Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Page 7
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997
7
1
Mál og menning sfm?51i592500 llmi 510 2500
Björn Ólafsson,
Einar Stefánsson,
Hallgrímur'Magnússon
og Hörður Magnússon
segja sögu íslenska
Everest-leiðangursins 1997
íslenska þjóðin stóð á öndinni og fylgdist með því
þrekvirki er þeir Bjöm Ólafsson, Einar Stefánsson og
Hallgrimur Magnússon klifu tind Everest í vor. Hér
segja þeir alla söguna - segja frá átökum, ótta,
spennu, háska og efasemdum sem hvergi hafa komið
fram i fyrri frásögnum.
Þeir félagar þurftu að kljást við hæðarveiki og
hrikalegustu falljökla í heimi, þeir stóðu af sér
frosthörkur og fárviðri í hlíðum Everest þar sem eitt
lítið vixlspor getur kostað menn lífið. Og loks lýsa
þeir því dýrlega augnabliki þegar þeir snertu koll
„Gyðjunnar, móður heimsins" eins og fjallið er nefnt
þar eystra.
Söguna skráir Hörður Magnússon sem fýlgdi þeim
félögum upp að fjallsrótum. Bókina prýða á þriðja
hundrað litmynda sem lýsa frábærlega vel þessu
mikla ævintýri og gefa innsýn í þann einstæða heim
sem umvefur Everest.
- i
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA