Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Page 8
8
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997
($elkerínn
Helga Soffía og Toshiki Toma gefa uppskrift að léttum og góðum rátti:
Tunglsljós á aðventu
„Þetta er réttur sem við borðum
nokkuð oft og er fljótlegur og ein-
faldur. Það er frumregla á aðvent-
unni að gæta hófs í mat og drykk og
öllum veraldlegum gæðum. Þótt
maður hafi gaman af því að taka
þátt í öllum jólaundirbúningi og
slíku þá ber þess að gæta að aðvent-
an heitir öðru nafni jólafasta. Það
orð þýðir að gæta hófs,“ segir Helga
Soffia Konráðsdóttir, prestur í Há-
teigskirkju, sem hér gefur uppskrift
að hálfjapönskum rétti.
Helga Soffia segir að japanskur
maður hennar, Toshiki Toma, sé
mikill áhugamaður um mat og
hann hafi kennt henni þessa upp-
skrift. Toma er prestur nýbúa hér á
landi og starfar á biskupsstofu.
Toma kýs að kalla réttinn Tungls-
Ijós á aðventu.
Hráefni
250 g svínakjöt
4 tómatar
150 g brokkoli
4 egg
svolítið kartöflumjöl
sojasósa (kikkoman)
olía til steikingar
Fyrst á að sjóða brokkolí og
skera það í eins og hálfs sentímetra
Hjónin Helga Soffía og Toshiki Toma eru bæöi prestar. Þeim þótti við hæfi,
daginn fyrir fyrsta sunnudag í aðventu, að gefa uppskrift að léttum og góð-
um rétti. DV-mynd E.ÓI.
bita. Skerið kjötið í um 1 sentí-
metra bita, stráið 2 tsk. af kartöflu-
mjöli yfir kjötið. Látið þetta allt
liggja í um 1 dl af sojasósu í um 30
mín. Hitið pönnu, setjið um 1Z2 dl af
olíu á pönnu, hrærið eggin í skál og
steikið á pönnunni. Takið eggin
strax af pönnimni að steikingu lok-
inni. Geymið á diski. Þá á aftur að
setja 1% dl af olíu á pönnuna. Steik-
ið kjötið vel. Setjið þá tómatana, í
stórum bitum, á pönnuna. Steikið
þetta allt saman þar til tómatamir
hafa misst lögun sína. Bætið
brokkolí og eggjahrærunni út á
pönnuna og eldið þar til allt er orð-
ið heitt og gott.
Ekki hræra mikið
Ef fólki finnst rétturinn bragð-
laus þegar matreiðslu lýkur er gott
að bæta við svolitlu af sojasósu.
Berið fram með hrísgrjónunum.
Ekki hræra mikið í pönnunni.
Hráefnið á að halda lögun sinni og
lit.
„Við reynum að borða mikið af
japönskum réttum því þeir eru yfir-
leitt hollir og góðir," segir Helga
Soffia Konráðsdóttir.
-sv
Góður eftirréttur:
Súkkulaði- og
I koníaksbúð-
imi bakst-
urs, konfekt- og matar-
gerðar. Sumir baka kökur
og búa til rétti sem fjöl-
skyldan maular á fram aö
jjólum, aðrir geyma allan
sparimatinn til jóla. Hér
kemur uppskrift að gimi-
í legum búðingi f eftirrétt
j fyrir fulloröna fólkið. í
250 g hreint súkkulaði,
brotiö niður
4 msk. vatn
125 g smjör
125 g púðursykur
1 X 439 g dós af ósætu
Ikastaniuhnetumauki
3 msk. koníak
Að lokum:
2 dl þeyttur rjómi
Strimlar af súkkulaði
Aðferð
Setjið súkkulaðið og
vatn í lítinn pott og bræð-
ið við vægan hita. Látið
kólna. Setjiö þá smjörið,
sykurinn og hnetumaukið
I í rafmagnsblandara eða
matvinnsluvél og blandið
vel saman. Bætið
| súkkulaöinu og koniakinu
út í og blandið enn vel.
Setjið í smurt 900 ml
hringlaga form. Látið
standa í ísskáp yfir nótt.
Setjið á disk og smyrjið
ijóma yfir. Skreytið með því
að sprauta rjóma yfir og
saxa niður súkkulaðistrimla
: (sjá mynd). Þessi gimilegi
1 eftirréttur er fyrir átta
: . manns. -sv
kjatgæðingur vikunnar
Kristbjörg Bertel Magnúsdóttir:
Sojakjötið gott í maga
DV-mynd S
Sojakjötið
1 bolli kjúklinga
sojakjöt
1 laukur
paprika
epli
gulrætur
kjúklingaten-
ingur
Kristbjörg Inga Magnúsdóttir býöur upp á fisk í ofni og sojakjöt meö grænmeti.
