Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.02.1996, Síða 25
LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1996 25 I I i I I I > > > > i I „Ég var orðinn háður „spíttinu" og það gekk alltaf meira á mig. Ég tærðist meir og meir upp og var orðinn grindhoraður. Djammið rann út í eitt og var ekki tengur bundið við helgarnar. Oft kom fyrir að ég svaf ekki í marga daga, hvað þá að ég borðaði eitthvað." stundum að selja fyrir þá. Þannig gat ég fjármagnað eigin neyslu um tíma. Ég reyndi að halda mér í vinnu en hélst illa á þvi sem ég tók mér fyrir hendur. Ég reyndi stöðugt að hætta þessu liferni og verða edrú en það gekk frekar illa. Mér fannst ég ekki vera alveg húinn að fá nóg af dópinu og þurfti alltaf að prófa aftur. Ég hélt jafnvel að ég gæti náð stjórn á sukkinu. Oft sagði ég við sjálfan mig að þetta yrði í síðasta sinn sem ég fengi mér í nefið eða i pípu. Það tókst bara aldrei að hætta þessu ógeði. Það var ekki fyrr en fyrir tæpum tveimur árum að ég loks náði mér út úr neyslunni. Ég hef farið í nokkrar meðferðir með misjöfnum árangri og ég vona að ég þurfi ekki á þeim að halda í framtíðinni. Mig hryllir við þessu líferni og þakka Guði fyrir að hafa sloppið." Stórsmyglararnir aldrei teknir „Ég leit aldrei á mig sem ein- hvern stórsmyglara heldur var þetta svo til eingöngu til að fjár- magna eigin neyslu. Svo fékk mað- ur utanlandsferð í kaupbæti. Stórsmyglararnir hafa þetta að at- vinnu og fyrir suma eru fíkniefna- smygl og sala hrein og klár við- skipti. Viðskipti sem gefa af sér milljónir í skjótfengnum gróða. Fangelsisdómar koma aldrei til með að stöðva fíkniefnasmygl og fíkniefnaneyslu. Menn passa sig bara betur og láta aðra taka alla áhættuna. Þeir menn sem standa í stórsmyglinu eru sjaldan teknir. Þeir fá alltaf einhvern annan til að smygla fyrir sig og taka litla áhættu sjálfír. Burðardýrin taka á sig sök- ina ef þau eru tekin. Margir eru jafnvel fegnir yfir að vera settir I fangelsi og nota tímann til að byggja sig upp, aðeins til þess að geta hellt sér aftur i neysluna af endumýjuð- um krafti. í dag er þetta þannig að maður borgar bæði fyrir efnið og flutning- inn til íslands. Það eru því mest- megnis erlendir aðilar sem smygla eiturlyfjum til íslands um þessar mundir. Ég fékk aldrei samviskubit yfir því að selja öðrum dóp. Ég var á fullu í þessu sjálfur, fársjúkur og fannst þetta sjálfsagður lífsstíll. En þó reyndi ég aldrei að troða dópinu inn á þá sem ekki vildu.“ Ekkert nema sprautur og blóð „Fíkniefnaheimurinn getur verið mjög harður en ég gerði hvað ég gat til að sneiða hjá öllu veseni. Ég fór aldrei inn í dýpsta geirann í fíkni- efnaheiminum, þar sem liðið sprautaði sig. Ég sá ákveðinn pytt fyrir framan mig sem var þessi ógeðslegi sprautuheimur. Það eina sem kemst að i þeim heimi er að út- vega sér næstu sprautu. Menn eru haldnir það miklu of- sóknarbrjálæði að margir eru ávallt vopnaðir til að verjast hugsanlegum óvinum. Þannig að mikið er af vopnum í hinum harða sukkgeira og þessi heimur er alltaf að verða harðari og harðari. Margir af þeim sem sukkuðu með mér, og eru enn að sukka, eru orðnir vel geggjaðir í dag. Það er hryllilegt að horfa upp á hversu sjúkir þeir eru orðnir. Venjulegt fólk sér sjaldan þessa einstaklinga því þeir liggja í hálf- gerðum dvala á daginn og koma ekki út nema á nætumar. Það er undantekning ef þetta fólk fer á skemmtistaði. Það hangir frekar í hinum fjölmörgu grenjum sem finn- ast um alla Reykjavík. Ég hef nokkrum sinnum komið inn í svona greni. Ekki er hægt að ímynda sér hversu ógeðsleg þau geta verið. Ekkert nema sprautur og blóð, allir að „junka sig“ og mjög harður mórall í gangi. Ég varð skíthræddur um að verða eins og þetta fólk og aldrei að vita nema ég hefði endað þarna ef ég hefði haldið sukkinu áfram. Því að sá sem notar dóp í langan tíma og missir sig út í neysl- una, hann endar alltaf með nál í handleggnum. Ég hefði gert það fyrr eða síðar, það er alveg öruggt. Flestir sprautufíklamir eru löngu búnir að gefa upp alla von um að komast út úr þessu. Þeir eru búnir að missa alla lífslöngun og sjá bók- staflega ekkert ljós fram undan í líf- inu. Ég þekki nokkra sem hafa bjargað sér út úr þessu ömurlega lífi og þeir eru að mínu mati ekkert annað en gangandi, lifandi krafta- verk.“ Guðbjartur Finnbjörnsson Fjórði og síðasti kepp- andi í spurningakeppni DV sem kemst í vitr- ingahópinn, Sigurður Magnússon, fræðslu- fulltrúi íþróttasambands íslands, var verðlaunað- ur í vikunni fyrir afrekið. Á myndinni má sjá Jónas Haraldsson fréttastjóra afhenda honum bókina Híbýli vindanna eftir Böðvar Guðmundsson. Bókin er gefin út af Máli og menningu og var til- nefnd til Islensku bók- menntaverðlaunanna. DV-mynd GVA ffsm-2 . i..................................................i LISTIIi - á Bylgjunni laugardaga kl. 16-19 -i'slenskt, já takkl að nú er vor í íslensku þjóðlífi og sóknarfærin hafa aldrei verið fieiri. Brýnt er að halda áfram þeirri vakningu sem orðið hefur meðal þjóðarinnar á liðnum árum og halda við umræðunni um mikilvægi þess að efla það sem íslenskt er. Að þessu sinni standa íslenskirdagaryfir frá 19. febrúar til I. mars. Yfirskrift þeirra er Hrein náttúra - íslensk framtíð en með því er vísað til mikiivægis þess að ísland skapi sérsérstöðu meðal þjóðanna. Sú sérstaða felst ekki hvað síst í því að afurðir okkar eru hreinar og ómengaðar -beint úrnáttúrunni. Dagskrárgerðarfólk Stöðvar 2 og Bylgjunnar ieggur sitt af mörkum á jMMflHHH^H íslenskum : rflnÉlH dögum. M argrét Þorgeir Ástvaldsson í Morgunþcetti Að hætti Sigga Hall

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.