Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Side 28
28
gjöld. Hugsanlegt er að einhver fundahöld hafi þó farið
frara, en ótrúlegt er að þau skuli þá ekki hafa verið færð
til bókar, þar sem gjörðabók félagsins var í vörzlum stjórn-
ar þeirrar, sem kosin var 1876.
En hvað var þá um verklegar framkvæmdir?
Jarðabótaverðlaun.
Oruggar heimildir eru fyrir því, að á áratugnum 1870—
80 var töluvert unnið að jarðabótum í Sveinsstaðahreppi, en
hvort Búnaðarfélag Sveinsstaðahrepps hefir þar átt hlut að
máli er óvíst. Búnaðarfélag Húnavatnssýslu varð aldrei
annað en einstaklingafélag, og 1877 á það félag 7 félags-
menn í Sveinsstaðahreppi, en þeir eru þessir:
1. Árni Erlendsson, Hólabaki.
2. Sr. Eiríkur Briem, Steinnesi.
3. Guðrún Þorgrímsdóttir, Hjallalandi.
4. Helgi Helgason, Miðhúsum.
5. Jóhann Snorrason, Breiðabólstað.
6. Jón Olafsson, Sveinsstöðum.
7. Tómas Jónsson, Brekkukoti.
Það má hugsa sér, að Búnaðarfélag Húnavatnssýslu hafi
hér tekið að nokkru að sér hlutverk heima félagsins, og það
m. a. dregið úr áhuga manna á að starfrækja sjálfstætt bún-
aðarfélag heima í hreppnum.
Á árunum 1876 og 77 fengu 3 Sveinsstæðingar jarðabóta-
verðlaun frá Búnaðarfélagi Húnavatnssýslu, þeir:
1. Helgi Helgason, Miðhúsum .............. kr. 10.00
2. Tómas Jónsson, Brekkukoti.............. — 30.00
3. Guðrún Þorgrímsdóttir, Hjallalandi .... — 30.00
Árið 1877 skiptast félagsmenn Búnaðarfélags Húnavatns-
sýslu þannig á hreppa sýslunnar:
1. Vindhælishreppur ................ 1 félagsmaður
2. Engihlíðarhreppur................. 7 félagsmenn
3. Bólstaðarhlíðarhreppur ........... 6 félagsmenn
4. Svínavatnshreppur ............... 13 félagsmenn
5. Torfalækjarhreppur................ 4 félagsmenn
6. Sveinsstaðahreppur ............... 7 félagsmenn