Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Side 14
14
Engin þeirra gekk í félagið, en auk þeirra stóð einungis
einn bóndi utan félagsins, roskinn maður, Egill Ebenesers-
son á Breiðabólstað.
Hér hafði því tekizt óvenju giftusamlega. Það er ekki
hægt að segja annað en að allir hreppsbúar stæðu einhuga
að félagsskapnum. Hér hefir notið við góðrar forustu, enda
var Olafur á Sveinsstöðum „fyrir öðrum bændum“, en svo
er komizt að orði um hann í íslenzkum Æviskrám.
Á 22 jörðum eru alls 28 bú, 24 giftir bændur og 4 konur.
Séu húsfreyjurnar taldar með verða húsráðendur alls 52 og
er meðalaldur þeirra 41 ár. Víða er margt fólk í heimili,
enda er meðal heimilisstærð 10.8 manns. Gjaldskyld lausa-
fjárhundruð allra búanna er 415.5 hndr., og verður þá
meðal búið tæpl. 14.8 hndr. Þrátt fyrir töluvert hátt meðal-
tal er mikið um lítil bú, enda verða 17 þeirra lægri en
meðaltalið.
Það væri freistandi að gefa frekari upplýsingar um ábú-
endurna, en rúmsins vegna verður nú einungis rætt nánar
um ábúðartímann.
Af bændunum voru fjórir þeirra, sem höfðu haft búskap
eða bjuggu síðar á öðrum jörðum í hreppnum:
1. Tómas Jónsson Bjarnastöðum bjó síðar 17 ár í Brekku-
koti. Ábúðartími hans því í hreppnum alls 29 ár (1854—83).
2. Björn Jónsson Grundarkoti hafði áður búið á Breiða-
bólstað (1860—61) og Miðhúsum (1861—63). Býr því 5 ár
í hreppnum.
3. Helgi Helgason Miðhúsum hafði áður búið í Grundar-
koti í 13 ár. Býr því 31 ár í hreppnum (1850—81).
4. Jón Ásgeirsson Þingeyrum bjó í 2 ár á Leysingjastöð-
um (1871—73). Býr því 15 ár í hreppnum, en ekki samfellt.
Af konunum fjórum, sem ráku sjálfstæðan búskap í
hreppnum, voru þrjár þeirra ekkjur bænda í Sveinsstaða-
hreppi:
1. Björg Jónsdóttir Bjarnastöðum, ekkja Jóns Halldórs-
sonar, sem bjó þar í 6 ár á undan henni.
2. Anna María Guðmundsdóttir ekkja Kristins Sveins-
sonar, sem þar bjó í 14 ár á undan henni.