Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Blaðsíða 60
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997 JjV
Reykjavíkurmót í tvímenningi 1997:
Sverrir og Magnús Reykjavrkurmeistarar
Eins og kunnugt er af fréttum þá
sigruðu Sverrir Ármannsson og
Magnús E. Magnússon í Reykjavík-
urmeistaramótinu í tvímenningi
sem haldið var í Bridgehöllinni við
Þönglabakka um sl. helgi.
Raunar var sigurinn tæpari en oft
áður því úrslitin réðust í síðasta
spili mótsins en þá spiluðu Sverrir
v
Umsjón
h 'V.. S)Ý}}.
------~:,v -----
Stefán Guðjohnsen
og Magnús við Guðmund Pál Amar-
son og Brian Glubog sem höfðu leitt
mótið svo til óslitið síðustu umferð-
imar. Glubog er bandarískur
bridgemeistari sem er hér staddur í
vetrarfrii og ætlaði sér að næla i
Reykjavíkurmeistaratitil. Sverrir
og Magnús komu í veg fyrir það og
-reyndar gersigraðu þeir í síðustu
lotunni og lentu Guðmundur Páll og
Brian í þriðja sæti á eftir feðgunum
Hjalta Elíassyni og Eiríki Hjalta-
syni.
Þátttaka var mjög léleg, aðeins 23
pör mættu til leiks og hefir þátttak-
an minnkað árlega. Ýmsar skýring-
ar hafa komið fram á því en ég held
að sú liklegasta sé að menn bíði
spenntir eftir því hvem Sverrir vel-
ur með sér og síðan sé áhuginn á
öðru sætinu takmarkaður.
En víkjum að þriðju síðustu lotu
dbúflQs
Óðinsgötu 7
við Óðinstorg
Sími 562 8448
mótsins en þá voru Sverrir og
Magnús í þriðja sæti og munaði 47
stigum á þeim og efsta pari sem var
Guðmundur Páll og Brian.
Markviss blekkispilamennska
Magnúsar leggur gildra fyrir sagn-
hafa sem hann fellur fyrir. Skoðum
það.
A/Allir
♦ 5
V KG874
-f ÁK72
* 964
4 ÁKD87
«1053
♦ 54
4 D108
4 G964
«Á
♦ D1098
4 ÁKG2
4 1032
« D963
♦ G63
4 753
Með Magnús og Sverrir í n-s og
Guðbjöm Þórðarson og Steinberg
Ríkarðsson í a-v gengu sagnir á
þessa leið:
Austur Suður Vestur Noröur
1 ♦ pass 1 « 14
1G pass pass pass
Auðvitað er klént hjá a-v að kom-
ast ekki í geim á 26 punkta en hvaða
geim? Þrjú grönd og fimm tíglar
standa á borðinu. En standa þrjú
grönd?
Sverrir, sem var með drottningu
meira en venjulega, að hans sögn,
spilaði út spaðatvisti, fimmið og
skák_______________________
Sverrir Ármannsson og Magnús E. Magnússon með verðlaunagripi sína.
kóngur frá Magnúsi. Síðan kom
spaðasjö og austur, sem vissi af
drottningunni fyrir aftan sig, lét ní-
una. Sverrir drap á tíuna, spilaði
meiri spaða og þeir félagar tóku
fimm fyrstu slagina. Það vora 120 til
a-v en algjör toppur fyrir n-s.
Fimm sagnhafar höfðu spilað
geim í grandi og unnið frá þremur
upp í fimm. Aðrir höfðu fengið fleiri
slagi í bút.
----/------------------------
Jón Viktor unglingameistari Islands
Skammt er stórra högga í milli
hjá Jóni Viktori Gunnarssyni, 17
ára gömlum skólapilti, sem á Hellis-
mótinu á dögunum krækti sér i 2.
áfanga að titli alþjóðlegs meistara.
