Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1969, Blaðsíða 98
100
Skaftafells í Öræfum, sem fram fór á síðastliðnu ári, og
friðlýsing hennar sem þjóðvangs. Er það hinn fyrsti eigin-
legi þjóðvangur íslands, og var það vissulega vel til fundið,
því landið er einstakt að fegurð og fjölbreytileik.
Af öðrum stöðum má nefna, Rauðhóla við Reykjavík,
Grábrók í Norðurárdal og Hveravelli á Kili, svo og Surtsey,
sem friðlýst var í upphafi tilveru sinnar. Mun þá upptalið
að mestu.
Allir hinir friðlýstu staðir eru í suður- og suðvesturpört-
um landsins. Á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi hafa
engir staðir verið friðlýstir, til þessa. Samkvæmt því mætti
ætla, að í þessum síðasttöldu landshlutum væru engir staðir
eða landsvæði þess virði að varðveita þau. Svo er þó alls
eigi, og mun hitt fremur valda, að þessir hlutar landsins
eru lengra frá aðalþéttbýlinu, og staðir þar því ekki taldir
í eins mikilli eða bráðri hættu, að þeim verði spillt.
Samkvæmt áðurnefndum lögum um náttúruvernd, segir
(3. kafli, 9. grein), að skipa skuli þriggja manna náttúru-
verndarnefnd í hverju sýslufélagi. Sýslumaður er formaður
nefndarinnar, sjálfskipaður, en hina nefndarmennina kýs
sýslunefnd til fjögurra ára í senn og jafnmarga varamenn.
Þá segir ennfremur, að leitazt skuli við að kjósa þá menn
í nefndina, sem kunnir séu af áhuga og þekkingu á náttúru-
vernd. Einnig má skipa náttúruverndarnefndir í kaupstöð-
um, þar sem þess er talin þörf, og er bæjarfógeti formaður
þeirra, en bæjarstjórnir kjósa þá nefndarmennina.
Þessum nefndum hefur nú verið komið á fót í öllum
sýslum landsins, og í flestum hinum stærri kaupstöðum
fbæjum). Auk þess starfar í Reykjavík, svo nefnt Náttúru-
verndarráð, og er það skipað sjö mönnum, en það eru for-
stöðumenn deilda Náttúrugripasafnsins þar (þrír að tölu),
einn skipaður af Búnaðarfélagi Islands, einn af Skógræktar-
félagi íslands og einn af Verkfræðingafélagi íslands, auk
eins „embættisgengins lögfræðings", sem menntamálaráð-
herra skipar, og er hann formaður ráðsins.
Um verksvið náttúruverndarnefnda segir svo í lögunum
(17. grein): —