Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Qupperneq 29
1>V LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997
Qérstæð sakamál »
_l
eldra sína reglulega. Þá bjuggu þeir
í húsi sem Mark hafði látið reisa við
hliðina á húsi foreldra þeirra.
Daginn fyrir óveðrið komu þeir
Roderick og Mark flugleiðis til eyj-
unnar. Tilefnið var að móðir þeirra
varð fjörutíu og átta ára þann dag.
Þeir buðu foreldrunum til kvöld-
verðar á hóteli i grenndinni. Það
var á laugardegi. Daginn eftir ætl-
uðu þeir að snúa aftur, annar til
London en hinn til Parísar.
Það síðasta sem sást til hjónanna
var að þau gengu með sonunum út
af hótelinu og virtist fara vel á með
þeim öllum fjórum.
Mannlaust hús
Morguninn eftir kom einn granna
Newalls-hjóna að húsi þeirra til að
athuga hvernig þeim hefði reitt af í
illviðrtnu. Roderick kom til dyra og
sagði foreldra sína enn sofa. Þegar
sami granni kom að húsinu þremur
dögum síðar var þar enginn. Hann
gerði lögreglunni aðvart.
Rannsókn leiddi I ljós að synimir
höfðu farið á sunnudeginum, eins
og til hafði staðið. Þegar haft var
samband við þá og þeim sagt að for-
eldrar þeirra væru horfnir var sem
þeir kæmu af fjöllum. Þeir sögðust
ekki geta skýrt hvarfið. Þeir hefðu
borðað hádegisverð með foreldrum
sínum á sunnudeginum en kvatt þá
síðan.
Rannsóknarlögreglumenn á Jers-
ey urðu að láta sér nægja þessi svör
þótt þeir væru ekki ánægðir með
þau. Þeir kvöddu til tæknimenn frá
manna minnum. Það svipti þökum
af húsum, braut rúður í þúsundatali
og velti eða eyðilagði hundruð bíla.
En þótt undarlegt megi telja hafði
enginn týnt lifmu í því. Eða svo var
í fyrstu talið. En svo kom i Ijós að
hjónin Nicholas og Elizabeth
Newall höfðu horfið úr húsi sinu
við ströndina í Saint Brelade.
Hjónin voru frá Skotlandi, en þar
hafði Nicholas Newall, sem var
fimmtíu og sex ára er hann hvarf,
verið skipasmiður. Hann hafði efn-
ast vel, en þar kom að hann hugðist
hætta að vinna og njóta afraksturs
erfiðis síns. Þau hjón höfðu lagt af
stað til Vestur-Indía á skútu sem
þau áttu en komu við á Jersey til að
taka vistir. Þar leist þeim hins veg-
ar svo vel á sig að þau ákváðu að
fara ekki lengra.
Þegar þau settust að á eyjunni
voru synir þeirra tveir, Roderick og
Mark, enn drengir. En daginn sem
óveðrið mikla gekk yfir Jersey voru
þeir tuttugu og eins og tuttugu og
tveggja ára.
Afmælisfagnaður
Þótt aldursmunurinn á bræðrun-
um væri ekki mikill voru þeir mjög
ólíkir. Roderick var úthverfur.
Hann hafði gengið I úrvalsherdeild-
ina Royal Green Jackets þar sem
hann hafði hlotið frama. Mark var
aftur innhverfur og sóttist lítið eftir
félagsskap annarra. Hann gerðist
starfsmaður í verðbréfadeild arab-
ísks banka í París.
Þótt hvorugur bræðranna byggi
enn á Jersey heimsóttu þeir for-
Englandi og brátt komu í ljós blóð-
blettir við arininn í setustofunni,
undir teppi þar og í svefnherbergi
hjónanna. Grunur beindist strax að
sonunum, en þeir héldu fast við
fyrri frásögn og sýndu merki reiði
yfir því að lögreglan skyldi láta að
því liggja að þeir bæru ábyrgð á
hvarfmu. Rannsókn var haldið
áfram en hún bar engan frekari ár-
angur.