„Ég mæli sérstaklega með því að
fólk borði eitthvað létt og ferskt á að-
ventunni, svona rétt til þess undirbúa
magann fyrir stórátökin yfir hátíðim-
ar. Maður hefur ekki gott af því að
belgja sig endalaust út af kjöti og því
mæli ég annars vegar með léttum
fiski í ofni og hins vegar sojakjöti.
Maður er aldrei matarlaus ef maður á
sojakjöt," segir Kristbjörg Inga Magn-
úsdóttir matgæðingur. Hún eldar
bara fyrir sjálfa sig og uppskriftin
miðast við einn.
Fiskurinn
1 ýsu- eða þorskflak
1 laukur
\ paprika
\ epli
tómatar
agúrka
annað grænmeti ef vill
sítrónupipar
aromat
Aðferð
Skerið fiskinn niður f eldfast mót
og raðið meðlætinu ofan á. Grænmet-
ið er skorið niður og sett yfir fiskinn.
Má vera hvað sem er. Síðan er plast-
filma sett yfir og í örbylgjuofhinn á
fullum styrk í um 25 mín.
Þetta er gott að bera fram með
soðnum kartöflum og dress-
ingu sem búin er til úr
léttsúrmjólk og rel-
ish. Hún er líka
góð með soja-
kjötinu.
olía til steikingar
krydd eftir smekk
Aðferð
Kjötið er sett í kalt vatn í
10-15 mín. Á meðan er lauk-
urinn brúnaður í potti.
Annað grænmeti, bara
það sem til er, sett út í.
Kjötið sett út í pottinn
og látið krauma í 20-30
mínútur á vægum hita.
Þá er smátómatkraftur
settur út í og síðan er rjóma
eða mjólk hellt út á. Að lokum
þykkt með maísenamjöli. Með
þessu er gott að borða ristaö
brauð og ekki er verra að hafa
ferskt hrásalat með.
„í báöa þessa rétti finnst mér um
að gera að nýta það sem til er i ís-
skápnum og láta hugmyndaflugið
ráða,“ segir Kristbjörg. Hún skorar
á Önnu Bragadóttur að vera
næsti matgæðingur.
-sv
Mars-konditori:
Þeytið sykur og eggjahvítur
saman. Hrærið hinu saman við.
Bakið við 130-150° C í 60 mín.
! Takið fyrst hvítan svamptertu-
botn og leggið Twix marensbotn-
inn yfir. í millilagið er þeyttur
einn peli af rjóma og 2 bananar
maröir út í.
Bounty-terta
15 eggjahvítur
250 g sykur
2 dropar sítrónusafi
200 g fínt saxað Bounty
Stífþeytiö eggjahvítur og
sítrónusafa. Bætið finsöxuðu
Bounty út í. Bakið í tveimur 24
sentímetra formum við 120° C í
; u.þ.b. 40 mín. Þeytið síðan pela af
; rjóma og smyrjið á milli botn-
anna.
i
í,
(
Krem
6 eggjarauður
70 g flórsykur
50 g smjör
100 Galaxy-súkkulaði
Þeytið eggjarauðm-nar og flór-
sykurinn saman. Bræðið snyörið
og súkkulaðið saman yfir vatns-
baði. Blandið síðan eggjaþeytunni
og súkkulaðismjörinu saman og
hellið yfir kalda tertuna.
Meira
góðgæti
Síðastliðinn laugardag hóf Jó-
hann Arilíusson konditorimeist-
ari að gefa hlustendum morgun-
þáttar Bylgjunnar góð ráð í
tengslum viö jólabaksturinn og
uppskriftasamkeppni Mars-kondi-
tori. Jón gefur DV uppskriftir og
ræöir þær síðan frekar á Bylgj-
unni. Þeir sem vilja taka þátt í
uppskriftasamkeppninni sendi
uppskriftimar til:
Mars-konditori, uppskriftir,
pósthólf 10093, 130 Reykjavík.
Uppskriftimar þurfa að inni-
halda a.m.k. eina gerð af Mars
sælgæti, þ.e. Mars, Snickers,
Bounty, Twix eða Galaxy. í hverj-
um þætti velur Jón eina vinnings-
uppskrift. Síðasti skiladagur er 6.
desember. í verðlaun em sælgæt-
iskörfur, Kökumeistarinn Mið-
vangi gefur fulla körfu af jóla-
bakkelsi og í aðalvinning er jóla-
hlaðborð fyrir fjölskylduna í
Perlunni.
Aö þessu sinni gefur Jón upp-
skrift að Twix-tertu og Bounty-
tertu.
Twix-terta
100 g sykur
2 litlar eggjahvítur
*/2 tsk. lyftiduft
2 lengjur Twix, fint skomar
stm