Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Page 39
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997
47
Getty-safnið opnað
i
Nú standa vonir til að Getty-
s safnið í Los Angeles verði opnað
| formlega þann 16. desember næst-
| komandi. Það er raunar íjórum
| árum á eftir áætlun en bygging
|i þess hefur staðið yfir í 14 ár og er
; kostnaður talinn vera nálægt ein-
um milljarði íslenskra króna.
í safninu er griðarlegt safn
listaverka og í allt eru fímmtíu
p salir skreyttir verkum frá mis-
| munandi tímabilum. Aðgangseyr-
ir er enginn en hins vegar þurfa
menn að greiða tæpar fjögur
| hundruð krónur fyrir bílastæði.
| Lengri afgreiðslutími
Verslunareigendur í Zúrich,
I stærstu borg Sviss, geta nú haft
búðir sínar opnar mun lengur en
áður hefur tíðkast. Svisslending-
| ar hafa búið við strangar reglur í
p þessum efnum. í Zúrich gengu
borgarbúar að kjörborði og í kjöl-
| farið mega verslanir vera opnar
I til átta á kvöldin.
Skautað í París
í tilefni jólanna verður sett upp
| skautasveÚ fyrir framan ráðhús
I® Parisarborgar. Svellið verður
þúsund fermetrar að stærð og
umkringt norskum barrtijám til
þess að fá sanna jólastemningu.
Hellirigning í Aþenu
Það blés ekki byrlega í Aþenu í
vikunni. Þá dundi á borgarbúum
1 eitthvert mesta vatnsveður í mörg
1 ár. Vatnsflóðið rann eftir götum
| borgarinnar og hafði gríðarleg
| áhrif á umferð bíla. Þá geisuðu
stormar í Argos á Pelópsskaga svo
| að loka varð umferðaræðinni á
| milli Korinþu og Trípóli.
Kert öryggisgæsla
í kjölfar fjöldamorðanna í
| Luxor-hofinu í Egyptalandi hefur
öryggisgæsla verið hert til muna.
Hermenn eru á hverju götuhorni
| en hins vegar er lítið um ferða-
f menn, enda hefúr fjölda ferða tii
| landsins verið aflýst undanfarið.
j Vel er tekið á móti þeim fau
| ferðamönnum sem heimsækja
| landið þessa dagana og fá þeir til
| dæmis rósavönd við komuna til
( landsins. Ferðaiðnaður er mikil-
| væg atvinnugrein í Egyptalandi
j og óttast þarlendir ferðaaðilar að
I afleiðingar ódæðisverkanna verði
langvarandi.
Faraldur í Mosambík
í Mósambík ríkir nú erfitt
i ástand en þar geisar auk kóleru
Inýr faraldur eitlabólgu. Á síðustu
sex vikum hafa hartnær hundrað
j manns verið greindir með eitla-
bólgu en sjúkdómurinn berst með
ákveðinni flugnategund sem lifir
j á rottum. Ef sjúkdómurinn er
ekki meðhöndlaður strax getur
fólk dáið innan 48 stunda.
Spilavíti í Sydney
í síðustu viku var opnað nýtt
spilavíti í Sydney sem kallast
Star City Casino. Opnun spilavít-
isins var einkar glæsileg og var
meðal annars boðið upp á ókeyp-
( is tónleika með Diönu Ross.
( Spilavítið sjálft er engin smá-
; smíði en þar eru 200 spilaborð,
* 1500 spilakassar auk risavaxins
sjónvarpsskjás þar sem menn
geta fylgst með kappreiðum.
Rofar til í Asíu
Svört mengunarský, sem leg-
ið hafa yfir suðausturhluta
Asíu, eru nú smám saman að
láta í minni pokann fyrir
( monsúnrigningum og breyttri
vindátt. Loftið í Indónesíu,
Singapore, hluta Malasiu og Fil-
ippseyjum hefur verið eitrað
svo vikum skiptir og hefur um-
fram aðra lagst á eldri borgara
: og astmaveika.
Þess mun ekki langt að bíða
að fólk á þessum stöðum fari að
sjá aftur til sólar.
Y .... .......................
Pompei liggur undir skemmdum:
Snúa vörn í sókn
Þeir sem hafa ferðast um Suður-
Ítalíu hafa margir lagt leið sina til
hinnar fornu rómversku borgar
Pompei. Pompei er sjálfsagt ein
frægasta borg sögunnar en hún ligg-
ur nú undir miklum skemmdum og
í þetta skipti eiga náttúruhamfarir
ekki hlut að máli.
Árið 62 reið mikill jarðskjálfti
yfir borgina og sextán árum síðar
tók næsti nágranni Pompei, eldfjall-
ið Vesúvíus, að spúa eldi og borgin
lagðist undir öskulag. Það var
reyndar til gæfu því öskulagið
vemdaði allt sem undir var og það
eru þeir hlutir sem ferðamenn
skoða í dag.
Fornminjarnar í Pompei þykja
varpa ótrúlega skýru ljósi á daglegt
líf Rómverja til forna og margir
líkja Pompei við tímavél sem færir
gesti aftur um 2000 ár í einu vet-
fangi.
