Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Page 1
ÁRSRIT
Rœktunarfélags Norðurlands
RITSTJÓRI: JÓHANNES SIGVALDASON
62. ÁRGANGUR
1965
Ræktunarfélag Norðurlands.
NÝTT VERKEFNI OG VIÐHORF
í lögum Ræktunarfélags Norðurlands, er samþykkt voru
á stofnfundi þess 1903, er stefna félagsins mörkuð með eftir-
farandi grein:
„Tilgangur félagsins er: 1) Að láta gera nauðsynlegar til-
raunir til jarðræktar á Norðurlandi. 2) að útbreiða meðal
almennings þekkingu á öllu því, sem að jarðrækt lýtur.“
Til þess að framkvæma þessa stefnuskrá var tilraunastöð
félagsins stofnuð, og margvíslegar tilraunir í hverskonar
jarðrækt stundaðar þar um fulla fjóra tugi ára, og jafnframt
var gefið út ársrit, sem auk tilraunaskýrslna flutti fræðandi
og vekjandi greinar um jarðræktarmál og önnur viðfangs-
efni landbúnaðarins.
Þegar Gróðrarstöðin á Akureyri hóf starf sitt, var til-
raunastarfsemi lítt þekkt í landinu, og fæsta menn dreymdi
þá um, að jarðrækt og landbúnaður yfirleitt gæti og ætti að
vera reist á vísindalegum grundvelli. Og margir voru van-
trúaðir á gildi vísindanna í þeim efnum. Fyrsti formaður
félagsins, Pdll Briem, kemst svo að orði í fyrstu og einu