Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997
Qtlönd
Ríkir verða ríkari
Ríkir Svisslendingar veröa
sífellt ríkari, ef marka má nýja
könnun. Ríkidæmi hinna 100
ríkustu jókst um rúmlega þrjú
þúsund milljarða íslenskra
króna, eöa um 30 milljarða
króna hjá hverjum og einum.
Búist er við 20 þúsund manns
til smábæjarins Climax I Georg-
íu um helgina til að taka þátt í
; svínainnyflaáti.
Santer pirrar
Jacques Santer, forseti fram-
kvæmda-
stjórnar Evr-
ópusam-
bandsins, hef-
ur reitt
danska
stjórnmála-
menn til reiði
með ummæl-
um sínum
þar sem hann varaði Dani við
því að hafna Amserdamsátt-
mála ESB í þjóðaratkvæða-
greiðslu á næsta ári.
Ælupoki verðlaunaður
Svæfingalæknir í Stokkhólmi
fékk nýsköpunarverðlaun borg-
arinnar fyrir ælupoka sem
hægt er að loka eftir notkun.
33 dæmdir til dauða
Tyrkneskur dómstóli dæmdi
33 múslíma til dauða í gær fyr-
ir þátttöku í uppþotum bók-
stafstrúarmanna árið 1993 þar
sem 37 týndu lífi.
El Nino veldur usla
Illviðri sem Kyrrahafs-
straumnum E1 Nino er kennt
um hafa valdið miklum usla í
Afríku austanverðri, bæði flóð-
um og þurrkum og skemmt
uppskeru.
Til í slaginn
Tony Blair, forsætisráöherra
Bretlands, lét
að því liggja í
gær að hann
væri reiðubú-
inn að láta
breskar frið-
argæslusveit-
ir dvelja
áiram í Bosn-
íu til að klára
verkið sem þær hefðu hafið.
Blair var í heimsókn í Bosníu í
gær.
Átök í Kinshasa
Sex manns týndu lífi í átök-
um andstæðra fylkinga innan
hers Kongó í höfuðborginni
Kinshasa í gær.
Sprengjur í Kólumbíu
Tvær bílasprengjur ollu
miklum skemmdum í kól-
umbisku borgunum Cartagena
og Medellin snemma í gær-
morgun. Fjórir særðust.
Minna atvinnuleysi
Heldur dró úr atvinnuleysi í
Frakklandi í október, annan
mánuðinn í röö. Sumir hag-
fræðingar telja að hagvöxtur sé
loks orðinn það mikill að kom-
ið verði í veg fyrir frekari fjölg-
un atvinnulausra.
Sjö anda sjálfir
Sjöburarnir sem fæddust í
Iowa í Bandaríkjunum á dögun-
um eru nú allir lausir úr öndun-
arvél. Sá síðasti losnaöi í gær.
Reiknað er með að þeir verði á
sjúkrahúsi fram í janúar.
Sagði af sér
Inder Kumar Gujral, forsæt-
isráðherra
Indlands,
sagði af sér í
gær í kjölfar
þess að Kon-
gressílokkur-
inn hætti
stuðningi við
samsteypu-
stjóm hans.
Stjómin hafði þá verið viö völd
í sautján mánuði. Reuter
mmmmmxsmmmmmmmammmmmm
Viktoría Svíaprinsessa er sárþjáö af lystarstoli:
Borðar ekkert
vegna álagsins
DV, Ósló:
Viktoría Svíaprinsessa þykir ekki svipur hjá sjón. Hún hefur horast mjög aö
undanförnu vegna sjúkdómsins lystarstols. Slmamynd Reuter
Fréttin kom ekki á óvart en samt
er því lýst sem miklu áfalli fyrir
sænsku þjóöina að Viktoría erfða- ,
prinsessa er sjúk og hefur barist við
lystarstol allt frá því í vor. Nýjar
myndir sýna að hún er upptálguð og
verður að fara í meðferð til að vinna
bug á sjúkleika sínum. i
Undanfarna daga hafa verið upþi
efasemdir um að Viktoría gengi heil
til skógar. í gær kom svo staðfest-
ingin. Talsmaður hirðarinnar í
Stokkhólmi sagði að prinsessan ætti
erfitt með að nærast en ekki var
greint hvað að henni gengi. Síðan
hafa sérfræðingar staðfest að um
lystarstol - anorexíu - er að ræða.