Um síðustu helgi sigraði hann á
unglingameistaramóti íslands sem
ætlað er skákmönnum tvítugum og
yngri. Jón Viktor sýndi mikla
þrautseigju á mótinu og náði efsta
sætinu þrátt fyrir að hafa tapað
fyrstu skák sinni gegn Ómari Þór
Ómarssyni, ungum og efnilegum
skákmanni. Allar skákir sínar sem
eftir voru vann Jón Viktor og
hreppti þar með titilinn eftirsótta,
„Unglingameistari íslands 1997“.
Staða efstu manna varð þessi:
1. Jón Viktor Gunnarsson 6 v.
2. Bragi Þorfinnsson 5,5 v.
3. - 5. Björn Þorfmnsson, Berg-
steinn Einarsson, Arnar E. Gunn-
arsson 5 v.
6. Torfi Leósson 4,5 v.
7. - 10. Guðni Stefán Pétursson,
Guðjón Heiðar Valgarðsson, Janus
Ragnarsson og Ólafúr ísberg Hann-
esson, 4 v.
Að sigurlaunum hlýtur Jón Vikt-
or ferð á skákmót erlendis. Honum
gefst því kærkomið tækifæri til að
freista þess að ná siðasta áfanga að
alþjóðlega meistaratitlinum sem nú
er innan seilingar. Skákstjórn önn-
uðust Haraldur Baldursson og Sig-
urbjörn Björnsson.
Jón Viktor er sókndjarfur skák-
maður sem kýs frekar að láta vaða
á súðum en fara með löndum. Skák-
menn, sem þannig tefla, verða að
vera við því búnir að tapa einni eða
tveimur skákum í byrjun móts.
Fléttukóngurinn Mikhail Tal var
t.a.m. þekktur fyrir að þurfa nokkr-
ar skákir til þess að koma sigurvél-
inni i gang.
Tapskák Jóns Viktors í fyrstu
umferð var þessu marki brennd.
Skákina tefldi Jón bráðskemmtilega
en á einu andartaki varð honum á
fingurbrjótur sem ungur og efnileg-
ur andstæðingur hans var ekki
seinn að færa sér í nyt. Þess ber að
geta að umhugsunartími á mótinu
var aðeins 1 klukkustund til þess að
ljúka skákinni.
Hvítt: Jón Viktor Gunnarsson
Svart: Ómar Þór Ómarsson
Sikileyjarvöm.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bg5 e6 7. f4
Be7 8. Df3 Rbd7 9. Bd3 Dc7 10. 0-
0-0 b5 11. Hhel Bb7 12. Rd5! Rxd5
Mögulegt er að þiggja fómina
með 12. - exd5 sem hvítur svarar
best með 13. Rf5 með sóknarfærum.
13. exd5 Bxd5?
Þetta virðist sterkt en betra er 13.
- Bxg5 og áfram gæti teflst 14.
Hxe6+ fxe6 15. Dh5+ g6 16. Bxg6+
hxg6 17. Dxh8+ RfB 18. Rxe6 og hvít-
ur á ýmis færi í annars tvísýnni
stöðu.
14. Dxd5! exd5 15. Hxe7+ Kf8
16. Bf5 Hd8
17. Be6! f6
Svartur verður mát í 2. leik ef
hann þiggur þessa fóm.
18. Hf7+ Ke8 19. Rf5! Hg8 20.
Hel?
Einfaldast er 20. Hxd5 fxg5 21.
fxg5! og fyrr eða síðar kemur Rxd6+
og svartur verður að sætta sig við
tapað endatafl.
Dc5 21. Bxd7+??
Þrátt fyrir mistökin í 20. leik á
hvítur enn sigurstranglega stöðu en
þessi fingurbrjótur kostar skákina.
Athyglisvert er 21. He7+ Kf8 22.
Bxd7 fxg5 23. Be8 en svartur sleppur
út eftir 23. - Hxe8 24. Hxe8 Kf7 25.
Hle7+ Kf6 26. Hxg8 Kxf5 o.s.frv.
