Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Side 45
XJV LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997
„Ég nýt
þess aö vinna meö bömum
og mér hefur lærst að sýna þeim
mikla þolinmæði," sagði Díana. „Ég
kem einfaldlega fram við blaða-
menn eins og þeir séu böm.“
Hún áminnti blaðamenn blíðlega
þegar þeir gengu of langt. „Heyrðu,
Di,“ hrópaði einn, horfðu til
vinstri." Hún brosti vingjamlega.
„Ég heiti Díana,“ sagði hún rólega.
Hún hætti aldrei að
brosa.
Brast í grát
Hún hélt ró sinni
framan af en brast
þó einu sinni í grát
þegar heill flokkur
af bílum blaða-
manna var nærri
búinn að hrekja
hana út af veginum.
í annað skipti skildu
blaðamenn fúllir iðr-
unar eftir miða á
framrúðunni á bíln-
um hennar: „Þetta
var ekki ætlunin.
Við biðjumst vel-
virðingar." Hún
féllst á að sitja fyrir
þegar einn ljós-
myndarinn hafði
hrætt bömin á
bamaheimilinu,
sem hún vann á,
með því að skríða
inn um gluggann á klósettinu með
allan sinn búnað.
„Þú færð tvær mínútur," sagði
hún ákveðin. Leifturljósið blikkaði
fíómm sinnum og skelfdi tvö böm
sem ríghéldu í hana. Þetta urðu eft-
irminnilegar myndir sem sýndu
heiminum í fyrsta sinn þessa
blómarós. Hún haföi annað barnið á
mjöðm sér en hélt í hitt en áttaði sig
ekki á því að sólin skein gegnum
þunnt pilsið svo að allir gátu séð
það sem Karl kallaði „frábæra
leggi“. Undir myndinni stóð
„Glappaskot lafði Díönu.“ Bresku
blöðin hvöttu Karl til að gera þessa
falslausu stúlku að verðandi drottn-
ingu Englands.
Sunday Times sagði að hún
væri fullkomin; „alvarleg en
ekki leiðinleg, indæl en ekki um
of, fyndin en ekki kjánaleg,
íþróttamannsleg en ekki gróf-
gerð og kynþokkafull án þess
að vera áberandi.“
„Mér skilst að hún sé alveg
kjörin,“ sagði Nigel Dempster
á Daily Mail. „Það er búið að
tilkynna að hún sé nógu heil-
brigð til að geta af sér böm.“
í einni fyrirsögninni stóð:
„Karl, ekki Dlrolla." Önnur
var á þessa leið: „Maður
gæti Dláið fyrir hana.“
Blöðin væntu þess að
prinsinn bæri upp bónorð-
ið daginn sem hann yrði 32
ára í nóvember 1980, þegar
Díana dvaldi með honum
og öðmm í konungsfjöl-
skyldimni í Sandring-
ham. Fréttamenn slógu
upp tjöldum við búgarðinn og
biðu eftir tilkynningunni. Þeir
fylgdust með því þegar Díana kom
á föstudegi og þegar hún fór á
sunnudegi. Eftir að hún var farin
gekk Karl fram hjá þegar hann var
að viðra hundana sína.
„Því farið þið ekki heim til
kyennanna ykkar?" sagði hann.
„Ég veit að þið bjuggust við ein-
hverjum fréttum á föstudaginn og
ég veit að þið urðuð fyrir vonbrigð-
Prinsinn og prinsessan af Wales eftir giftingu þeirra
í Sankti Pálskirkjunni 29. júlí 1981.
um en þið fáið allir að vita þetta
bráðlega."
Prinsinn var ávittur í leiðara
Guardian þegar í ljós kom að
hann bar ekki upp bónorðið.
