Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Blaðsíða 47
- DV LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997 SYÍðsljÓSr Sjónvarpsþáttur um Mezzoforte eftir 20 ára starf: Gerum plötu - segir Eyþór Gunnarsson píanóleikari „Við höfum verið að malla i lága drifmu í nokkur ár og sjáum enga ástæðu til þess að hætta því meðan okkur bjóðast einhver áhugaverð tilboð. Það gerist alltaf annað slagið. Við erum alltaf að fara til einhverra furðulegra landa til þess að spila, bætum jafnt og þétt i safnið,“ segir Eyþór Gunnarsson, píanóleikari Mezzoforte, í samtali við DV. Hljóm- sveitin stendur á merkum tímamót- um því á þessu ári eru 20 ára frá því hún kom fyrst saman. Fjórir liðsmenn sveitarinnar hafa verið með frá byrjun, Jóhann Ás- mundsson bassaleikari, Gunnlaug- ur Briem trommuleikari, Friðrik Karlsson gítarleikari og Eyþór. Pilt- arnir hafa svo yfirleitt haft með sér saxófónleikara. Kristinn Svavars- son byrjaði með þeim en eftir að hann hætti leituðu þeir fanga út fyr- ir landsteinana. Nú hafa þeir fundið íslenskan blásara sem þykir standa sig sérlega vel. Drengur þessi er Óskar Guðjónsson. Alíslenskir á ný „Við höfðum engan hér á landi til þess að fylla skarð Kristins en með Óskciri urðum við alíslenskir á ný og starfhæfír aftur. Þá flutti Friðrik til London og flækti málið.“ Hvað með þetta mall í lága drif- inu? Hefur stefnan ekkert verið sett á að gíra drossíuna eitthvað upp? „Ég hugsa að við gerum plötu á næsta ári og síðan verðum við bara að sjá til hvernig það gengur. Við vöknum yfirleitt eitthvað til lifsins í kringum plötugerð en það þýðir ekkert að vera að skipuleggja eitt- hvað af viti fyrr en við sjáum hvað verður með plötuna, hvernig hún kemur til með að ganga.“ Eyþór segir lítið vera hægt að segja um plötuna eins og er, annað en að þeir hafi rætt um að gera hana. Hann segir vinnuna með Mezzoforte vera þeim yfirleitt kær- komin hvíld frá hinu daglega bauki. Sú vinna sé kannski það sem standi hjarta þeirra næst. Þar séu þeir að mestu leyti á sinum eigin forsend- um. Aðspurður hvort liðsmenn sveit- arinnar hafi breyst mikið á þessum 20 árum segir Eyþór svo vera. Þeir hafi vitaskuld þroskast eins og eðli- legt hljóti að teljast á þetta mörgum árum, að vísu svolítið hver i sína áttina en þeir finni sér yfirleitt ein- hvem sameiginlegan flöt þegar þeir komi saman. Til 30 landa „Tónlistin breytist nokkuð eftir því sem hver og einn kemur með nýja og nýja strauma inn í samstarf- ið. Þetta er alltaf jafngaman því með þessu samstarfi fáum við tækifæri til þess að gera fullt af hlutum sem við gætum ekki gert með neinni annarri hljómsveit. Við höfum ferð- ast til næstum 30 landa og fleiri slík eru alltaf inni í myndinni. Oftast fáum við einhver tilboð en ef þau koma ekki berum við okkur eftir þeim,“ segir Eyþór og bætir við, að- spurður um móralinn í bandinu, að þeir hafi starfað það lengi saman að þeir séu löngu búnir að hefla af aUa alvarlega vankanta. Þátturinn um sveitina verður sýndur á Stöð 2 næstkomandi mánudag. -sv Strákarnir í Mezzoforte komu saman á Stöð 2 á fimmtudaginn til þess að horfa á forsýningu að þættinum. Þessir fjórir hafa verið með frá byrjun en Óskar Guðjónsson saxófónleikari var ekki mættur. DV-mynd ÞÖK DENTIL 95 mm x 1,25m EGG & DART 95 min x 1,25m Kynningartilboð 30% afsláttur af skrautlistum og rósettum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.