dead Man Walklng. 3. Rlchard Preston: The Hot Zone. 4. Thomas Moore: Care of the Soul. 5. B.J. Eadie & C. Taylor: Embraced by the Light. 6. Doris Kearns Goodwin: No Ordinary Tlme. 7. M. Scott Peck: The Road Less Traveled. 8. Butler, Gregory & Ray: Amerlca's Dumbest Crimlnals. 9. Nicholas Negroponte: Being Dlgital. 10. Clarlssa Plnkola Estés: Women Who Run with the Wolves. 11. Delany, Delany & Hearth: Havlng Our Say. 12. Brian Lowry: The Truth Is out there. 13. Laurie Garrett: The Coming Plague. 14. Tlm Allen: Don't Stand to Close To a Naked Man. 15. Paul Relser: Copplehood. (Byggt á New York Times Book Revi- ew) Trefjar draga úr áföllum Karlmenn sem fá mikið af treíjum í mataræði sínu eru ekki í eins mikilli hættu á að fá hjartaáfall og þeir sem fá litið af trefjum. Þetta eru niðurstöður rann- sóknar heilsugæsluskólans við Harvard háskólann í Bandaríkj- unum. Vísindamenn fylgdust með rúmlega 43 þúsund körlum á aldrinum 40 til 70 ára og komust að því að líkur þeirra sem mestra trefla neyttu á því að fá hjartaá- fall voru helmingi minni þeirra sem minnst fengu. Þá kom í ljós að trefjar úr kornmeti gerðu meira gagn en trefjar úr ávöxtum og grænmeti. Kaffineysla er í lagi Kaffineysla er ekki meðal helstu ástæðna fyrir kransæða- sjúkdómum meðal bandarískra kvenna, segja vísindamenn í Boston sem rannsökuðu lækna- skýrslur rúmlega 85 þúsund hjúkrunarkvenna yfir tíu ára tímabil. Tilgangurinn rannsókn- arinnar var að kanna hvort tengsl væru milli kaffidrykkju og hjartasjúkdóma. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að á tímabilinu 1980 til 1990 fækkaði þeim hjúkrunarkonum sem drukku fjóra kaffibolia eða fleiri á dag úr fjórðungi hópsins í eina af hverjum níu. Umsjón Guðlaugur Bergmundsson Svefnmunstur manns og íkorna ekki ósvipuð AUir kannast við hversu erfitt það getur verið að koma sér fram úr á myrkum vetrarmorgnum. Rann- sóknarniðurstöður visindamanna hafa líka sýnt fram á að náttúrulegt svefnmunstur mannsins er ótrúlega líkt því sem gerist hjá til dæmis íkornum. kindum og öðrum dýrum sem sofa lengur á veturna. Bandarískir vísindamenn gerðu tilraunir þar sem svefn og líf- eðlisfræði líkama tilrauna- dýranna voru skoðuð við tilbúin birtuskilyrði þar sem líkt var eftir sumri og vetri. í tilraunastofunni var fyrstu vikuna líkt eftir venjulegri sum- amótt eins og þær ger- ast á suðlægari breidd- argráðum en á íslandi, þar sem myrkur varir í átta klukkustundir. Eftir tveggja vikna hlé var líkt eftir vetrarskilyrðum, þ.e. myrkri í fjórtán klukkustund- ir, og var ekkert tilbúið ljós not- að. Það kom svo í ljós að þátttakend- ur í tilrauninni sváfu dýpri svefni í „sumarvikunni“ en svefninn var mun léttari við vetrarskilyrðin. Sumarnætursvefninn varði ná- kvæmlega í þá átta tíma sem dimmt var en við vetrarskilyrðin var allt að fimm klukkustunda tímabil um miðja nóttina þar sem tilraunadýrin sváfu mjög létt. Heilabylgjurnar á þessum tíma líkjast mjög því sem gerist þegar maður stundar íhugun og, merki- legt nokk, er svefnmunstur íkorn- ans mjög áþekkt. Hann sefur lengur á veturna og um miðjar nætur er tímabil þar sem dýrið sefur laust. Vísindamennirnir telja að þess konar vetrarsvefnmunstur sé mann- inum eðlilegt og þannig hafi það verið í upphafi. Notkun raflýsingar þýði að við fáum ekki nægilegan svefn á veturna. Þar af leiðandi erum við ekki eins úthvíld þegar við förum á fætur á morgnana og við ættum að vera. Þátttakendur í bandarísku svefntilrauninni, sem gerð var á vegum geðheilbrigðis- stofnunarinnar þarlendu, voru miklu úthvíldari og fyllri orku eftir að hafa prófað að sofa langar vetrar- nætur án þess að brúka ljós, en eft- ir átta tíma sumarsvefn. Aðrar merkilegar breytingar sem urðu hjá tilraunasofendum á ,vetrartímabilinu“ voru m.a. hækkun líkamshitans um 0,2 til 0,3 gráður á selsíus. Að sögn vísindamann- anna þýðir þetta lífeðlis- fræðilega aðlögun að birtusnauðum og köld- um vetrarnóttum, nokkuð sem hefur ver- ið forfeðrum okkar ákaflega mikilvægt. Á myrkurskeiðinu varð einnig varð vart við um- talsverða aukningu vaxtar- hormóns í líkamanum, auk meira magns mjólkurmyndun- arhormónsins prólaktíns og hormónsins melatóníns. Þetta er túlkað sem frekari vísbendingar um að notkun tilbúins ljóss hamli eðli- legum vetrarbreytingum á lífeðlis- fræði líkamans, sem urðu hjá raf- magnslausum forfeðrum okkar. Könnun sem gerð var á svefnvenj- um tæplega eitt þúsund Svisslend- inga staðfestir niðurstöður banda- rísku rannsóknarinnar um meiri svefnþörf yfir veturinn. Hákarlar án skolta Breskir vísindamenn hafa | fundið steingervðar leifar af elsta hákarlinum sem vitað er um og bendir allt til þess að hann hafi ekki verið með skolta eins og há- karlarnir sem við þekkjum í dag. Steingervingar þessir fundust vestur í Kólóradó i Bandaríkjun- | um og eru frá orvódísíumtímabil- inu sem byrjaði fyrir 500 milljón árum en lauk fyrir 435 milljón I árum. Það mun sanna að hákarl- 1 ar séu 25 milljón árum eldri en talið var. „Við höfum það á tilfinning- unni að þessir hákarlar hafi ekki verið með skolta og að þannig hafi fyrstu hákarlamir veriö,“ segir Ivan Sansom við háskólann 1 í Birmingham. Þess í stað kunna hákarlar að hafa litið ekki ósvipað út og fisk- urinn steinsuga, með sogmunn með göddóttum tönnum. Eitur af ýmsum gerðum Eiturslöngur geta gefið frá sér mismunandi eitur, allt eftir því hver bráðin er sem þær ráðast á. Það voru vísindamenn við Wales- háskóla sem komust að þessari ; niðurstöðu og sögðu hana kunna að vera mikilvæga fyrir lækna sem leita leiða til að fást við fórn- I arlömb snákabits. Vísindamennirnir söfnuðu saman 70 eitursnákum sem lifa í Malasiu og eru þekktir fyrir að bita fleira fólk í Suðaustur-Asíu en nokkur önnur snákategund. Þeir sundurgreindu síðan eitrið og hvaö snákarnir átu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.