Síðustu tvö hundruð árin hafa
fomleifafræðingar unnið hörðum
höndum að því að grafa borgina
meira og meira upp. Því er raunar
svo farið að mikill fjöldi þeirra
gripa sem fundist hefur hefur verið
ijarlægður og er nú hýstur á þjóð-
minjasafni Napólíborgar. Það sem
menn óttast hins vegar er að hin
vinsæla borg sé að deyja drottni
sínum hægt og rólega.
Minjasafni Pompei var lokað fyr-
ir 1975 vegna stöðugra þjófnaða. Á
næstu fimmtán árum var yfir 600
hlutum stolið úr borginni. Öryggis-
gæslu hefur til langs tíma verið
mjög ábótavant en nú stendur til að
bæta úr því og ráða fjölda manns til
starfa.
Ferðamönnum fjölgað
Það er fleira sem ógnar framtíð
Pompei og þar er vaxandi mengun
einn stærsti þátturinn. Veðráttan
hefur einnig sett sitt mark á borg-
ina og til dæmis hefur ótæpilegt sól-
arljós eytt freskum borgarinnar
smám saman svo nú sést vart í þær.
Þá hefur ferðamönnum fjölgað ár
frá ári og nú heimsækja borgina um
tvær milljónir manna.
Sem betur fer hafa safnyfirvöld í
Pompei ákveðið að snúa vörn i sókn
og gera allt sem í þeirra valdi stend-
ur til að bjarga borginni frá því að
deyja drottni sínum hægt og rólega.
Samtökin World Monuments Watch
hafa sett af stað áætlun til að safna
nægu fé til að laga það sem aflaga
hefur farið.
Ferðamenn framtíðarinnar geta
því enn lagt lykkju á leið sína þeg-
ar þeir eiga leið um Suður-Ítalíu og
heimsótt hina merku borg í betra
ásigkomulagi en hún hefur verið í
mörg ár.
KRAKKAR!
MUNIÐ EFTIR OKKUR
Afls TANNIOG TÚPA
Öll Lionsdagatöl eru merkt:
Þeim fylgir límmiði með Tanna og Túpu og tannkremstúpa.
Allur hagnaður rennur til líknarmála.
Fínustu veitingahúsin:
Níu vikna bið eftir borði
Að panta borð á eftirsóttum
veitingahúsum í borgum á borð
við París, London og New York
getur verið torsótt mál. Það þýðir
víst lítið fyrir venjulegan ferða-
mann að ætla sér að labba beint
inn á virðulegan veitingastað og
setjast að snæðingi. Það er aftur
ljóst að veitingahúsin sem hér eru
nefnd að neðan þurfa síst að
kvarta yfir dræmri aðsókn. Þeir
sem eru á leið til New York,
London eða Parísar og vilja borða
á fínum veitingastöðum ættu að
huga að borði í tíma.
í New York þykir mjög fint að
borða á veitingahúsinu Le Circue
2000. Ætli menn að njóta matar
þar á föstudags- eða laugardags-
kvöldi þýðir ekkert annað en að
panta borð með að minnsta kosti
sex vikna fyrirvara. Láti menn sér
nægja hádegisverð dugar þriggja
vikna fyrirvari.
Veitingahúsið Aubergine í
London slær þó öll met því þar er
biðin að meðaltali níu vikur eftir
borði að kvöldi til og mælt er með
þriggja mánaða fyrirvara vilji
menn borða á laugardagskvöldi. Á
virkum dögum er hugsanlegt að fá
borð í hádeginu með nokkurri
heppni.
Restaurant Alain Ducasse er
afar þekkt í París og þar er miðað
við sex vikna bið. Túristar sækja
gjarna staðinn í ágúst en þá eru
flestir Parísarbúar í sumarleyfi.
Líkamsrækt
í Eiffelturni
Flestir vita að það er hollara að
ganga upp stiga en taka lyftu. í Eif-
felturninum eru til dæmis 1.060
tröppur og þar á bæ hafa menn leitt
getum að því að með því að ganga
upp á sæmilegum hraða brenni
maður 280 kaloríum á leiðinni upp
en eitthvað minna á leiðinni niður.
Þetta er nokkuð nýstárleg aðferð
við líkamsrækt en þó ekki ekki svo
slæm. Ekki kváðu ferðamenn
brenna jafnmiklu þegar þeir ganga
upp stigana í Frelsisstyttunni en
þar eru tröppumar aðeins 354 og
gönguhraðinn ekki mikill vegna gif-
urlegra þrengsla í stigaganginum.
Mesta brennsla á sér þó stað í
pýramídum Egyptalands en upp-
gangan tekur um 20 mínútur og
áreynslan er á við fjallaklifur. í
kaupbæti er svo stórkostlegt útsýni
til Kaíró.
Mikil fjölgun
gesta í sumar
DV, Fljótum
Tæplega tíu þúsund og þrjú
hundruð manns komu í Upplýsinga-
miðstöð ferðamála í Varmahlíð í
sumar og er aukningin um 6.800
manns frá því árið á undan.
Ekki er ólíklegt að nýtt húsnæði
Upplýsingamiðstöðvarinnar hafi
dregið fólk að og sömuleiðis minja-
gripasala handverksfólks sem var í
sama húsi.
Komum íslendinga fjölgaði úr eitt
þúsund í 6900 en útlendingum fjölg-
aði aðeins um eitt þúsund og var að-
sóknin mest í júlímánuði. -ÖÞ