Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1969, Page 88
90
skilyrði og verður hér einkum rætt um lofthita í 20 cm hæð.
Veðurstofan skilgreinir dag sem heiðskíran, ef skýjahula 8
athugana á sólarhring er samtals 12 áttundu hlutar, eða
minna. Eru þessir dagar bókaðir sérstaklega, og því auðvelt
að finna þá. Hafa hér verið notaðar athuganir frá Reykja-
víkurflugvelli. Reyndar er heiðskír dagur talinn frá mið-
nætti til miðnættis, en að Sóllandi er lesið af hámarks- og
lágmarksmælum kl. 8 að morgni og á sá hiti, sem þá er
lesinn fremur við um daginn á undan, einkum hvað snertir
hámark, og hafa því við þessa athugun oftast verið valdar
mælingar frá deginum á eftir heiðskírum degi. Á þennan
hátt hefur fengizt úrval daga, þar sem hitafar einkennist
af heiðríkju. Auðvitað hafa ekki valizt allir dagar með mjög
lágt lágmark, eða mjög hátt hámark, því að oft er hluti úr
sólarhring heiðskír, þó að hann sé það ekki allur. Samt ættu
þeir dagar, sem valdir hafa verið að gefa nokkuð góða hug-
mynd um áhrif heiðríkju á hitafar næst yfirborði, en eins
og fram kemur hér á eftir er um alltof fáa daga að ræða, til
að mynd sú sem fæst geti talizt fullnægjandi, og verður fram-
tíðin að bæta þar um.
Á tímabilinu jan. 1965—okt. 1967 fengust á ofangreindan
hátt 77 heiðskírir dagar, sem skiptust þannig í mánuði:
9 dagar í janúar, 9 dagar í febrúar, 6 dagar í marz, 1 dagur
í apríl, 6 dagar í maí, enginn í júní, 6 dagar í júlí, 4 dagar
í ágúst, 10 dagar í september, 13 dagar í október, 9 dagar
í nóvember og 4 dagar í desember. í apríl var aðeins 1 dag-
ur heiðskír og í júní enginn. Til þess að bæta úr þessu voru
valdir 3 dagar í viðbót fyrir apríl og 4 dagar fyrir júní, allt
dagar, sem komust mjög nálægt því að teljast heiðskírir.
Er þá alls um 84 daga að ræða, minnst 4 á mánuð, mest 13.
Fyrir hvern mánuð ársins var reiknað út meðaltal hámarks-
hita og lágmarkshita á heiðskírum dögum í 20 cm hæð í
grasreit. Slíkt meðaltal verður að nota með varúð, þar eð
það byggir á mjög fáum athugunum, sem dreifast misjafn-
lega á daga mánaðarins. Til samanburðar var svo reiknað
út meðalhámark og meðallágmark áranna 1965—’67.
Á 3. mynd má sjá niðurstöður á línuriti.