„Fréttimar sem bámst frá Buck-
inghamhöll í gærkvöldi voru mikil
vonbrigði fyrir þjóðina, sem er
þjökuð af ágreiningi í efnahags- og
stjórnmálum. Menn vom famir að
vona aö brúðkaupsklukkur ættu
eftir að yfirgnæfa þetta dægur-
þras.“
Þetta var Camilla
Það lá við að allt færi út um þúf-
ur þann 16. nóvember 1980 þegar
bókarkafíi
Sunday Mirror birti frétt á for-
síðu undir fyrirsögninni „Hin kon-
unglega ástarlest." Blaðið greindi
frá því að ónefndur lögregluþjónn
héldi þvi fram að lafði Díana hefði
átt tvær nætur í leyni með Karli
prinsi um borð í lestinni. í lestinni
var glæsilegt eldhús, setustofa og
svefnherbergi og var aðeins notuð
þegar konungsfjölskyldan ferðaðist
um starfs síns vegna. Sagan sagði
að Karl hefði verið um borð í lest-
inni eftir að hafa sinnt störfum
sínum í hertogadæminu í
Comwall og að hann hefði boðað
Díönu á sinn fund. Henni hefði síð-
an verið laumað gegnum vega-
tálma lögreglunnar um hánótt.
Með greininni fylgdi mynd af lest-
inni þar sem hún stóð í Wiltshire
og undir henni stóð: „Ástin
hlómstrar."
Gróflega misboðið
„Algjör ósvífni og helber ósann-
indi,“ þmrnaði blaðafúlltrúi drottn-
ingarinnar út úr sér. „Hennar há-
tign er gróflega misboðið." Höllin
krafðist afsökunarbeiðni og að
greinin yrði tekin til baka en rit-
stjórinn, Robert Edwards, sat fastur
við sinn keip. Hann sagði að hann
hefði eiösvama frásögn manns sem
hefði séð konu stíga um borð í lest-
ina tvær nætur í röð og dvelja í
nokkra tíma með prinsinum í svefn-
herbergi hans og laumast svo burt.
En ritstjóranum urðu á ein mistök,
hann hélt að ljóskan væri Díana.
„Þetta var Camilla Parker Bow-
les,“ sagði John Barratt. „Hún var
byrjuð aftur með Karli eftir að Mo-
untbatten dó og hún hringdi til að
votta honum samúð sína. Ég veit
þetta vegna þess að ég var að ganga
frá í Broadlands þá og var í stöðugu
sambandi við prinsinn. Hann leyndi
því ekki að frú Parker Bowles var
komin aftur í líf hans. Hann sagði
að hún væri að hjálpa honum að ná
áttum. Þau vom marga klukkutíma
saman, riðu út, fóm á veiðar og
skotveiðar. Hún kom fram eins og
gestgjafi hans i matarboðum, skipu-
lagöi hádegisverðarboð og helgar-
boð úti í sveitum. Auðvitað sá hún
líka um að útbúa gestalistann. Karl
kallaði hana Frigg sína.“ (sbr. Frjá-
dag í Róbinson Krúsó.)
„Hún var eins og sniðin fyrir
hann, hestamaður og greiðvikin.
Karl er rétt eins og allir mennimir
í Windsor, og þá tel ég með þá Lou-
is lávarð og FUippus prins. Þeir era
hrifnir af karlmannlegum konum.
Langir leggir í reiðbuxum. Þeir
vUja að konurnar þeirra líkist
hrossum."
(MiUifyrirsagnir eru blaðsins.)
LAGERSALAN
Bíldshöföa 14
Opnum lagersölu að Bfldshöfða 14 laugardaginn 29. nóvember.
Opið frá kl. 13-18.
* Mikið úrval af búsáhöldum, bökunarform í miklu úrvali.
* Mikið úrval verkfæra.
* Hillur í barnaherbergið, geymsluna, skórekkar o.fl.
* Strauborð og þurrkgrindur.
* Ðyssupokar, veiðivesti, peysur og bolir.
* Baromet og hitamælar.
*Eldhúsvogir og baðvogir.
* Ðurstavörur, gólfþveglar og gluggasköfur.
* Vörutrillur, ruslavagnar og hjólbörur.
* Snúrustaurar og úðunarkútar.
* Slöngur, allar stærðir og slöngutengi.
* Browning skotvesti.
* Mikið úrval af öðrum vöruflokkum.
V/SA
Gerið góð kaup á Lagersölunni
Opið alla daga frá kl. 13-18.
Ú t'llb b Ú^ílop'UJJJi l
fsláttur C
Gouda 26% í
éapakkningum á tilboði
í næstu verslun
kostaði áður 740 kr.
kostar núna 592 kr. ,
Þú sparar 148 kr. á kíló