Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Síða 38
46
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 199'
Bjóða ungfrú heimi at-
hvarf
Seychelleseyjar hafa boöiö
aðstandendum keppninnar um
ungfrú heim athvarf í landi
sínu. Seychelleseyjar eru ríki á
V-Indlandshafi, norður af
Madagaskar.
Seychellesbúar hyggjast slá
tvær flugur i einu höggi; bjarga
keppninni og koma sjálfum sér
á kortið. Eins og kunnugt er
hafa breskir feministar fengið
því framgengt að keppnin verði
ekki haldin þar í landi í bráð.
Leigubílstjórar læra
mannasiði
Stétt leigubílstjóra í New
York er þekkt fyrir að vera
fremur erfið i samskiptum á
köflum enda sjálfsagt
taugastrekkjandi að aka um
götur borgarinnar. I síðustu
viku keyrði um þverbak þegar
bílstjóri læsti þrjá ferðamenn
inni i bíl sínum og meinaði
þeim útgöngu eftir að hafa
reynt að ná af þeim peningum.
Skóli í borginni hefur boðið
fram námskeið í kurteisi og
samskiptum og vill skylda alla
bílstjóra til að taka kúrsinn.
Hvort þeir verða við því á eftir
að koma í ljós.
Kína á toppnum
í nýrri alþjóðlegri könnun
verður Kína vinsælasti ferða-
mannastaður árið 2020. Þá gera
menn ráð fyrir að yfir 137 millj-
I ón túristar muni heimsækja
landið árlega. Á hæla Kína
komu Bandaríkin, Frakkland
Í og Spánn.
South Beach eða „Rívíera Bandaríkjanna" hefur getið sér orð fyrir að vera paradís þeirra sem vilja njóta lífsins á heillandi hvítri sandströnd á daginn oc
sietta úr klaufunum á kvöldin.
South Beach er nýr áfangastaður Flugleiða:
Ströndin sem aldrei sefur
í Tilslökun í Moskvu
Tollyfirvöld í Moskvu hafa
ákveðið að létta á kröfum sín-
um varðandi farþega sem yfir-
gefa landið á Sheremetyevo-
flugvelli. Samkvæmt gömlu
reglunum þurftu allir farþegar
að gefa upp hversu mikla pen-
inga þeir hefðu handbæra. Nú
þurfa aðeins þeir sem hafa
meira en 500 dollara að sýna
; staðfestingu frá banka um
hvaðan peningarnir koma.
Tollyfirvöld í Moskvu hyggjast
endurskoða þessa ákvörðun í
lok janúar á næsta ári og líta á
! þessa tilslökun sem tilraun.
Nýr Flugleiðavefur
Nýlega voru teknir í notkun
þrír nýir veflr á vegum Flug-
leiða: á íslandi, 1 Bandarikjun-
um og á Bretlandi.
Vefimir eru gagnvirkir sem
þýðir að nú er hægt að bóka
miða, skrá sig í Vildarklúbbinn
og tilboðsklúbb, skoða fargjöld
og fá upplýsingar um laus sæti
eins og staðan er hverju sinni.
Slóðin f íslenska vefnum er
http://www.icelandair.is
Flugleiðir bjóða í fyrsta skipti í vetur upp á ferðir til hins geysivinsæla ferðamannastaðar South Beach á
Flórída.
Flugleiðir hafa til
margra árið boðið ís-
lendingum upp á ferðir
til Flórída í Bandaríkj-
unum. Þar hafa staðir
eins og St. Petersburg,
Orlando og Ft. Lauder-
dale verið hvað vinsæl-
astir.
í vetur hyggjast Flug-
leiðir hins vegar bjóða
upp á nýjan valkost en
það eru ferðir til South
Beach sem er syðsti
hluti hinnar víðfrægu
sólarstrandar Miami.
