Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1999, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
Fréttir________________________________________________________________pv
Rannsókn á hrossatollum hér á landi:
Mjög viðamikið mál
- segir forstöðumaöur tollgæsludeildar ríkistollstjóra
„Við erum að vinna að þessu máli
í samstarfi við önnur embætti hér
innanlands, sem málið er skylt,“
sagði Hermann Guðmundsson, for-
stöðumaður tollgæsludeildar ríkis-
tollstjóra, við DV, aðspurður um
gang rannsóknar vegna gruns um
tollsvik á íslenskum hrossum sem
seld hafa verið til Þýskalands.
Fulltrúi frá þýska tollinum var
staddur hér á landi fyrir nokkru og
afhenti íslenskum rannsóknaraðil-
um gögn varðandi málið. Hér á
landi er málið unniö af embætti rík-
istollstjóra, embætti rikislögreglu-
stjóra og embætti skattrannsóknar-
stjóra. Sakarrannsókn hér á landi
er undir forræði ríkislögreglustjóra.
Þýski tollurinn hefur sagt að ætla
megi að rangt verð hafi verið gefið
upp á stórum hluta hesta, sem seld-
ir hafi verið til Þýskalands, til að
komast hjá tollagreiöslum. Kveðast
talsmenn hans munu áætla verð á
þau íslensku hross sem grunur leiki
á að hafi verið seld á þennan hátt til
Þýskalands og ganga síðan að þeim
sem bera ábyrgð á tollafgreiðslu
hestanna í Þýskalandi. Við verð-
lagninguna muni þau leggja til
grundvallar ættartölur hrossanna
o.fl. Þýski tollurinn hefur m.a. unn-
ið að því að afla sér slíkra gagna hér
á landi undanfama daga.
„Heimsókn fulltrúa þýska tollsins
er ekki byrjun á neinu hér heirna,"
sagði Hermann, „því athugun á
þessum málum hefur staðið yfir í
talsverðan tíma. Þýski tollurinn er
búinn að vinna að þessu máli í
nokkur ár. Rannsóknin hér snýr að
íslendingum hér heima sem hafa
selt hross til útlanda. Það er ekki
hægt að neita því að hér er um mjög
viðamikið mál að ræða.“
Hermann kvaðst ekki vilja tjá sig
um rannsóknina í einstökum atrið-
um. -JSS
Tónlistarverðlaun aldarinnar veitt í Háskólabíói 29. desember:
Aldamótaveisla tónlistarmanna
- ágóðinn til krabbameinssjúkra og langveikra barna
Aldamótaveisla íslenskra tónlist-
armanna verður haldin í Háskóla-
bíói miðvikudaginn 29. desember.
Þar munu margir af helstu tónlist-
armönnum landsins troða upp og
skemmta gestum og tónlistarverð-
laun aldarinnar verða síðan veitt
tónlistarmönnum sem þykja hafa
skarað fram úr á þessu árþúsundi.
Atkvæðagreiðsla á tónlistarmönn-
um og verkum aldarinnar fer fram
á Vísi.is. Atkvæðagreiðslunni er
skipt upp í átta flokka sem eru:
Rokkari aldarinnar, tónlistarmaður
aldarinnar, plata aldarinnar, lag
aldarinnar, söngkona aldarinnar,
söngvari aldarinnar, rokkhljóm-
sveit aldarinnar og ballhljómsveit
aldarinnar.
Að þessari aldamótaveislu standa
Vifilfell, DV, íslenska útvarpsfélag-
iö, Vísir.is, Háskólabíó og Hard
Rock Café. Stjórnandi tónleikanna
verður Einar Bárðarson.
Þetta er annað árið í röð sem efnt
er til þessara tónleika en allur ágóði
rennur til Styrktarfélags krabba-
meinssjúkra barna og Umhyggju, fé-
lags til stuðnings langveikum börn-
um.
Hönnuöur verðlaunagripa sem
afhentir verða í Háskólabíói er
Ragnhildur Stefánsdóttir.
Forsala aðgöngumiða hefst 27.
desember. Miðaverð er 1999 krón-
ur í forsölu en 2000 krónur ef
keypt er við innganginn. Skorað
Auöur B. Guömundsdóttir, markaösstjóri Frjálsrar fjölmiölunar, Einar Báröarson, framkvæmdastjóri Hard Rock,
Pálmi Guömundsson, verkefnastjóri íslenska útvarpsfélagsins, og Einar Logi frá Háskólabíói kynna aldamótaveisl-
una. Fremst á myndinni sést verölaunagripur Ragnhildar Stefánsdóttur.
DV-mynd E.ÓI.
er á fólk að taka þátt í atkvæða- arinnar á Vísi.is. og að tryggja sér amir upp á einum sólarhring.
greiöslu um tónlistarverðlaun ald- miða i tíma en í fyrra seldust mið- -hlh
Sælt er að gefa
Jólaóðir fslendingar
æða nú um stræti og
torg í leit að jólagjöfum
handa fjölskyldu og
vinum eða í matarinn-
kaupum. Ekkert skal
til sparað. í bullandi
góðæri getur enginn
verið þekktur fyrir að
skera við nögl í
jólainnkaupum. Og
komi sú stund í stríð-
inu að mönnum fínnist
þeir ganga heldur vask-
lega fram í innkaupun-
um og eru svo ábyrgir
meðan posavélin dritar
út strimlinum að hugsa
til skuldadaga í byrjun
febrúar geta þeir alltaf
huggað sig við þau
gömlu góðu sannindi
að sælla er að gefa én
þiggja. En það er held-
ur ekki alslæmt að
þiggja svo bæði þiggjendur og gefendur hugsa sér
gott til glóðarinnar. Og væntingamar eru sums
staðar miklar. Enda bullandi góðæri.
