Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Page 2
2
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997 DV
fréttir
Stjórnarformaður íslenskrar getspár:
Vill sameina Get-
spá og Getraunir
- eða auka samrekstur fyrirtækjanna
„Það hefur verið ákveðin sam-
vinna milli íslenskra getrauna og
íslenskrar getspár í langan tíma
sem bæði fyrirtæki hafa haft hag
af. Mér fmnst því eðlilegt að athuga
ítarlega hvort ekki eigi að stíga
skrefið til fulls og sameina fyrir-
tækin eða auka samreksturinn,"
sagði Sigurbjöm Gunnarsson,
stjórnarformaður íslenskrar get-
spár, við DV. Á aðalfundi fyrirtæk-
isins, sem haldinn var í fyrradag,
varpaði hann fram ofangreindri
hugmynd.
íslensk getspá er í eigu Ung-
mennafélags íslands, íþrótta- og
Ólympíusambands íslands og Ör-
yrkjabandalagsins. Fyrirtækið rek-
ur lottóið og Víkingalottóið. Is-
lenskar getraunir eru í eigu ríkis-
ins en reknar af ÍSÍ, UMFÍ og
íþróttanefnd ríkisins. í stjóm fyrir-
tækisins eiga einnig sæti fulltrúar
frá KSÍ og ÍBR. Getraunir reka
Lengjuna og 1x2.
Samvinna fyrirtækjanna er í því
fólgin að Getspá leigir Getraunum
aftiot af sölukerfi sínu.
„Þó að stórum hluta séu það
sömu aðilar sem reka þessi tvö fyr-
irtæki þá er að ýmsu að hyggja áður
en hægt yrði að gera þetta. En ég
lýsti því yfir á aðalfundinum að ég
teldi fulla ástæðu til að íhuga það
alvarlega. Það yrði beggja hagur að
sameina reksturinn eða hagræða
honum á annan hátt. Ég geri ráð
fyrir að þessari umræðu verði hald-
ið áfram nú. Ef þetta verður gert
veröur það í sátt og samlyndi allra
sem eiga hlut að máli.“
Sigurbjöm sagði að afkoma Get-
spár hefði verið góð á síðasta
rekstrarári. Heldur hefði þó dregið
saman í rekstrinum en það mætti
alltaf búast við hæðum og lægðum.
Tekjuafgangur hefði nú verið 325
milljónir. Ráðstafað hefði verið til
eignaraðila 334 miiljónum króna.
-JSS
Ákærandi í Heiðmerkurmálinu telur sök tvíburanna liggja ljósa fyrir:
Ásetningsmanndráp
Þórir Oddsson, ákærandi í Heið-
merkurmálinu, þar sem tvíburum
er gefið að sök manndráp af ásetn-
ingi, sagöi í sóknarræðu sinni í lok
réttarhalda í gær að lögfullar sann-
anir hefðu komiö fram um að þeir
hefðu báðir ætlaö að bana Lámsi
heitnum Lámssyni aðfaranótt ann-
ars október. Þórir sagði að bræð-
urnir Sigurður og Ólafur Hálfdánar-
synir hefðu átt jafnan hlut aö sök -
þeir hefðu í sameiningu yfirbugað
manninn og ráöið honum bana.
í dómsalnum
Óttar Sveínsson
Annar ekki talinn andlega
heill
í réttarhaldinu í gær kom fram
hjá Hannesi Péturssyni geðlækni að
hann teldi ekki að fangelsisrefsing
kæmi að gagni hvað varöar Sigurð
sem ekki er talinn andlega heill á
Tvíburarnir þegar þeim var birt ákæra
geösmunum. Öm Clausen spurði
geðlækninn m.a. að því hvort hægt
væri að líta á athæfi Sigurðar, sem
lét 13 kílóa stein falla á höfuð fóm-
arlambsins, þannig að honum hefði
í raun ekki verið sjálfrátt vegna
andlegs ástands hans. Hannes kvað
svo vera enda væru viðbrögö manns
með andlegan sjúkdóm eins og Sig-
urður væri með gjaman fyrirvara-
laus og hann ætti erfitt með sjálf-
stjóm.
Þessi svör vekja upp vangaveltur
um hvort hinn fjölskipaði dómur
Héraðsdóms Reykjaness muni
dæma Ólaf, sem er sakhæfur, í fang-
elsi en bróður hans til vistunar á
viðeigandi stofnun sem myndi þá
verða réttargeödeildin að Sogni.
9,5 milljóna bótakrafa
í sóknarræðunni kynnti Þórir sækj-
andi persónulegar bótakröfur ekkju
Lárusar heitins auk bama þeirra á
hendur tvibumnum - 9,5 milljónir
króna. Reikna má með að dómurinn
fallist a.m.k. á hluta þeirra.
Ljóst er að það vom tvíburarnir
einir og að því er fram hefur komið
báðir sem bönuðu Lárusi. Þeir em
aðallega ákærðir fyrir manndráp af
ásetningi. Réttarhöldin hafa hins
vegar að hluta til snúist um hvort
hægt sé að sakfella þá fyrir stórfellda
líkamsárás sem leiddi til dauða.