Beach. South Beach
varð þekktur ferða-
mannastaður á þriðja
og fjórða áratug aldar-
innar en þá hélt hið
ljúfa líf innreið sína til
strandarinnar. Hótel,
veitinga- og skemmti-
staðir risu eins og
gorkúlur um alla
ströndina. Byggingar-
stíllinn þótti afar ný-
stárlegur á þeim tíma
en gengur nú undir nafninu Art
Deco. Á árum seinni heimsstyrjald-
ar fóru vinsældir South Beach hníg-
andi og það var ekki fyrr en í upp-
hafi níunda áratugarins að strand-
bærinn reis aftur til vegs og virð-
ingar.
Jón Kári Hilmarsson er farar-
stjóri Flugleiða á South Beach. Þeg-
ar DV hitti Jón Kára í vikunni var
hann að leggja síðustu drög að und-
irbúningi fyrstu ferðar Flugleiða
með íslendinga á þennan nýja
áfangastað.
„í mínum huga má líkja South
Beach við Ibiza á Spáni. Það er ekk-
ert launungarmál að þetta er kjör-
inn staður fyrir þá sem vilja sletta
úr klaufunum og skemmta sér ær-
lega.
Fram til 1980 var þetta aðallega
sumarleyfisstaður fyrir eldri borg-
ara en þá gerðist það að tískuljós-
myndarinn Bruce Weber tók mikið
af myndum þarna og smám saman
fóru fyrirsætur og leikarar að sækja
South Beach grimmt. í dag er South
Beach suðupottur spennandi at-
burða og þar er alltaf eitthvað að
gerast, hvenær sólarhringsins sem
er,“ segir Jón Kári.
Fallegur arkitektúr
Uppbygging South Beach þykir
hafa tekist með afbrigðum vel og
þykja gömlu Art Deco húsin hið
mesta augnayndi i dag. Svo vel þótti
takast til á South Beach að nú er
ströndin á skrá yfir sögustaði sem
njóta sérstakrar minjaverndar í
Bandaríkjunum.
I ferðablöðum gengur South
Beach gjarna undir heitinu „Rívíera
Bandaríkjanna" á meðan aðrir líkja
henni við St. Tropez með ívafi af
hinni gömlu góðu Ameríku á blóma-
skeiði sveiflunnar.
South Beach hefur einnig getið
sér gott orð fyrir gríðarlegan fjölda
veitingastaða og Jón Kári tekur
undir þau orð. „Það er einn af kost-
um South Beach að staðurinn er
ekkert of stór og það er ekkert til-
tökumál að fara ferða sinna fótgang-
andi. Það er mjög mikið af verslun-
um og veitingahúsum á South
Beach, að ekki sé talað um nætur-
klúbba og dansstaði sem er að flnna
á hverju götuhorni."
Stutt til
Miami
Frá South Beac
er um fimmtá:
mínútna akstur t:
stórborgarinna
Miami en þar er a
finna ýmsa aíþre\
ingu. í borginni e
starfrækt sinfóníi
hljómsveit, óper
og ballet auk fiöld
listasafna. Einni
er mikið ur
íþróttaviðburði o
þar eru auðvita
vinsælastir körfi
boltaleikir og an
eríski fótboltinn.
Fjölskrúðugt
mannlíf
Flestir ferðamem
sem sækja Soutl
Beach heim eru fr
Bandaríkjunur
eða S-Ameríku þótt Evrópubúar séi
í auknum mæli að uppgötva stac
inn. „Það er ansi litríkt mannlifið
South Beach enda kemur þarn
saman mikill fiöldi listamanna o
fyrirsæta, að ógleymdum stórstjörr
um úr kvikmyndaheiminum," segi
Jón Kári.
Verðlag á South Beach er svipa'
og annars staðar á Flórída og er a
mennt ódýrt í það minnsta á ís
lenskan mælikvarða. Að sögn Jón
Kára er framboð veitinga- o:
skemmtistaða svo fiölbreytt a>
mönnum sé í sjálfsvald sett hversi
miklu þeir vilja eyða. Það er auðvil
að hægt að lifa hátt en einnig m,
halda ferðakostnaði innan skynsarr
legra marka. -a]