Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2002, Qupperneq 54
54
HelQarblacf DV LAUOARDAGU R 25. MAÍ 2002
Njáll
Gunnlaugsson
UTAN UR HEIMI
Vívaro Combi
og Panei Van
frumsýndir
Opel frumsýndi ó dögun-
um tvœr nýjar útgáfur af
Vivaro sendibílnum. Opel
Vivaro Combi er lítil rúta
sem tekur allt að níu I sœti
í þremur sœtaröðum en
Panel Van bíllinn er með
meira hjólahaf og því meiri
fiiutningsgetu. Vivaro hlaut
fyrir skömmu titilinn „Sendi-
bíll ársins 2002“ í Evrópu
og bœtir þetta því við þá
möguleika sem í þessum
skemmtilega vinnubíl eru
fólgnir. í Combi er hœgt
að panta bílinn með
tveimur sœtaröðum fyrir
meira pláss í farangursrými,
og einnig er hœgt að fella
niður miðjusœtaröðina til
að auka það enn frekar.
Panel Van bíllinn er með
400 mm lengra hjólahafi
og lágu gólfi þannig að
auðvelt er að ferma og
afferma bílinn.
! x
Hummer H2
og Lexus 470-
á íslandi
Nokkuð mikið hefur verið
um það að undanförnu
að erlendir bílaframleið-
endur velji Island til töku á
kynningarmyndböndum
og auglýsingum fyrir bíla
sína. Stutt er síðan nýr
Range Rover var hér og
einnig Hyundai Sonata,
auglýsing fyrir Skoda Fabia
var tekin hér fyrir tveimur
árum og svo má lengi
telja. Um þessar mundir er
verið að taka hér auglýs-
ingu fyrir nýja Hummer-
jeþþann sem er mikið
breyttur frá fyrri gerð.
Segja má að þar sé kom-
inn hefðbundnari bíll,
enda er notað í hann
margt úr öðrum jeppum,
eins og Suburban, þótt
hann sé með svipaða yfir-
byggingu og stœrri bíllinn.
Þar að auki eru menn hér
frá Lexus-bílaframleiðand-
anum við tökur á kynning-
armyndbandi fyrir andlits-
lyftingu á Lexus 470-jepp-
anum. Að sögn Björns
Víglundssonar, markaðs-
stjóra P. Samúelssonar,
munu þeir aka hringinn og
taka upp um allt land. „Bíl-
inn fáum við svo hingað
sem Toyota Land Cruiser
100, en þeir eru nánast
eins," segir Björn, og er
vœntanlegur íhaust.
Með minnstu
sexuna
Daewoo hefur hannað
nýja sex strokka línuvél
sem er svo fyrirferðarlítil að
hún kemst fyrir þversum í
nýja Daewoo-fólksþílnum,
Daewoo Magnus, sem á
að verða lítið eltt stœrri og
fiottari en Daewoo
Leganza. Nýja sexan er
kölluð XK6 og verður í boði
með 2,01 og 2,5 I rúmtaki.
Hún er samsett úr eining-
um þannig að auðvelt
verður að raða henni upp
í fimm, fjögurra, þriggja
eða jafnvel tveggja
strokka úrfœrslum, ef
henta þykir. Heildarlengd
er 642 mm sem Daewoo
segir það stysta sem til er í
6 strokka línuvélum. Þetta
litla umfang fœst með því
að hafa þykkt strokkveggj-
anna aðeins 6 mm í stað-
inn fyrir 8-10 mm. Vanda-
málið var að ná nœgilegri
kœlingu samfara efnis-
styrk. Vinna vlð þessa vél
hefur nú tekið sjö ár og að
mestu farið fram í Evrópu,
undir stjórn Ulrich Bez sem
stýrði rannsóknar- og þró-
unardeild Daewoo þar til
henni var lokað árið 2002.
Meðal þeirra sem komu
að verkinu má nefna
hönnunardeild Porsche.
Sjálfskiptingin verður frá ZF
en handskipti gírkassinn frá
Getrag.
Fiat-Hitachi jaröýtan - smekkleg og nýstárleg hönnun.
FIAT-HITACHI
jarðýta - sérstök
áhersla á vinnu-
umhverfi
í byrjun maí kynnti Kraftur hf. nokkrar vinnuvélar
frá Fiat-Hitachi. Kynntar voru beltagrafa, traktors-
grafa, smágrafa, hjólaskófla og jarðýta. Mesta athygli
vakti jarðýtan fyrir smekklega og nýstárlega hönnun
hvað varðar útlit og aðbúnað en húsið er sérstaklega
hannað með þægilegt og aðgengilegt vinnuumhverfi í
huga. Það er sérlega vel hljóðeinangrað og er útsýni
fram á tannarhomin með því besta sem völ er á. Jarð-
ýta þessi hefur týpuheitið D 180 LGP. Eigin þyngd er
22,330 kg án rippers. Þessi vél er á 915 mm breiðum
beltum, m/beinni tönn 3900 mm breiðri en einnig er
hægt að fá U-laga tönn. Ripper er einnig fáanlegur. Vél-
in er Cummings 6CTA 8,3 204 hö við 2000 snúninga á
min. Gírskipting er 3 gíra vökvaskipting (power shift).
Stiilanlegir armpúðar eru báðum megin við sæti sem
jafnframt má stilla á hæð og halla. Fremst á vinstri
armpúða eru stjórntæki fyrir áfram og afturábak, gíra
og beygjur. Hægra megin eru stjómtæki fyrir tönn og
fyrir ripper. í þessari vél er sérstök áhersla lögð á
tæknileg útfærslu driflínu og búnaðar, einnig með til-
liti til viðhalds. Húsinu er hægt að velta til hliðar með
vökvabúnaði til að auðvelda aðgengi að hinum ýmsu
hlutum t.d. gírkassa og vökvadælum. Jarðýta eins og
þessi kostar kr. 14.940.000 með vsk.
-SHH
Kraftur með HIAB
og Multilift
HIAB-krana þarf varla að kynna hér á landi, en þeir
hafa um langt árabil verið með vinsælustu bílkrönum á
Islandi. Kraftur hf„ umboðsaðili fyrir m.a. MAN-vörubif-
reiðar og Fiat-Hitachi-vinnuvélar, hefur tekið við sölu-
umboði fyrir HIAB-krana og Multilift krókheisi.
Fulltrúar HLAB og Multilift komu til landsins á dög-
unum og fékk starfsfólk Krafts þjálfim á sviði sölu,
varahluta og viðgerða og getur Kraftur nú boöið við-
skiptavinum sínum fullkomna varahluta- og viðgerða-
þjónustu fyrir HLAB og Multilift.
HIAB hefur framleitt bílkrana frá árinu 1946 og selt
yflr 400.000 vökvaknúna krana frá upphafi. Boðið er upp
á 50 mismunandi gerðir af krönum og em þeir fáanlegir
með lyftigetu frá 0,8 til 70 tonnmetrar.
Multilift er leiðandi framleiðandi á krókheisum í Evr-
ópu og era þau fáanleg í stærðunum 3-40 tonn. -SHH
kraftue
Báðir glaðir með samninginn: Hakan Daníelsson,
svæðis- og sölustjóri fyrir Evrópu, og Björn Erlings-
son, framkvæmdastjóri Krafts hf.