„Með réttri meðferð ætti Viktoría
aö geta náð sér af veikindunum. Það
er nú orðin góð reynsla fyrir að
lækna lystarstol þótt það geti tekiö
tima,“ er haft eftir Runi Börresen
Gresko, einum helsta sérfræðingi
Norðurlanda i lystarstoli.
Sjúkleiki Viktoríu er rakinn til
álagsins sem hún hefur orðið fyrir í
ár. Frá þvi í vor hefur athygli fjöl-
miðla beinst mjög að vaxtarlagi
hennar en slíkt getur kallað fram
sjúklega höfnun á mat. Erfiðleikarn-
ir byrjuðu með sólarferð til Frakk-
lands og síðan hefur hún verið þar
við nám í frönsku og nær ekkert
borðað.
Þá er og mikið álag á Viktoríu
vegna þess að hún er að hefja form-
legan undirbúning sinn sem Svía-
drottning. Stjómmálafræði er helsta
námsgreinin, auk frönskunnar, og
verðandi þjóðhöfðingi verður að
sýna styrk sinn í námi. Viktoría er
yfirburðanámsmanneskja og fékk
hæstu einkunn í nær öhum grein-
um á stúdentsprófi í vor. Nú verður
hún að standa sig við háskólanám
þar sem öll þjóðin fylgist með.
Það veldur miklum áhyggjum í
Svíþjóð að Viktoría þjáist af sama
sjúkdómi og Díana heitin Breta-
prinsessa barðist við i mörg ár. Það
er auðvelt að bera þær tvær saman:
báðar óvenjuglæsilegar og hundelt-
ar af fjölmiðlum.
Krafan um fuUkomnun til líkama
og sálar er oft eina sýnilega orsökin
fyrir aö ungar konur fá lystarstol.
Sjúkdómurinn er andlegur og getur
leitt til hungurdauða ef ekkert er að
gert. -GK
Fjöldamorðingja leitað:
Móðursýki ríkir í París
Móðursýki hefur gripið um sig í
París í kjölfar tilkynningar lögregl-
unnar um að hún leiti nú logandi
ljósi að raömorðingja sem grunaöur
er um að hafa myrt þrjár konur á
heimilum þeirra með því að skera
þær á háls. Þó ekki fyrr en hann er
búinn að nauðga þeim.
Miklar vangaveltur eru í fjölmiðl-
um um að morðinginn hafi fleiri
mannslíf á samviskunni. Þær, og
nákvæmar lýsingar á glæpunum,
hafa haft mikil áhrif á Frakka sem
eru vanari því að lesa um raðmorð-
ingja vestur í Ameríku.
Konur í austurhluta Parísar, þar
sem morðin hafa verið framin, sýna
aukna varkámi þegar þær fara til
síns heim á kvöldin. Þær taka leigu-
bíla og líta stöðugt um öxl sér til að
ganga úr skugga um aö enginn sé aö
elta þær.
Heimildarmenn innan lögregl-
unnar segja að tuttugu manna lög-
reglulið leiti nú morðingjans. Lög-
regluþjónum hefur verið fjölgað í
hverfinu þar sem morðin voru
framin. Allir lögregluþjónar höfuð-
borgarinnar ganga með teikningu af
grunuðum morðingja og myndin
hefur einnig verið birt í blöðunum.
„Vinkonur mínar og ég forðumst
aö fara einar heim á kvöldin og við
erum alltaf með táragashylki á okk-
ur,“ segir Dephine, 21 árs námsmey
sem neitar að gera frekari grein fyr-
ir sér af ótta viö morðingjann.
Antonella býr skammt frá einu
fórnarlambanna. Hún fer ekki leng-
ur út seint á kvöldin. „Um daginn
var ég þrjá klukkutíma að sofna.
