Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1997, Síða 62
70
LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1997
Bjarni Guðbjörnsson
Bjarni Guðbjömsson, fyrrv. m.a. í stjórn þingmanna
bankastjóri og alþingismaður,
áttatíu og fimm ára í dag.
er
Starfsferill
Bjami fæddist í Reykjavík. Hann
lauk gagnfræðaprófi frá MR 1930 og
kennaraprófi frá KÍ1941.
Á ámnum 1933 til 1939 var Bjarni
bifreiðarstjóri í Reykjavík en hóf
störf við Útvegsbanka íslands 1941
og starfaði við þann banka allt til
1983 er hann lét af störfum sökum
aldurs. Hann var ráðinn útibústjóri
við Útvegsbankann á ísafirði 1950
og gegndi því starfi í tæpan aldar-
fjórðung, varð útibússtjóri í Kópa-
vogi 1973 en á árunum 1974-83 var
hann aðalbankastjóri við Útvegs-
bankann í Reykjavík.
Á ísafirði var Bjarni bæjarfull-
trúi fyrir Framsóknarflokkinn
1955-70, þar af forseti bæjarstjórnar
1962-66. Hann sat í miðstjórn Fram-
sóknarflokksins og var alþm. fyrir
Vestfirði 1967-74, eftir að hafa verið
varaþingmaður tvö kjörtímabilin
þar á undan. Bjami hefur gegnt
mörgum trúnaðarstörfum og setið í
stjórn fjölda stofnana og fyrirtækja,
samtaka Atlantshafsbanda-
lagsins 1971-74. Hann var
lengi norskur vararæðis-
maður á ísafirði og hefur
starfað fyrir Knattspyrnufé-
lagið Val í Reykjavík.
Fjölskylda
Bjarni kvæntist 1.11. 1941
Gunnþórunni Bjömsdóttur,
f. 14.11. 1919, húsmóður.
Hún er dóttir Björns Krist-
jánssonar, f. 22.2. 1880, d. 10.7. 1973,
kaupfélagsstjóra á Kópaskeri og
alþm., og Rannveigar Gunnarsdótt-
ur, f. 6.11.1901, d. 29.1.1991, húsmóð-
ur.
Böm Bjarna og Gunnþórunnar
eru Bjöm Ragnar, f. 15.5. 1943, við-
skiptafræðingur og framkvæmda-
stjóri í Reykjavík, kvæntur Jó-
hönnu Brynjólfsdóttur lyfjatækni, f.
22.5.1946; Þórdís, f. 25.4.1948, d. 5.10.
1995, hárgreiðslu- og skrifstofumað-
ur í Reykjavík, en eftirlifandi mað-
ur hennar er Henrik G. Thoraren-
sen, f. 1.5. 1950; Gunnar Þór, f. 8.4.
1957, sagnfræðingur og framhalds-
skólakennari, kvæntur Jóhönnu
Einarsdóttur talmeina- Torfasonar, á Hvallátrum, Brands-
Bjarni
Guöbjörnsson.
fræðingi, f. 8.6. 1958.
Bjami á sjö bamabörn.
Bjarni er einn eftirlif-
andi systkina sinna en
þau vora: Sigríður, f. 4.10.
1901, d. 27.7. 1930, búsett í
Reykjavík; Jens, f. 30.8.
1903, d. 1.5. 1978, bók-
bandsmeistari og íþrótta-
frömuður í Reykjavík;
Friðjón, f. 23.10. 1905, d.
29.3. 1982, vélstjóri og síð-
ar sundhallarvörður í Reykjavík;
Torfí, f. 5.12. 1907, d. 18.3. 1983,
starfsmaður hjá tollstjóra, búsettur
í Reykjavík; Þórdís, f. 30.4. 1910, d.
17.6. 1923; Ásgerður Jensína, f. 31.8.
1914, d. 24.10. 1930.
