Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.1999, Page 31
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1999
Éeiðivon
Veiðisögur úr ýmsum áttum
Það hefur vakið feiknalega athygli,
„útlendingastússið" í Grimsá í Borg-
arfirði en þar á að fjölmenna með þá í
júní til veiða. Byrjunin í Grímsá hef-
ur oft verið góð en síðan dettur veiðin
niður og menn eru að fá einn og einn
lax. Dagurinn með leiðsögumanni er
að verða næstum 80 þúsund.
Útlendingatíminn hefur yfirleitt
ekki byrjað fyrr en í júlíbyrjun og
jafnvel seinna en hann er alltaf að
færast framar og framar,- þó svo lax-
inn komi ekkert fyrr í laxveiðiámar
en hann gerði í fyrra og hittiðfyrra.
Og þeir sem veiddu fyrst 1 Grímsá eru
auðvitað ekkert hressir með þetta
mál, enda smnir haldið tryggð við ána
lengi.
Við heyrðum um daginn að ef veið-
in yrði slöpp í júní væri hægt að láta
þessa útlendinga mála veiðihúsið. Eða
eins og þeir gerðu á Norðurlandi fyr-
ir fáum árum, þegar útlendingamir
veiddu ekki neitt. Það var bara farið
með 'þá í næsta silungsvatn og þá
mokveiddi liðið hvern fiskinn á fætur
öðmrn.
Mokveiddi af
bleikju í veiðiánni
Stangaveiðifélagið Lax-
á vex með hverju árinu og
núna bjóða þeir upp á
veiðileyfi í fjölda veiðiáa,
eins og Miðíjarðará,
Langadalsá í ísafjarðar-
djúpi, Brynjudalsá í Hval-
firði, Hafralónsá í Þistil-
firði, Straumunum í Borg-
arfirði og Bjarnarfjarðará
á Ströndum, auk veiði í
sjóbirting og silung víða
um land.
Og Lax-á býður upp á
fleira, eins og veiðiferðir
til útlanda. Vekja veiði-
ferðir til Grænlands
mikla athygli. Veiðimenn
hafa verið að fjölmenna
til Grænlands hin seinni
ár, bæði til að veiða
bleikju og skjóta hrein-
dýr.
Við fréttum af einum
sem fór þarna í fyrra í
bleikju og mokveiddi,
hann fann litla veiðiá þar sem helling-
ur var af fiski og tók bleikjan grimmt
hjá honum. Mest veiddi hann á flug-
una og voru stærstu bleikjurnar
kringum 4 pund. Verð fyrir svona
veiðiferðir til Grænlands er frá 72.000.
Veiðimaðurinn kominn út
Veiðimaðurinn, málgagn stanga-
veiðimanna, er nýkominn út og kenn-
ir þar ýmissa grasa, eins og viðtal við
„kónginn" Bubba Morthens, en hann
veiddi 31 dag síðasta sumar í Laxá í
Kjós og veiddi vel. Rafn Hafnfjörð
skrifar um Kristján heitinn Gíslason
en veiðimenn eiga honum mikið að
þakka fyrir að hafa hnýtt allar þessar
fengsælu flugur. Og rætt er við Jón
Inga Ágústsson og Þór Nílsen og lýst
fimmta svæðinu í Grenlæk. Sport-
veiðiblaðið er ekki væntanlegt fyrr en
í janúar höfum við fregnað.
(Jóla)veiðisaga
Sumir veiðimenn eru ekkert að
segja veiðisögur allt árið og vilja bara
hafa þær fyrir sig. Við fréttum af ein-
um sem opnaði allar gáttir fyrir
skömmu og hóf að segja veiðisögur í
góðra vina hópi. Sagðist hann hafa
lent i því síðasta sumar að setja í lax
og missa hann. Þetta var stór fiskur
og var hann lengi með fiskinn. Lík-
lega hefur þetta verið um 20 punda
lax. Seinna um sumarið kom hann aft-
ur i ána og renndi þar sem fiskurinn
var og aftur beit hann hann á, sá
stóri, en slapp aftur. Var veiðimaður-
inn orðinn verulega fúll en hann átti
dag um haustið og renndi þá í sama
hylinn og aftur tók sá stóri, stóð bar-
áttan yfir í nokkum tíma en loksins
hafði veiðimaðurinn betur. Sporðtók
hann laxinn, sem var orðinn verulega
leginn og svo hrygna í þokkabót.
Ákvað hann að sleppa henni fyrst hún
hefði haft betur allt sumarið og eftir
nokkrar vikur kæmi hún ánni til
góða. En þegar hann sleppti fiskinum
brá fyrir glampa í augunum á honum
um leið og honum var sleppt aftur út
í hylinn.
Ég hélt nú að best vaeri að nota bara eina stöng
í einu.
Fallegir 14k hringar á
frábæru verSi, bæði úr
hvítagulli og gulu gulli.
Hringdu og fáðu okkar fallega
skartgripabækling sendan til þín.
Laugavegi 49,
sími 561 7740.
108 Reykjavík
Opið
mánudag 20.des. 10-22
þriðjudag 21.des. 10-22
miðvikud. 22.des. 10-22
fimmtud. 23.des. 10-23
föstudag 24.des. 9-13
1
Sunnuhlíð sími:462 4111
RúUragapeysa
Peysa m/ísaumi
Buxiir
3.499-
3.890-
2.640-
Faxafeni 8 sími: 533 1 555