Þegar ég heyri fótatak í stiganum
hamast hjartað í brjósti mér. Stund-
um ímynda ég mér hann að opna
glugga," segir hún. Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
7822,63
Á S Ö N
London Frankfurt m Tokyo m
2000 48S1,2
Á S 0 N
DAX-40
. Nlkkel
16045,55
Á S 0 N
Hong Kong
20000 H“eS*ne
15000 1
10000
10580,11
Á S 0 N
1615
$A Á S 0 N
I Bensín 98 okt.i
300
200'
100
0 192,50
w í S 0 N
Hráolía
B
I
Lífvörður
Winnie á launa-
skrá löggunnar
George Fivaz, lögreglustjóri í
Suður-Afríku, sagði í yfirheyrsl-
um hjá sannleiksnefnd landsins
í gær að yfir-
maður líf-
varða Winnie
Mandela hefði
verið á laúna-
skrá ap-
artheidlög-
reglunnar eft-
ir árið 1988
þegar 14 ára
gamall drengur í haldi á heimili
hennar var myrtur.
Lögreglustjórinn sagöi að líf-
vörðurinn, Jerry Richardson,
hefði fengið sem svarar 150 þús-
und krónum árið 1995 fyrir upp-
lýsingar sem hann veitti næstu
sjö ár á undan.
Richardson var dæmdur í lífs-
tíðarfangelsi 1990 fyrir að
myrða piltinn. Búist er við að
hann segi í vitnaleiðslum í
næstu viku aö Winnie hafi skip-
að honum að drepa piltinn.
Konur nú ham-
ingjusamari en
mæður þeirra
Liðlega helmingur evrópskra
og bandarískra kvenna telur sig
vera hamingjusamari en mæður
þeirra voru á sama aldri. Þetta
eru niðurstöður könnunar með-
al sex þúsund kvenna sem Lou-
is Harris rannsóknarstofnunin
gerði.
Fimmtíu og eitt prósent
kvennanna telur sig hamingju-
samari, 27 jafn hamingjusamar
en fjórtán prósent telja sig
óhamingjusamari.
Meirihluti kvennanna var
einnig á því að getnaðarvarnir
og ný heimilistæki hefðu aukið
lífsgæði þeirra, svo og aukin
menntun og atvinnutækfræri.
Sigur í rnáli
hinnar norsku
Sophiu Hansen
DV, Ósló:
------------------gg '-r ..
„I fyrstu ætlaði ég'ekki að
trúa mínum eigin eyrum. Svo
náði ég áttum og bæði hló og
grét,“ segir Mette Solliahgen
Hauge, norsk móöir sem undan-
fama mánuði hefur átt í hat-
rammri forræðisdeilu við tyrk-
neskan barnsfóður sinn. Mette
sagði sögu sína í DV fyrir
skömmu. Forræðismál hennar
er í aðalatriðum eins og mál
Sophiu Hansen gegn Halim Al.
Mette segist reikna með að
málinu verði áfrýjað til hæsta-
réttar og þvi sé sigur ekki í
höfn. Fyrrum eiginmaður Mette
rændi dóttur þeirra þegar hún
heimsótti hann í ágúst á síðasta
ári. -GK
Frændur okkar
vilja ekki úti-
loka neinn
Stjórnvöld í Danmörku og
Svíþjóð lögðu til í gær að öllum
tíu fyrrum kommúnistaríkjum
sem hafa sótt
um aðild að
ESB verði
boðið til þátt-
töku þegar
viðræður um
stækkun fara
af stað í mars
á næsta ári.
„Þessi tillaga
er lögð fram til að tryggja að öll
löndin fái sanngjarna meðferð,"
sagði Lena Hjelm-Wallen, utan-
ríkisráðherra Svíþjóðar, í við-
tali við sænsku fréttastofuna TT
í gær.
Ekki er einhugur innan ESB
um hvort bjóða eigi öllum um-
sækjendum til viðræðnanna.
Reuter