Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Page 43
- sem ág geri á tónlistarsviðinu, segir Bjarni Hafþór, „með á nótunum"
DV, Akureyri:
„Þegar ég lauk vinnu við upptök-
ur á þessum diski ásamt Kristjáni
Edelstein útsetjara og þeim öðrum
sem komu að gerð disksins, hélt ég
í einfeldni minni að nú væri mesta
vinnan að baki, verkinu væri eigin-
lega lokið. En það var nú öðru nær.
Ég hef komist að þvi að það er mjög
mikið verk að fylgja svona verki eft-
ir, að upptökum loknum taka við
viðtöl á útvarps- og sjónvarpsstöðv-
um, í blöðum, og að koma fram
sjálfur á öðrum vettvangi ef því er
að skipta," segir Bjarni Hafþór
Helgason, en hann hefur sent frá sér
sinn fyrsta geisladisk með eigin tón-
smíðum sem ber heitið „Með á nót-
unum“.
Það er óhætt að segja að á geisla-
diski sínum sýni Bjami Hafþór á
sér nýjar hliðar. Tónsmíðar hans
hafa þó heyrst oft áður en þá í flutn-
ingi annarra og t.d. gerði Akureyr-
arhljómsveitin Skriðjöklar nokkur
laga hans landskunn fyrir nokkrum
ánun. En þrátt fyrir þær tónsmíðar
er Bjarni Hafþór án efa þekktastur
fyrir að hafa starfað sem sjónvarps-
maður í áratug, lengst af fyrir Stöð
2 á Akureyri.
Ný reynsla
„Það að standa í kynningarstarfí
á sjálfum mér hefur auðvitað verið
ný reynsla fyrir mig, enda er ég
vanari þvi að vera hinum megin
borðsins og hef þá oftar en ekki ver-
ið i því hlutverki að koma þeim á
framfæri sem hafa verið að gefa eitt-
hvað út, geisladiska, plötur eða
bækur svo eitthvað sé nefnt. Þar af
leiðandi vissi ég nokkuð út á hvað
þetta gengur. Ég get heldur ekkert
kvartað undan viðtökunum, þær
hafa verið mjög góðar. Fólk á fórn-
um vegi hefur lýst yfir ánægju sinni
með lögin mín og það skiptir auðvit-
að mjög miklu máli fyrir mig.
Það fær mig til
að trúa því
að ég hafi
verið að gera
eitthvað gott
og það skiptir
höfuðmáli.
Það sem hef-
ur hins vegar
komið mér mest
á óvart er
hversu gífurlega
mikið framboð er
á nýjum geisla-
diskum á mark-
aðnum. Ég á hins
vegar erfitt með að
trúa því að í þá alla
hafi verið lagt jafn-
mikið fjármagn og í
mínu tiifelli."
- Hvað kostar disk-
urinn „Með á nótun-
um“? \
„Heildarkostnaður-
inn er talsvert á aðra
milljón sem mér skilst________
að sé nokkuð há fjárhæð „-arrl\ Hatj?°r' ”
miðað við það sem al- ^rarnfær'-
Bjarni geröi sér lítið fyrir og afhenti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra
Eins og sjá má var gjöfinni vel tekiö.
nokkur eintök af nýju geisluplötunni.
DV-mynd E.ÓI.
löngun minni að koma tónlistinni
minni á framfæri. Það er svo til að
kóróna það verk ef einhverjir aðrir
en ég njóta þess, þá er ég ánægður."
- En hver var aðdragandinn, þú
ert búinn að vera að semja tónlist
um árabil en hefur ekki drifið í
þessu fyrr?
en
annaö
kkert
warktn'ð'&ere
sem
mennt gerist þótt auðvit-
að hljóti að vera til dæmi
um diska sem hefur kostað meira að
framleiða."
Þá er ág ánægður .
- Varstu búinn að safna í sjóð
áður en þú fórst af stað í þetta verk-
efni?
„Nei, viðtökurnar verða að leiða
það í ljós hvort þetta dæmi kemur
til með að standa undir sér fjárhags-
léga. Annars hefur markmiðið með
þessari útgáfu aldrei verið fjárhags-
legt. Markmiðið hefur ekki verið
neitt annað en að fullnægja þeirri
„Ég var
búinn að velta því fyrir
mér í alllangan tíma að koma efni á
geisladisk og gera það með persónu-
legum hætti þannig að ég tæki sjálf-
ur þátt í flutningnum. Ég tók um
það ákvörðun í jánúar á þessu ári
að ráðast í þetta og upptökur hófust
síðan í maí. Það má segja að tvö ný
lög hafi orðið til þess að ég lét verða
af þessu og taldi mig vera kominn
með nægjanlegt efni í hendurnar.
Annars vegar var það lagið „ísland
fallega Island" og hins vegar lagið
„Nýfæddur." Síðar bættist svo við
rokklag sem heitir „Út í sveit“ og ég
var fyllilega sáttur við það sem ég
hafði í höndunum."
Persónulegur diskur
- Það vekur athygli að diskurinn
þinn er mjög persónulegur og þú til-
einkar t.d. ákveðnum
aðilrnn nokkur laganna.