Heimsreisa
Tveimur árum eftir hvarf
Newalls-hjónanna gekk Roderick úr
hersveitinni nafntoguðu, keypti sér
skútu, „Austral Soma“, og lagði upp
í siglingu umhverfis jörðtna. Bróðir
hans, Mark, hafði áður fengið því
komið til leiðar að foreldrar þeirra
voru lýstir látnir, þannig að þeim
hafði þá tæmst arfur. Mark hafði
svo á skömmum tíma ávaxtað féð á
svo snjallan hátt að honum hafði
tekist að tífalda eign þeirra bræðra,
sem var talin jafnvirði um fjögur
hundruð milljöna króna.
Þeir Roderick og Mark voru nú
hálfþrítugir og afar vel efnaðir mið-
að við aldur. Fyrir kom að þeir voru
spurðir hvað gæti hafa komið fyrir
foreldra þeirra, en svarið var ætíð á
þá leið að þeir gætu enga skýringu
gefið á hinu dularfulla hvarfi
þeirra. En rannsóknarlögreglan á
Jersey var þeirrar skoðunar að
bræðurnir hefðu ráðið foreldra sína
af dögum og eina ráðið til að koma
lögum yfir þá væri að biða og sjá
hvort þeir kæmu ekki upp um sig á
einn eða annan hátt.
Ummæli í Brasilíu
Roderick náði strönd Brasilíu á
skútu sinni. í landi kynntist hann
laglegri enskri ekkju og henni bauð
hann um borð. Er þau höfðu fengið
sér nokkur glös reis hann skyndi-
lega á fætur og sagði: „Þú stendur
frammi fyrir morðingja ... morð-
ingja.“
Konan hló, en þegar hún kom í
land hélt hún beint til lögreglunnar
sem hafði samband við alþjóðalög-
regluna Interpol. Hún lét svo lög-
regluna á Jersey vita. Var nú tekið
að fylgjast með ferðum Rodericks.
Kom brátt í ljós að hann hugðist
heimsækja frænda sinn í Skotlandi.
Lögreglan þar fékk heimild til að
koma fýrir hlerunarbúnaði í húsi
frændans.
Dögum saman lágu hlerunar-
menn yfir tækjunum án þess að
nokkur kæmi fram sem sannað gæti
sekt bræðranna. En skyndilega
heyrðist Roderick segja við frænda
sinn: „Ég myrti þau. Það var ég sem
myrti þau.“ Orðunum fylgdi grátur.
Flóttinn mikli
Lögreglan réðst til inngöngu í
húsið, en á einhvern óskiljanlegan
hátt tókst Roderick að flýja. Og á
enn óskiljanlegri hátt tókst honum
að komast undan í bíl allt til strand-
ar á Englandi þar sem hann komst
út í skútuna sina. Þoka var þennan
dag og þar varð lögreglan að láta sér
nægja að horfa á eftir skútunni út i
bakkann.
Næst fréttist af „Austral Soma“ í
Tanger í Norður-Afríku og var ljóst
að fyrir dyrum var sigling út á At-
lantshafið. Bresk freigáta var send í
veg fyrir skútuna og um leið og hún
var komin út fyrir lögsögu var hún
stöðvuð og Roderick handtekinn.
Var hann færður til bresku nýlend-
unnar Gíbraltar.
Skömmu síðar
var bróðir hans,
Mark, handtekinn
í París. Og nú kom
loks í ljós hver ör-
lög Newalls-hjón-
anna höfðu orðið.
En áður en Roder-
ick leysti endan-
lega frá skjóðunni
lýsti hann því yfir
að bróðir hans
Mark væri ekki sá
seki. Hann hefði
aðeins hjálpað sér
við að koma líkun-
um í jörðina.
