Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Blaðsíða 86
87
ar umfram þetta. Kvíga, sem gefur 15 kg af 4% feitri mjólk
á dag, þarf því að fá 4 kg af kjarnfóðri* auk heyfóðurs-
ins.
Hér að framan hefur aðeins verið rætt um vetrarfóðrun-
ina, en þann tíma, sem kýrnar ganga í haga, getur fóðrunin
orðið með allt öðrum hætti, þó verður munurinn mestur,
þegar beitt er á vel ræktað land og beitin er vel skipulögð,
en þá á ég við, að þess sé gætt, að gróðurinn, sem beitt er á,
sé allan beitartímann í sprettu og hæfilega vaxinn. Þetta
kann að vera erfitt, en benda má á eftirfarandi tilhögun:
I júní, eða fyrst eftir að kýrnar koma út er málið auðvelt,
því þá er túngróðurinn í örastri sprettu. í júlí er erfitt að
hafa góða beit nema eitthvað af túnum hafi verið slegið
mjög snemma, svo þau séu orðin nægilega sprottin aftur
til beitar í júlíbyrjun. í ágúst á að vera nóg til af hæfilega
sprottinni há til beitar. í september þarf svo að vera hægt
að beita á grænfóður, hafra, fóðurkál, nýjar sáðsléttur o.
s. frv.
Þá þarf líka að nýta beitarlandið haganlega, annaðhvort
hafa beitarhólfin smá og skipta oft um hólf, eða afmarka
daglega með rafgirðingum hæfilega spildu til beitar. Æski-
legt er að flokka kýrnar eftir nythæð og láta þær, sem eru
í hæstri nyt, taka það Ijúffengasta af beitinni, en hinar, sem
minna mjólka, koma síðar í beitarhólfin. Hagkvæmt er að
láta kýr hafa aðgang að úthaga með ræktuðu beitinni. Sé
þessa vel gætt, auk nokkurra annarra atriða, sem sjálfsögð
eru í sambandi við beit í afgirtum hólfum, svo sem að
drykkjarvatn skorti ekki, að gripirnir hafi aðgang að fóð-
ursalti o. fl., þá á ekki að þurfa að gefa teljandi kjarnfóður
um beitartímann, að minnsta kosti ekki kúm, sem mjólka
undir 18—20 kg á dag, en það verður að sjálfsögðu mats-
atriði í hvert sinn, hvort beitin er svo góð, að þetta fái stað-
izt. Sé hins vegar kjarnfóður gefið með sæmilega ræktaðri
beit, á aðeins að nota kolvetnaríkt fóður, korntegundir,
melassa eða því um líkt. Allt öðru máli gegnir ef kýr ganga
* Hér er gert ráð fyrir að kg af kjarnfóðri samsvari 1 F.E.