Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Page 37
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2002
Helqarhlací DV
37
En er þá ekki erfitt fyrir mann-
eskju sem er vön mælitækinu að fá
ekki hlátur á alvarlegum sýning-
um? Viðbrögðin eru ekki jafn aug-
ljós?
„Ég held ekki. Ég hef alveg dott-
ið ofan í þá gryfju að halda að ég
þurfi alltaf að vera fyndin. Ég þarf
að passa mig á því.“
Og nær það út fyrir leiksviðið?
„Nei, það er bara í hlutverkun-
um. Nei nei, ekki í lífinu sjálfu.“
Hætt að herma eftir
Fórstu mikið í leikhús þennan
tíma sem þú stóðst að mestu leyti
utan leikhússins?
„Eiginlega ekki neitt. Ég datt
alveg út úr þessu og fannst gott að
hvíla mig. Ég varð samt að vinna
aðeins til að framfleyta mér.“
Hvemig var að koma aftur í
Þjóðleikhúsið eftir þetta langa
hlé?
„Mér fannst það allt í lagi. Ég
var satt að segja alveg búin að fá
nóg þegar ég hætti. Kannski var
það af því ég vissi að ég væri að
hætta. Það er eins og þegar mað-
ur selur íbúðina sína; síðasta
mánuðinn sem maður býr í henni
er maður alveg að krepera 1
henni. Ég kveið rosalega fyrir því
að byrja aftur, var svolitið feimin.
Svo er þetta fínt.“
Þú komst inn í Strompleikinn
eftir Laxness á miklum Laxness-
tímum.
„Ekki eyðilagði það nú. Stromp-
leikurinn er frábært leikrit og
mér finnst Kristín Jóhannesdóttir
frábær. Ég hef unnið með henni
áður í Svo á himni sem á jörðu og
í Nemendaleikhúsinu og dýrka
hana létt sem manneskju. Það er
svo nærandi að vinna með henni.
Leikarastarfið fer alveg eftir fólk-
inu sem maður vinnur með, leik-
urum og leikstjórum. Það getur
verið skemmtilegasta starf í
heimi og líka það ömurlegasta."
Fyrst þú ert hætt að geta hermt
eftir fólki af samúð með fórnar-
lömbunum getur maður þá ekki
búist við því að sjá þig á árshátið-
um og þorrablótum?
„Jú, ég skemmti á árshátíðum.
Ég er bara hætt að herma eftir."
Þú ert sem sagt ekki hætt að
vera fyndin?
„Nei, alls ekki. Ég hef gaman af
því. Já já. En þetta er yfírlýsing-
in: ég er hætt að herma eftir fólki!
Og ef ég geri það þá getur fólk
rekið þetta blað framan i mig.“
Heldurðu að fólk taki því al-
mennt illa þegar hermt er eftir
því?
„Ég er auðvitað meira í því að
herma eftir konum og ég held að
þær séu viðkvæmari fyrir því en
karlar. Stjórnmálamönnum finnst
ofsalega gaman þegar hermt er
eftir þeim. Og ef mér líður illa
þegar ég hermi eftir fólki þá á ég
ekki að vera að þvi. Ég veit að
þetta er asnalegt og óþarfa við-
kvæmni en þetta er bara staðan
hjá mér í dag. Ég vorkenni fólk-
inu sem ég hermi eftir og þá líður
mér illa. Og af hverju ætti ég að
vera að því? Eins og þegar ég
hermdi eftir Björk - þá hugsaði ég
með mér: æ henni þykir þetta ör-
ugglega leiðinlegt."
Nú vil ég svngja meira
Hvað er fram undan hjá þér?
„Þegar þú komst hringdi þjóð-
leikhússtjóri í mig og bauð mér
hlutverk í verki sem verður sett
upp á stóra sviði Þjóðleikhússins i
haust. Það er gaman að þvi. Svo er
ég líka að fara að leika hjá Jóni
Hjartarsyni 1 umferðarverkefni,
eins konar Jónasardæmi þar sem
ég er kerlingin. í sumar fer ég svo
til Seyðisfjarðar með Helgu Brögu
þar sem við vinnum leiklist með
fólkinu.
Mig langar líka til að syngja
meira. Núna er pokinn fullur og
mig langar að semja meiri tónlist
og syngja.“ -sm
Avísun a
góða ferð
m MasterCard
5.000 kr. Ferðaávísun við stofnun korts
Upphæð ávísunar tengd veltu kortsins
innanlands siðustu 2 ár.
BBSM BTSrfc
hJ TERfíA ^
mrNOVAi JSS
Ferdaávisun MasterCard er hægt aö nýta sem greiösiu inn
a eina pakkaferö i leiguflugi meö feröaskrífstofum í samstarfi
við MasterCard. Greiða þarf feröina meö MasterCard kortinu
sem ávisunin er stíluð á.
ATLAS korthafar safna 4 kr. af hverjum
1.000 kr. og Gullkorthafar 5 kr. af
hverjum 1.000 kr.
Nánari upplýsingar á www.europay.is
eóa í síma 550 1500.
r
Master
• *
www.atlaskort.is
Vertu í beinu sambandi
við þjónustudeildir DV
550 5000 ETCT
ER AÐALNUMERIÐ
;
f
Smáauglýsingar Auglýsingadeiid Drei/ing Þjónustudeild Ljósmyndadeild Íþróttadeiíd
550 5700 550 5720 550 5740 550 5780 550 5840 550 5880