Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1965, Side 94
95
Fundarseta framanskráðra fulltrúa var samþ. samhljóða.
Auk þess sátu fundinn: Steindór Steindórsson, Ólafur
Jónsson, Jónas Kristjánsson, Skafti Benediktsson, Egill
Bjarnason, Árni Jónsson, Jón Rögnvaldsson og Ævar Hjart-
arson.
2. Skýrsla stjórnarinnar:
Formaður flutti skýrslu stjórnarinnar. Gat hann þess m. a.
að samkv. samþ. síðasta aðalfundar hefði Gróðrarstöðin ver-
ið seld ríkinu, söluverð hennar varð 1.5 millj. kr. Unnið
hefði verið að stofnun efnarannsóknarstofu á Akureyri.
Fengið væri loforð fyrir húsnæði og ráðinn forstöðumaður
að efnarannsóknarstofunni, Jóhannes Sigvaldason, en hann
lýkur námi í Kaupmannahöfn nú á næstunni. Þá gat hann
um þau fjárframlög, sem loforð væru fyrir til efnarannsókn-
arstofunnar, en þau næmu nú ca. 1 millj. króna.
3. Reikningar ársins 1963:
Framkvæmdastjóri félagsins, Ólafur Jónsson, lagði fram
og skýrði endurskoðaða reikninga félagsins fyrir árið 1963.
Eftir að hann hafði lesið og skýrt reikningana gat hann
þess að hann hefði nú gegnt störfum framkvæmdarstjóra
R. N. í 40 ár. Gerði hann grein fyrir því í hverju störf fram-
kvæmdastjórans voru fólgin og gat þess að hann óskaði nú
eftir að láta af þessu starfi hjá félaginu.
Var því næst orðið gefið frjálst um skýrslu stjórnarinnar
og reikningana.
Til máls tóku: Egill Bjarnason, Bjarni Frímannsson, Her-
móður Guðmundsson og Steindór Steindórsson. Síðan voru
reikningarnir bornir upp og samþ. samhljóða.
4. Fjárhagsáætlun og framtíðarstarfsemin:
Framkvæmdarstjóri Olafur Jónsson lagði fram og skýrði
fjárhagsáætlun R. N. fyrir árið 1965. Jafnframt því sem