Atburðir
óveðursnæturinnar
Bræðurnir voru fluttir til Jersey,
því þar sögðu þeir að lik foreldra
þeirra lægju grafin. Þau fundust í
litlum skógi þar sem þeir bræður
höfðu leikið sér ungir. Þar hafði
hundur þeirra verið dysjaður, en
hann hafði dáið úr elli.
Er líkin höfðu verið grafin upp
komu í ljós áverkar á höfði beggja.
Roderick tók á sig sökina. Hann
sagði að eftir kvöldverðinn á hótel-
inu hefðu þau öll farið heim. Mark
hefði hins vegar fljótlega farið út í
sitt hús og móðir þeirra upp í svefn-
herbergi á efri hæðinni. Þeir feðgar
hefðu þvi orðið tveir eftir í setustof-
unni. Þar hefðu þeir farið að rífast
út af einhverju sem engu málið
hefði í raun skipt, en skyndilega
hefði faðir hans slegið til sin. Hann
hefði þá tekið skörung við arininn
og slegið hann i höfðuð.
Roderick sagði móður sína hafa
vaknað og hefði hann farið upp stig-
ann á móti henni. Hún heföi orðið
skelfd að sjá hann með skörunginn
og þá hefði hann slegið hana.
Var ástæðan önnur? Enginn í
hópi rannsóknarlögreglumannanna
trúði skýringu Rodericks á því
hvernig á því stóð að hann réð báð-
um foreldrum sínum bana. Þeir
voru sannfærðir um að ástæðan
væri allt önnur. Hann hefði verið
orðinn óþolinmóður í biðinni eftir
arfinum. Báðir foreldrarnir hefðu
enn verið á miðjum aldri og biðin
eftir eignunum hefði því getað orðið
löng. Hefði komið til rifrildis milli
þeirra feðga um nóttina i stofunni
hefði það ekki verið út af neinu
smáræði heldur fjármálum.
Málið hafði frá upphafi þótt dul-
arfullt. En nú þótti það með sér-
stæðari málum sem komið höfðu
upp á Jersey og eins og vænta mátti
fékk það víða um-
fjölluti. Báðir
bræðurnir fengu
ákærur, en ljóst
þótti að Mark,!
verðbréfasalinn,
myndi fá vægari
dóm. Og það gekk
eftir.
Roderick fékk
lifstíðarfangelsi
en Mark sex ára
fangelsi fyrir að
hafa hjálpað til
við greftrun lík-
anna og að hindra
að réttvísin næði
fram að ganga. En lengra var geng-
ið. Eigur bræðranna voru teknar af
þeim og fengnar frænda þeirra í
Skotlandi.
Fégræðgi var því talin orsök
morðanna. Margt hefur verið sagt
og skrifað um þessa skýringu sem
margir telja þá einu réttu. í því
sambandi hefur verið vísað í ýmis
ummæli Rodericks sem gætu gefið
skýringu á því hvers vegna hann
greip til þess óyndisúrræðis að
reyna að augðast á þennan hátt. Og
ein er sú setning sem hvað oftast
hefur heyrst nefnd í þessu sam-
bandi, en það eru orð sem hann lét
sér eitt sinn um munn fara þegar
hann var spurður að þvi hvers
vegna hann hefði ákveðið að ganga
í úrvalsherdeildina sem hann var í
árum saman. Svarið var: „Það er
gaman að drepa!“ Hvort þau orð
voru sögð í fullri alvöru eða ekki
veit þó enginn.
Glæsileg norræn hönnun
FATNAÐUR ÚR MOKKA, LEÐRI OG FISKROÐI.
v
j'JNNEVA
>ESIÖN
Sölustaðir: Leðuriðjan Atson Laugavegi 15 Rvík. Veiðimaðurinn Hafnarstræti 5 Rvík. Sunneva Design Hvannavöllum 14 Ak.