Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Page 5
I
f
I baráttusætinu
í dag er kosið um það hverjir stjórna Reykjavíkurborg næstu fjögur árin. Þessar
kosningarsnúast um framtíðarsýn, hvaða stefnu við viljum að borgin taki á næstu
árum. Þegar Reykjavíkurlistinn tók við fyrir átta árum settum við málefni barna
og fjölskyldna í öndvegi og höfum unnið markvisst að stórfelldri uppbyggingu í
skólum og leikskólum. Þetta er í samræmi við sýn okkar um Reykjavík sem
barnvæna og manneskjulega borg.
Við höfum lagt grunn að samfélagi nýrrar aldar. Nú beinum við sjónum að
framtíðinni. Ég vil að Reykjavík verði alþjóðleg og vistvæn höfuðborg sem stenst
samjöfnuð við það sem best gerist í heiminum. Reykjavík á að vera borg fyrir
fólk, þar sem skólar og leikskólar eru í fremstu röð, borg umhverfisverndar og
hreinnar náttúru, borg íþrótta og blómlegs menningarlífs, borg sem skapartrausta
og góða umgjörð fyrir öflugt og framsækið atvinnulíf. Reykjavík á í senn að vera
glæsileg heimsborg og gáður heimabær.
Við göngum í dag til tvísýnna kosninga. Kannanir sýna að brugðið getur til beggja
vona, sérstaklega í ljósi fjölda framboða, og ekki er víst að það nægi að Reykja-
víkurlistinn fái fleiri atkvæði en Sjálfstæðisflokkurinn. Eina trygga leiðin er að
Reykjavíkurlistinn fái hreinan meirihluta greiddra atkvæða. Ég erí baráttusæti
Reykjavíkurlistans og verð ekki borgarstjóri nema ég nái kjöri sem borgarfulltrúi.
í dag bið ég um traust ykkar og stuðning.
Nú getur hvert einasta atkvæði skipt máli. Ég hvet ykkur til að velta fyrir ykkur
stefnu og trúverðugleika framboðanna og fylgja síðan eigin sannfæringu þegar
í kjörklefann er komið.
L