„Já, það má segja að
það beri vitni þeirri
persónulegu hugsun
sem ég hef gagnvart
disknum að ég hef á
textablaði sem hon-
um fylgir, látið þess
getið hverjum nokk-
ur laganna eru til-
einkuð, og mér
finnst það sjálfsagt
vegna aðdraganda
þess að diskurinn
varð til. Ég hefði
t.d. aldrei látið
hann frá mér
fara án þess að
geta þess að síð-
asta lagið, sem
heitir „Heims-
ins ljós“ og
Óskar Péturs-
son Álfta-
gerðisbróðir
syngur, er
tileinkað
foreldrum
mínum.
Lagið hefur
ákaflega sérstaka
stöðu í mínum huga, ekki síst vegna
þess að foreldrar minir hafa sagt að
lagið skuli sungið við útfarir
þeirra.“
Syngur sjálfur
- Þetta lag er það eina á disknum
sem þú syngur ekki sjálfur. Þú ert
nú kunnur fyrir eitt og annað, en
ekki þó fyrir söng. Hvers vegna
varð þetta ofan á?
„Þetta hefur vakið nokkra at-
hygli, það er alveg rétt. Þeir sem
stjórnuðu þessu og höfðu mest um
það að segja að þetta varð niður-
staðan hafa síðar sagt að ákvörðun-
in hafi verið hárrétt, enda gefi þaö
disknum mun persónulegri blæ að
ég syng sjálfur. Magnús Kjartans-
son hljóðfæraleikari sagði t.d. við
mig á dögunum að þetta hafi verið
rétt ákvörðun og erlendis væri þessi
háttur frekar regla en undantekn-
ing. Hér á landi hefðu menn hins
vegar þá tilhneigingu að líta svo á
að ekki væru á eyjunni nema 3-4
söngvarar og þeir ættu að syngja
allt sem væri gefið út.“
Hvaða Lára?
- Eru einhver lög á disknum sem
þú álítur að geti orðið vinsælli en
önnur?
„Lögin eru farin að heyrast all-
nokkuð og það virðist sem „Lára,
ljúfa Lára“ ætli að gera það gott. Ég
hef fengið talsverðar fyrirspumir
um það við hvaða Láru sé átt í text-
anum. Af því verst ég þó allra frétta
enda er það pólitísk ákvörðun okk-
ar Eggerts Skúlasonar, sem samdi
textann með mér, að láta ekkert
uppi um það, sérstaklega í ljósi þess
a&komatónV's^^'S'gk
að textinn byggir að nokkru leyti á
sannsögulegum heimildum. Af öðr-
um lögum sem hafa fengið mikla
spilun get ég svo nefnt „ísland falj”"
lega ísland", „Heimsins ljós“ og „Út
í sveit" án þess að ég viti nokkuð
um það hvort þau eigi eftir að verða
vinsælli en hin.“
Bjarni Hafþór segir að óvæntasta
og gleðilegasta uppákoman í allri
þeirri vinnu sem var við diskinn og
myndbönd sem honum fylgdu, hafi
verið þegar myndbandið við „ísland
fallega ísland“ var gert.
„Það var löngu ákveðið að gera
myndband við þetta lag og ég var
þeirrar skoðunar að við það þyrfti
aðrar lausnir en hefðbundnar ís-
lenskar landslagsmyndir. Ég mundi
þá eftir því að nágranni minn á
æskuárunum á Húsavík, Jón Jó-
hannesson, sem lést í desember,
1994, hafði átt kvikmyndatökuvél og
tekið talsvert af myndum. Sigríður
systir hans leyfði mér að skoða
kvikmyndir úr safninu hans og þar
fann ég algjöra gimsteina sem voru
myndir í lit frá árunum 1968 til 1971
og þær myndir eru uppistaðan í
myndbandinu. Auk þess voru gerð
myndbönd við „Láru, ljúfu Láru“ og
„Út í sveif ‘ og þetta efni er nú kom-
ið á sjónvarpsstöðvarnar."
Dúett með Ragga
Bjarna
- Verður framhald á þessu, kem-
ur annar geisladiskur áður en langt
um líður eða er þetta „minnisvarð-
inn“?
„Ég held ég geti fullyrt að þetta er
ekki það síðasta sem ég geri á tón-
listarsviðinu. Ég get alveg látiö þess
getið hér að ég er langt kominn með
að semja lag sem við Ragnar Bjama-
son áætlum að syngja saman. Það
hefur vinnuheitið „Ferðamenn" og
ég held að við gætum orðið nokkuð
flottir félagarnir með það lag. Ég er
auðvitað nokkuð brattur að ætla að
fara að syngja með sjálfum Ragga
Bjarna en hann hældi mér fyrir
sönginn á disknum mínum svo ætli
maöur láti ekki bara slag standa.
Annars á ég aldrei lög á lager og
ég geymi aldrei lög sem ég er ekki
fullkomlega ánægður með. Mér fell-
ur hins vegar býsna vel að semja lög
fyrir einstaka tilefni og ég hef ekki
nokkrar áhyggjur af að geta ekki
hrist eitthvað fram úr erminni ef
mér býður svo við að horfa,“ sagði
Bjarni Hafþór.
-gk
Síöan eru liöin mörg ár... Bjarni Hafþór áriö 1989 meö hár niöur á heröar, við
hljómboröiö aö semja lag. DV-mynd gk.