Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1969, Side 66
68
auk hinna beinu og óbeinu áhrifa, sem hann hefur haft
með menntun ungra garðyrkjumanna eins og áður hefur
komið fram, og með þeirri aðstöðu, sem nú er við Garð-
yrkjuskólann, er fráleitt að stofna til nýs aðila, sem hefði
þessar tilraunir með höndum. Á meðal þeirra verkefnasviða
sem nefna mætti, og sem nauðsynlegt er að taka upp frekari
athuganir og tilraunir á, og sem þegar hefur verið unnið
að eftir mætti við Garðyrkjuskóla ríkisins og á vegum ein-
staklinga á undanförnum árum eru m. a.: I fyrsta lagi að
vinna skipulega að jarðvegsefnagreiningu og áburðarnotk-
un í garðyrkju við mismunandi skilyrði, og á þann hátt
auka og halda áfram þeim rannsóknum, sem stundaðar hafa
verið við Garðyrkjuskólann síðan 1954.
I öðru lagi að gera athuganir með tegunda- og afbrigðaval
og jafnvel kynbætur jurta, bæði þeirra, sem ræktaðar eru
í gróðurhúsum og einnig þeirra, sem ræktaðar eru úti, og
auka fjölbreytni í ræktun bæði úti og inni.
í þriðja lagi að gera athuganir á jurtakvillum og notkun
eiturvarnarlyfja, en notkun þeirra er þegar orðinn vágestur
víða í ræktun erlendis, og eiga þau oft greiða leið ofan í
neytendur og geta þannig skaðað hollustu framleiðslunnar
ef fyllsta öryggis er ekki gætt, og tryggt þarf að vera að engin
lyf séu á markaðinum, nema ábyrgir aðilar hafi heimilað
notkun þeirra.
I fjórða lagi að gera athuganir með nýtingu og gæðamat
framleiðslunnar, athuga hvernig hagkvæmast er að geyma
hinar ýmsu grænmetistegundir og afskorin blóm, um lengri
eða skemmri tíma, og þá ekki sízt gera tilraunir með djúp-
frystingu grænmetis. Ennfremur þarf að vinna að því að
breyta neyzluvenjum almennings með tilliti til hollustu
grænmetis.
I fimmta lagi að fylgjast vel með tæknilegum nýjungum
í gerð gróðurhúsa og ennfremur þarf t. d. að vinna að veður-
athugunum á hverjum stað þar sem einhver ræktun er að
ráði, vinna að birtumælingum og notkun kolefnistvísýrings
í gróðurhúsum og huga að sem hagkvæmustum rekstri gróð-
urhúsa og í almennri ræktun. Þannig væri hægt að telja upp