Besti leikurinn er hins vegar ein-
faldlega 21. Bh4! og þótt hvítur eigi
aðeins tvo létta menn fyrir drottn-
ingu er ekki að sjá að svartur bjargi
taflinu.
21. - Kxf7 22. He7+ KfB 23. Be6
Dgl+ 24. Kd2 Dxg2+ 25. Kdl Dg4+
26. Kd2 Dxf5! 27. Bxf5 Kxe7
- svartur stendur nú með
pálmann í höndunum og í 47. leik
lagði hvítur niður vopn.
Stórmót Investbankans
Alexei Sírov tapaði fyrstu og einu
skák sinni á Investbankamótinu í
Belgrad í lokaumferðinni og missti
þar með af sigurlaununum. Fyrir
umferðina voru Sírov, Ivantsjúk og
Anand jafnir og efstir - Ivantsjúk og
Anand gerðu jafntefli í sínum skák-
um en Sírov tapaði fyrir Beljavskí.
Úrslit mótsins urðu þessi:
1.-2. Vassily Ivantsjúk (Úkraínu)
og Viswanathan Anand (Indlandi) 6
v. af 9 mögulegum.
3. Alexei Sírov (Spáni) 5,5 v.
4. - 6. Joel Lautier (Frakklandi),
Vladimir Kramnik (Rússlandi) og
Boris Gelfand (Hvíta-Rússlandi) 5 v.
7. Alexander Beljavski (Slóveníu)
4,5 v.
8. Kiril Georgiev (Búlgaríu) 3,5 v.
9. Ljubomir Ljubojevic (Júgóslav-
íu) 3 v.
10. Alexander Kovacevic (Júgó-
slaviu) 1,5 v.
Ivantsjúk var úrskurðaður sigur-
vegari vegna hagstæðari stigatölu
en Anand. Hann þótti hafa teflt
listavel, sérstaklega vakti skák hans
við Beljavskí athygli. Ivantsjúk lét
sér hvergi bregða þótt kóngsstaða
hans virtist opin og hélt ótrauður
áfram markvissri stöðubaráttu. Þeg-
ar betur var að gáð var enginn
sóknarmáttur í aðþrengdri svörtu
stöðunni og svo fór að lokum að
Beljavskí réð ekki við þungann.
Hvítt: Vassily Ivantsjúk
Svart: Alexander Beljavskí
Gamal-indversk vöm.
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. f3 e5 4. Re2
Be7 5. c4 0-0 6. Be3 c6 7. Dd2
Rbd7 8. d5 cxd5 9. cxd5 Rh5 10.
Rbc3 Rb6 11. b3 h6 12. 0-0-0 Bg5
13. g4 Bxe3 14. Dxe3 Rf6 15. Rg3
a5 16. h4 a4 17. Kb2 axb3 18. axb3
Rbd7 19. Bb5 Rc5 20. b4 Ra6 21.
Hal Rh7 22. Rfl Bd7 23. Bxd7
Dxd7 24. Db6 Hfc8 25. Re3 RfB
26. Kb3! Re8 27. Rc4 De7 28.
De3 Hd8 29. g5 h5 30. Hhcl g6 31.
Rb5 Hab8 32. f4 Dd7 33. Hc3 De7
34. Dxf4 Hbc8 35. Hc3 De7 36.
Ha2! Rac7 37. Rd4 Ha8 38. Hf2
Hal 39. Hcf3 Hbl+ 40. Kc3 Hd7
41. Rb6
- og svartur gafst upp því að f7
verður ekki varinn.
Atmót öölinga
Júlíus Friðjónsson vann allar
skákir sínar á atskákmóti öðlinga -
40 ára og eldri, sem lauk í vikunni.
Hann hlaut 9 vinninga. í 2. sæti
varð Jóhann Öm Sigurjónsson með
8 v. og Sigurjón Sigurbjörnsson kom
næstur með 5,5 v.
Skákstjóri var Ólafur S. Ásgríms-
son.