Ákæmvaldið hafnar slíkum
vangaveltum enda hafi Sigurður
m.a. látið umræddan stein falla á
manninn auk þess sem Ólafur ók bíl
yfir hann - eftir að hann varð reið-
ur og uppgötvaði að bræðurnir
höfðu aðeins samtals 8 þúsund
krónur upp úr þessu óhugnanlega
vegna manndrápslns í Heiðmörk.
ráni sem hafði framangreindar af-
leiðingar.
Reyndu ekki að hjálpa deyj-
andi manni
Þórir sagði að bræðumir hefðu í
sameiningu ætlað að ræna manninn
og atlaga þeirra hefði verið fjölþætt
til að yfirbuga manninn.
„Þetta var einungis til þess falliö
að bana manninum," sagði Þórir.
Hann varpaöi síðan fram spuming-
um þegar hann lýsti því hvernig
bræðumir bám sig að eftir að Ólaf-
ur hafði sparkað í höfuð mannsins
og Sigurður lét steininn falla á
hann:
„Reyndu þeir þá að veita mannin-
um bjargir? Nei, þeir rændu vesk-
inu hans og óku síðan yfir hann,“
sagði Þórir Oddsson.
Dóms er að vænta innan þriggja
vikna.
Grétar Guðmundsson festir hér hjálm á styttu af víkingi sem stendur við
Strandgötuna í Hafnarfirði. Hjálmi víkingsins var stolið á vfkingahátíð-
inni í Hafnarfirðl i sumar sem leið en nú hefur Grétar séð til þess að vík-
ingurinn er kominn með höfuðskraut sitt á nýjan leik. DV-mynd ÞÖK
stuttar fréttir
Loðnuveiði glæðist
Svo virðist sem loðnuveiðin
sé að glæðast I gær var flotinn
um 60-70 mílur norður af
Sléttu og þar vom skipin að fá
allt að 150 tonna köst.
Heildaraflinn á vertíðinni í
gær nam um 462 þúsund tonn-
um og vora þá óveidd um 95
þúsund tonn
Laugavegur lagaður
Borgarráð hefur ákveöið að
fara í endurbætur
á Laugaveginum,
frá Vitastíg að Bar-
ónsstíg, sambæri-
legar þeim sem
þegar hafa verið
gerðar að Vitastíg.
Reiknað er með 30 bílastæðum á
þessum kafla.
Óku of hratt
Lögreglumenn á Dalvík og í
Ólafsfirði tóku sjö ökumenn
fyrir að aka of hratt á þjóðveg-
inum frá Ólafsfirði og hálfa
leiö inn á Akureyri seinni part
dags í gær. Sá sem hraðast ók
mældist á 134 km hraða.
Árekstur í Ólafsvík
Tveir fólksbílar skullu
harkalega saman á gatnamót-
um í Ólafsvík í gær. Báðir bíl-
amir vom óökufærir á eftir.
Minni háttar meiðsl urðu á
fólki.
Liðsauki í Leiftur
Knattspyrnliðið Leiftur á
Ólafsfirði endurheimti í gær
Pál Guðmundsson
sem lék með
norska liöinu
Raufoss á þessu
ári. Páll samdi við
Leiftur til tveggja
ára og þaö sama
gerði Arngrímur Amarson,
bráðefnilegur sóknarmaður frá
Húsavík.
Mikið um árekstra
Mikið var árekstra í höfuð-
borginni i gær. Lögreglan
sagöi ástæðuna eflaust góða
veðriö, akstursskilyröin og of
mikinn hraða. Ekki var vitað
um slys á fólki í þessum óhöpp-
um.
Ekki með í Kyoto
Hjörleifur Guttormsson al-
þingismaður segir útlit fyrir að
íslendingar verði
ekki aöilar að
lokasamþykkt
fundar í Kyoto um
takmörkun út-
blásturs gróður-
húsalofttegunda.
Hann segir að þetta geti leitt til
þess að málflutningur íslend-
inga um umhverfismál verði
ótrúverðugur. Bylgjan sagði
frá.
Hafnfirðingar með
Vegasmálið
Ríkissaksóknari hefur falið
Guðmundi Sophussyni, sýslu-
manni i Hafnarfirði, að annast
kæru nektardansmeyjar á
hendur Haraldi Böðvarssyni,
eins eiganda Vegasar. Lög-
reglustjórinn í Reykjavík fór
þess á leit aö öðra embætti
yrði falin rannsókn málsins
vegna skyldleika síns við Har-
ald.
Hilmir Snær
í aðalhlutverk
Hilmir Snær Guðnason hef-
ur verið ráðinn í aðalhlutverk-
ið í kvikmynd Hrafns Jökuls-
sonar, Myrkrahöföingjanum.
Myndin segir sögu séra Jóns
Magnússonar sem uppi var á
17. öld. Áætlað er að upptök-
umar á myndinni hefjist í lok
janúar nk.