Foreldrar Bjarna vora Guðbjöm
Guðbrandsson, f. í Miklagarði í
Saurbæ 9.7. 1875, d. 26.7. 1927, prent-
ari og bókbindari í Reykjavík, og
Jensina Jensdóttir, f. 25.3. 1879 á
Hóli í Hvammssveit, d. 25.12. 1930,
húsfreyja.
Ætt
Guðbjörn var sonur Guðbrands,
b. í Miklagarði í Saurbæ í Dölum
sonar. Móðir Guðbrands var Guð-
rún Einarsdóttir.
Móðir Guðbjöms var Guðrún
Tómasdóttir, b. í Steinadal í Kolla-
firði, Jónssonar, b. á Hólum í Reyk-
hólasveit, Björnssonar. Móðir
Tómasar var Guðrún Guðbrands-
dóttir. Móðir Guðrúnar Tómasdótt-
ur var Kristín Árnadóttir, b. í
Steinadal, Jónssonar.
Jensína var dóttir Jens, hrepp-
stjóra og dbrm. á Hóli í Hvamms-
sveit, Jónssonar, b. í Ásgarði, Magn-
ússonar. Móðir Jens var Ingibjörg
Bjarnadóttir.
Móðir Jensínu var Sigríður Daní-
elsdóttir, prests í Ögurþingum,
Jónssonar, prests á Auðkúlu, Jóns-
sonar. Móðir Daníels var Ingibjörg
Oddsdóttir, prests er hvarf frá
Miklabæ í Skagafirði, Gíslasonar,
biskups Magnússonar. Móðir Odds
var Ingibjörg Sigurðardóttir, lög-
sagnara að Geitaskarði, Einarsson-
ar. Móðir Sigríðar var Ólöf Tómas-
dóttir í Hvalsnesi, Jónssonar.
Bjarni verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Hörður Kristinsson
Dr. Hörður Kristinsson, grasa-
fræðingur og forstöðumaður Akur-
eyrarseturs Náttúrufræðistofnunar
íslands, til heimilis að Amarhóli í
Eyjafjarðarsveit, er sextugur í dag.
Starfsferill
Hörður fæddist við Oddagötu á
Akureyri en ólst upp að Amarhóli í
■J Kaupangssveit, nú Eyjafjarðarsveit.
Hann lauk stúdentsprófi frá MA
1958, námi í grasafræði, dýrafræði
og plöntusjúkdómum frá háskólan-
um í Göttingen 1962 og doktorsprófi
í grasafræði frá Göttingen 1966.
Hörður vann að rannsóknaverkefn-
inu Fléttuflóra íslands við Duke-há-
skólann í Bandaríkjunum 1967-70.
Hörður var grasafræðingur við
Náttúrugripasafnið á Akureyri og
Lystigarð Akureyrar 1970-77,
stundakennari við MA 1970-71 og
við HÍ 1971-76 og prófessor í grasa-
fræði við HÍ 1977-87. Hann var for-
stöðumaður Náttúrugripasafnsins
1974-77 og hefur verið forstöðumað-
ur Náttúrufræðistofnunar Norður-
lands á Akureyri er síðar var nefnt
Akureyrarsetur Náttúrufræðistofn-
unar íslands, frá 1987.
Hörður hefur skrifað fjölda rit-
gerða og greina varðandi grasa-
fræðilegar rannsóknir í íslensk og
erlend tímarit. Hann er höfundur
plöntuhandbókarinnar, útg. á ís-
lensku 1986, á ensku 1987 og á þýsku
1990.
Fjölskylda
Hörður kvæntist 22.9. 1988 Sig-
rúnu Björgu Sigurðardóttur, f. 22.11.
1948, launafulltrúa hjá Akureyrar-
bæ. Hún er dóttir Sigurðar Guð-
laugssonar, fyrrv. bónda á Hafurs-
stöðum, og Auðbjargar Albertsdótt-
ur húsfreyju.
Hörður kvæntist fyrri konu sinni
1.6. 1963, Önnu Maríu Jóhannsdótt-
ur, en þau skildu 1978. Hún er dótt-
ir Jóhanns Konráðssonar söngvara
og Fanneyjar Oddgeirsdóttur.
Böm Harðar: Fanney Harðardótt-
ir (kjördóttir), f. 15.11. 1961,
röntgentæknir á Akureyri, gift Sig-
fúsi Hreiðarssyni og eiga þau tvö
böm; Inga Björk Harðardóttir, f.
12.11. 1964, gullsmiður á Akureyri,
gift Rúnari Friðrikssyni, hún á eitt
barn frá fyrri sambúð.
Systkini Harðar eru Magnús
Kristinsson, f. 13.6. 1943, kennari,
leiðsögumaður og þýðandi, búsettur
í Stuttgart í Þýskalandi; Hallmund-
ur Einar Kristinsson, f. 2.12. 1946,
leikmyndateiknari á Akureyri;
Kristinn Örn Kristinsson, f. 28.8.
1957, tónlistarkennari og píanóleik-
ari i Reykjavík.
Foreldrar Harðar eru Kristinn
Sigmundsson, f. 13.11.1910,
fyrrv. bóndi að Amarhóli í
Kaupangssveit, og k.h.,
Ingveldur Hallmundsdótt-
ir, f. 7.10. 1913, fyrrv. hús-
freyja að Arnarhóli.
Ætt
Kristinn er bróðir
Finns, fyrrv. landsbóka-
varðar. Kristinn er sonur
Sigurmundar Kristins, b. á
Ysta-Hóli í Kaupangssveit,
bróður Önnu, ömmu Stefáns Frið-
bjömssonar, fyrrv. sveitarstjóra á
Siglufirði. Sigurmundur var sonur
Bjöms, b. á Svertingsstöðum, bróð-
ur Guðmundar, langafa Guðnýjar
Guðmundsdóttur konsertmeistara.
Systir Björns var Dýrleif,
langamma Bjöms Friðfinnssonar
hjá Reykjavíkurborg og Stefáns
Friðfinnssonar hjá íslenskum aðal-
verktökum. Björn var sonur Guð-
mundar, b. á Grýtu, Jóhannssonar,
bróður Þuríðar, ættmóður Skútu-
staðaættarinnar. Önnur systir Guð-
mundar var Sigurlaug, langamma
Sigrúnar, móður Kristjáns Eldjárns
forseta. Móðir Bjöms var Anna Ás-
mundsdóttir. Móðir Sigmundar var
Matthildur Þorfinnsdóttir, b. á Litlu
Hámundarstöðum, Jónssonar. Móð-
ir Kristins á Amarhóli var Friðdóra
Guðlaugsdóttir, b. á Þröm í
Garðsárdal, Jóhannesson-
ar, og Guðnýjar Jónasdótt-
ur.
Ingveldur er dóttir Hall-
mundar, trésmiðs á Brú á
Stokkseyri, Einarssonar, b.
í Brandshúsum, Einarsson-
ar, b. í Butra í Fljótshlíð,
Einarssonar. Móðir Hall-
mundar var Þórann Hall-
dórsdóttir, trésmiðs á
Teigi, Guðmundssonar og
Guðbjargar Guðmundsdótt-
Móðir Ingveldar var Ingibjörg
Bjamadóttir, b. í Túni, Eiríkssonar,
b. þar, bróður Kristínar, langömmu
Brynjólfs Bjarnasonar, heimspek-
ings og ráðherra. Eiríkur var sonur
Bjarna, b. í Árbæ, Stefánssonar,
Bjarnasonar, ættföður Víkingslækj-
arættarinnar Halldórssonar. Móðir
Eiríks var Margrét Eiríksdóttir,
ættfóður Bolholtsættarinnar Jóns-
sonar. Móðir Bjama í Túni var
Hólmfríður Gestsdóttir, b. i Vorsa-
bæ Guðnasonar og Sigríðar JSigurð-
ardóttur, systir Bjama riddara.
Móðir Ingibjargar var Guðflnna
Guðmundsdóttir, b. í Hróarsholti
Tómassonar.
Hörður og Sigrún Björg taka á
móti gestum að heimili sínu, í dag,
laugardaginn 29.11., frá kl.
15.00-18.00.
Hörður
Kristinsson.
ur.
Nicolína Kjærbech
Vigfúsdóttir
Nicolína Kjærbech Vig-
fúsdóttir skrifstofumaður,
Álfaskeiði 3, Hafnarflrði,
verður sextug á morgim.
Starfsferill
Nicolína fæddist í
Sumba í Færeyjum og ólst
þar upp. Auk húsmóður-
starfa hefur hún verið um-
boðsmaður Happdrættis
DAS í Hafnarfirði í tuttugu
og fímm ár. Þá er hún starfsmaður
Sjómannafélags Hafnarfjarðar.
Fjölskylda
Nicolína giftist 30.8. 1958 Óskari
Vigfússyni, f. 8.12. 1931, fyrrv. for-
seta Sjómannasambands íslands og
- formanni Sjómannafélags Hafnar-
fjaröar. Hann er sonur Vigfúsar
Jóns Vigfússonar og Epiphaníu Ás-
J bjömsdóttur í Hafnarfirði.
' Böm Nicolínu og Óskars era Val-
borg K. Óskarsdóttir, f. 7.8.
1958, skrifstofumaður, gift
Finnboga Guðmundssyni
bifvélavirkja, eiga þau tvö
böm; Óskar Ásbjörn Ósk-
arsson, f. 26.8. 1958, starfs-
maður hjá ísal, kvæntur
Hjördísi Ö. Jónsdóttur dag-
móður, eiga þau fjögur
börn; Ómar Óskarsson, f.
18.2. 1963, framkvæmda-
stjóri, kvæntur Erlu Maríu
Kristinsdóttur hjúkranar-
fræðingi og eiga þau þrjú börn.
Systkini Nicolínu: Kathrína, f.
1.12. 1928, d. 1.11. 1969; Jacob, f. 19.9.
1931, d. 4.4.1941; Jacoba, f. 19.9.1942,
húsmóðir í Þórshöfn í Færeyjum,
gift Kristjáni Jensen.
Foreldrar Nicolínu: Niels Pauli
Kjærbech, f. 28.11. 1904, d. 10.4. 1981,
kóngsbóndi, og Valborg Kjærbech, f.
27.9. 1904, húsmóðir i Þórshöfn.
Nicolina er í útlöndum á afmælis-
daginn.
Nicolína Kjærbech
Vigfúsdóttir.
Kristján Pálsson
Kristján Pálsson vél-
fræðingur, Bakkavegi 33,
Ísafírði, er fimmtugur í
dag.
Starfsferill
Kristján fæddist á ísa-
firði en ólst upp á Flateyri.
Hann stundaði nám við
Héraðsskólann á Núpi,
lauk þaðan gagnfræða-
prófl 1963, lærði vélvirkj-
un í Vélsmiðju Hafnarfjarðar
1963-68 er hann lauk sveinsprófi í
þeirri iðngrein, stundaði nám við
Vélskóla íslands og lauk þaðan prófi
1971.
Kristján var vélfræðingur hjá
RARIK við Mjólkárvirkjun 1971-72,
yfirvélstjóri á Páli Pálssyni ÍS-102
1972-77 en hefur síðan verið vél-
fræðingur og verkstjóri hjá Orku-
búi Vestfjarða.
Fjölskylda
Kristján kvæntist 25.11. 1972
Ólöfu Helgadóttur, f. 14.10.1950, hús-
móður. Hún er dóttir Helga Bjöms-
sonar og Kristjönu Jónasdóttur.
Böm Kristjáns og Ólafar
era Jóna Lind Kristjáns-
dóttir, f. 20.1. 1968, leik-
skólakennari í Hnífsdal,
maður hennar er Guð-
mundur Rafn Kristjánsson
og era dætur þeirra Silja
Rán og Hekla Dögg; Karit-
as Elísabet, f. 29.8. 1972,
starfsmaður hjá Flugleið-
um, búsett í Reykjavík,
maður hennar er Þröstur
Hilmarsson og er sonur þeirra
Hilmar; ísak, f. 8.9. 1977, starfsmað-
ur hjá Orkubúi Vestfjarða; Rakel
Helena, f. 1.4. 1981, nemi við Fram-
haldsskóla Vestfjarða.
Systkini Kristjáns: Matthías, nú
látinn; Sigþór; Sturlaugur; Aðal-
heiður Guðbjörg; Pálína; Matthías.
Foreldrar Kristjáns: Páll Ásgeirs-
son, sem nú er látinn, vélstjóri á ísa-
flrði, og k.h., Þorgerður Jensdóttir
húsmóðir sem nú dvelur á Hlíf II á
ísafirði.
Kristján og Ólöf taka á móti gest-
um í félagsheimili Orkubús Vest-
Qarða í Engidal í dag, laugardaginn
29.11., kl. 20.00.
Kristján Pálsson.
Til hamingju
með afmælið
29. nóvember
85 ára
Einar H. Björnsson,
Hjarðarhaga 40, Reykjavík.
Guðmundur Pétursson,
Hrafnistu í Hafnarfirði.
75 ára
Margrét Kristinsdóttir,
Sólheimum 23, Reykjavík.
60 ára
Ásmundur Hallgrímsson,
Háaleitisbraut 28, Reykjavík.
Hann verður að heiman.
Hulda Þorvaldsdóttir,
Rjúpufelli 46, Reykjavík.
50 ára
Lúðvík Hraundal,
Stífluseli 4, Reykjavik.
Magnús Pétur Karlsson,
Miðgarði 3, Keflavík.
Rúnar Eiríkur Siggeirsson,
Amartanga 81, Mosfellsbæ.
Björn Gunnarsson,
Dalbraut 39, Akranesi.
Benedikt Jóhannsson,
Krossanesi, Þverárhreppi.
Seselía María
Gimnarsdóttir.
Hjallalundi 16, Akureyri.
40 ára
Hafliði Guðmundur
Guðjónsson,
Álakvísl 71, Reykjavík.
Rún Rafnsdóttir,
Álakvísl 48, Reykjavík.
Bjöm Erlingsson,
Laufengi 164, Reykjavík.
Sigrún Árnadóttir,
Gerðhömram 21, Reykjavík.
Sólrún Ámadóttir,
Gullengi 1, Reykjavík.
Helga Geirþrúður
Þorvaldsdóttir,
Borgarholtsbraut 68,
Kópavogi.
Smári Hlöðversson,
Reynihvammi 4, Kópavogi.
Þórey Guðmundsdóttir,
Álfatúni 33, Kópavogi.
Sigurbjarni Þórmundsson,
Súlunesi 3, Garðabæ.
Björn Guðbrands Ólafsson,
Þúfu, Mosfellsbæ.
Fróði Oddsson,
Hríseyjargötu 5, Akureyri.
------777777]
Smáauglýsinga
'ýMM'
xm
m
deild DV
er opin:
• virka daga kl. 9-221
• laugardaga kl, 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Skilafrestur smáauglýsinga
erfyrir kl. 22 kvölaið fyrir
birtingu.
Alh. Smáauglýsing í
Helgarblað DV verður þó að
berast okkur fyrir kl. 17 á
fösfudag.
aW milli hirr)in.
- son ,
Smáauglýsingar
550 5000