Og þar sem sælt er að gefa hlýtur að vera
sælla að gefa meira og enn sælla að gefa enn
meira. Sókn í sælu gefandans gerir að verkum
að sífellt sælla verður að þiggja. Og svo sælt get-
ur það orðið að stundin við jólatréð, þetta kort-
er sem tekur að rifa utan af öllum gjöfunum,
segja takk og njóttu vel til skiptis, líður eins og
örskot. Skyndilega er allt búiö. Hlaupin, stress-
ið, sólundið og eyðslan springur eins og risa-
flugeldur í faömi fjölskyldunnar og deyr jafnóð-
um út. Eftir spennu síðustu daga ríkir sérkenni-
legt tóm i hugum margra þar sem þeir virða fyr-
ir sér tættan jólapappírinn. Spumingin um
hvort öll lætin hafi verið þess virði leitar á hug-
ann. En þá er það of seint. Nei, enga armæðu.
Við teygjum okkur eftir konfektmola og rifjum
enn og aftur upp gömlu sannindin um að sælla
sé að gefa en þiggja.
Vera kann að þeir sem sækja kirkju og heyra
jólaguðspjallið gefl boðskap jólanna meiri gaum
- í það minnsta um stund. En risaflugeldurinn
springur líka í stofu sannkristinna og þar læð-
ast sömu efasemdirnar um hugann eftir að allt
hefur fyllst af pappírsmsli. Og svona líða jólin
hver á fætur öðrum.
í öllum látunum vill oftar en ekki gleymast að
gjafir einskorðast ekki einungis við veraldlega
hluti. Við teljum okkur reyndar trú um að jólin
séu sá timi þegar fólk er gott hvað við annað, að
þá ráði manngæskan for. En sú trú ristir stund-
um grunnt, er oftar en ekki eins og friöþæging
eða sefjun. Reyndin sú er að fjöldi fólks, ekki
síst það sem komið er til ára sinna og saknar
samvista við önnum kafna góðærisþrælana, get-
ur ekki hugsað sér betri gjöf en einmitt samvist-
ir við þessa þræla. Að hittast og spjalla og láta
sér líða vel saman. En annríkið, hlaupin og
stressið lokar augum margra fyrir þessum gæð-
um lífsins sem ekki verða metin í krónum og
aurum en eru samt svo óendanlega dýrmæt. Og
það í bullandi góðæri. Það getur sannarlega ver-
ið sælla að gefa en þiggja.
Dagfari
sandkorn
Rauð jól
Bókaútgáfan Bjartur er ekki
stór aö vöxtum en vex sífellt ás-
megin í útgáfumálum. Meðal
bóka sem mikla athygli hafa vak-
ið eru Harry Pott-
er og óskasteinn-
inn eftir Jó-
hönnu Rowling
og Hvildardagar
eftir Braga
Ólafsson. Harry
Potter hefur
slegið sölumet
víða um heim
og þess vegna
var sett í gang veðmál þar sem
bókmenntavitringar og fleiri,
bæði innan útgáfunnar og utan,
lögðu rauðvínsflöksu undir.
Lærðustu menn spáðu sölu upp
á 9 til 11 þúsund eintök. Auglýs-
ingateiknari Bjarts, sem ekki er
jafn forframaður í bókmennta-
fræðum og flestir sem hann um-
gengst í vinnunni, var hins veg-
ar mjög ákveðinn og spáði því að
12.499 eintök mundu seljast. Nú
stefnir salan hins vegar í 13 þús-
und eintök og ljóst að auglýs-
ingateiknarinn fer rjóður og sæll
í jólafrrið...
Áhlaup
Fjarskiptaheimurinn nötraði
af geðshræringu eftir að opnuð
voru tilboð á fjarskiptatenging-
um hjá Ríkiskaupum. Verið var
að bjóða út fjar-
skiptatengingu um
ljósleiðara á milli
Landspítala og
Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Tvö
fyrirtæki buðu í
verkið: Lands-
síminn og
Lína.Net, dótt-
urfyrirtæki
Orkuveitu Reykjavíkur.
Skemmst er frá því að segja að
Lína.Net átti lægra tilboðið
(13.170.000 á móti 13.332.000
Landssímans). Þykir mörgum
sem Landssíminn hafi heldur
hlaupiö á sig í þessu fyrsta al-
vöru útboði á fjarskiptatenging-
Hvaða Þjótur?
Elínbjörg Magnúsdóttir,
einn af þremur bæjarfulltrúum
Sjálfstæöisflokksins á Akranesi,
gagnrýndi harðlega á síðasta
fundi bæjarstjóm-
ar Akraness
hvernig fundar-
gerðir íþrótta-
nefndar Akranes-
kaupstaðar væru
settar fram. Það
væri hámark að
fólk gæti skilið
hvaö verið væri
að færa til bók-
ar í fundargerðum nefndarinnar.
Elínbjörg sagði að þar mætti lesa
styrkbeiðni frá Þjóti. Það gæti
hins vegar verið hvaða Þjótur
sem er, eyja út undan, hafnsögu-
báturinn eða íþróttafélagið Þjót-
ur. Krafðist hún þess aö fram
kæmi frá hverjum þessara
þriggja „aðUa“ beiðnin hefði
komið...
Heimild skert
Fréttir af skert
um úttektarheim-
ildum á nektar-
búllum hafa vak-
ið áhuga hag-
yrðinga lands-
ins enda yfir-
leitt fljótir tU
þegar umræð-
an tengist ver-
öld neðan mittis.
Ég get ekki gandinn minn hert
því gengió á rétt minn er bert
og örlögin ei mild,
og úttektarheimild
er vandfengin víöast og skert.
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is