Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Side 18
18
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997 JLj"V
dagurílífi
Heimsmálin
Annasamur dagur í lífi Einar Njálssonar, bæjarstjóra á Húsavík:
levst
r
i
kaffinu
Einar Njálsson, bæjarstjóri á Húsa-
vík, á vinnustaó sínum. Par er eitt og
annað til umræöu og oftar en ekki
eru uppi á borðum lausnir á öllum
heimsins vanda.
DV-mynd gk
„Vekjaraklukkan mín hringdi 10
mínútur fyrir klukkan sjö sl.
mánudagsmorgun, eins og hún ger-
ir venjulega, og ég skreið fram úr
og fór í mín hefðbundnu morgun-
verk. Þau eru að fara í sturtu og
bera á mig psoriasis-krem sem ég
geri á hverjum morgni þar sem ég
er psoriasis-sjúklingur.
Te og rúgbrauð
Svo tók við morgunmaturinn, sem
er ávallt eins, ég fæ mér einn bolla
af te og með því rúgbrauðssneið
með osti.
Um klukkan átta var ég kominn á
vinnustað á bæjarskrifstofunni og
dagurinn hófst á því að ganga frá
ófrágengnum málum frá því á
fóstudeginum, hringja í fólk og
svara skilaboðum auk þess sem ég
þurfti að skrifa eitt bréf þar sem
mér hafði ekki unnist tími til að
vinna neitt um helgina.
Rætt um hvalaskoðun
Við höfum ávallt morgunkaffi á
bæjarskrifstofunni klukkan níu
til hálftíu þar sem við söfnumst
saman og leysum heimsmálin. Ég
kom á þann fund um kortér yfir
níu og klukkan tíu átti ég fund
með fuiltrúa fyrirtækisins Norð-
ursiglingar sem gerir út héðan í
hvalaskoðunarferðir. Við ræddum
ýmis mál í um það bil klukku-
stund. Tíminn að þeim fundi lokn-
um og fram að hádegi fór svo í að
svara skilaboðum sem höfðu kom-
ið á meðan ég var á þessum fundi
en klukkan tólf á hádegi fór ég í
hádegisverð með fulltrúa frá fyrir-
tækinu Fjarhitun. Það er verk-
fræðifyrirtæki sem veitir Húsa-
víkurbæ ráðgjöf og hönnun vegna
uppbyggingar hitaveitunnar og
Hitaveitan hefur starfað með frá
stofnun.
Vettvangskönnun
Hádegisverðartíminn fór í að
ræða verkefni sem framundan
eru, s.s. frumhönnun á nýrri að-
veituæð fyrir hitaveituna, hugs-
anlega staðsetningu rafstöðvar og
miðlunar-
tanks. Eftir matinn fórum við í
vettvangskönnun og skoðuðum
nýtt iðnaðarsvæði sem verið er
að byggja upp þar sem á að nota
þetta heita vatn og við fórum
einnig fram í sveit og skoðuðum
m.a. hvar hægt væri að koma fyr-
ir nýrri aðveituæð.
Hóað í þingmenn
Þetta tók tímann fram undir hálf-
fjögur en þá fór ég að reyna að ná i
þingmenn og ráðherra til að skipu-
leggja fund í Reykjavík um hafnar-
mál á Húsavík sem við ætluðum að
reyna að halda síðar í vikunni. Ég
var að þessu i rúman klukkutíma
og klukkan hálffimm fór ég að und-
irbúa fund með meirihluta bæjar-
stjórnar til undirbúnings fyrir bæj-
arstjómarfund daginn eftir. Þessi
fundur hófst klukkan fimm og stóð
til klukkan hálfátta
og á honum var
farið yfir ýmis
mál og rætt
hvernig mál
yrðu lögð fram
og kynnt, svo
eitthvað sé
nefnt.
Að loknum
þessum
fundi fór
ég heim
og
borðaði indælis fískisúpu áður en
ég fór á söngæfmgu en ég er að
syngja mér til gamans með hópi
fólks úr leikfélaginu, lög úr göml-
um leikritum meðal annars. Á
þessari söngæfingu tók ég tvö sím-
töl frá mönnum sem ég hafði lagt
skilaboð fyrir um daginn.
Blómin í ánni
Klukkan hálfellefu var ég kominn
heim, fór að búa mig undir að
hátta en áður en ég sofna les ég
ávallt eitthvað. Núna er á nátt-
borðinu bók sem ég hef lesið oft
áður og heitir Blómin i ánni, bók
sem fjallar um afleiðingar kjarn-
orkusprengingarinnar á Hiros-
hima. Það hefur hins vegar varla
verið komið miðnætti þegar
svefninn tók völdin og ég sveif inn
í draumalöndin.“ -gk
Finnur þú fimm breytingar? 439
„Þaö þarf kannski ekki að koma á óvart að bensínreikningurinn hækki
stöðugt á þessu heimili!“
Nafn:______________________________________________________________
Heimili:______________ __________________________________
Vinningshafar fyrir getraun nr. 437 eru:
1. verólaun: 2. verólaun:
Anna Aðalh. Halldórsdóttir. Sigurður I. Fanndal,
Lyngmóum 9. Hjaltabakka 12
210 Garðabær. 109 Reykjavík.
Myndimar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð kem-
ur í ljós aö á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt. Finnir þú
þessi fimm atriði skaltu merkja við
þau.með krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt nafni þínu
og heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
Hitachi-útvarpsverkjari frá Sjón-
varpsmiðstöðinni, Síðumiila 2, að
verðmæti kr. 3.490,-
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr.
1570, Sekur eftir Scott Turow og Kóli-
brísúpan eftir David Parry og Patrick
Withrow.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 439
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík