Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1969, Blaðsíða 99
101
Náttúruverndarnefnd getur ákveðið nieð úrskurði, að landssvæði
eða aðrar náttúruminjar innan umdæmis nefndarinnar skuli friðuð,
og mælt fyrir um hvaða ráðstafanir skuli gera af opinberri hálfu vegna
friðunarinnar, þ. á. m. að friðlýst landssvæði sé girt eða auðkennt með
glöggum mörkum. Ennfremur getur nefndin óheimilað niönnum að
reysa mannvirki eða valda annars konar jarðraski á svæði þessu eða í
grennd við það, nema með leyfi náttúruverndarnefndar. Sporna má
við umferð urn friðuð svæði, algerlega eða á vissum hluta þeirra og á
tilteknum árstímum. Nú verður friðun ekki komið við, nema eigandi
láti land af hendi eða muni, og er þá heimilt að taka slíkar eignir eign-
arnámi, ef samkomulag næst ekki. Fer um jiað eignarnám eftir almenn-
um reglum. —
Margar aðgerðir náttúruverndarnefnda verður þ» að bera
undir náttúruverndarráð, og sumar friðunarráðstafanir
þurfa samþykki menntamálaráðherra. Eru um þetta allflók-
in og orðmörg fyrirmæli.
Nú er það skemmst að segja, að í flestum héruðum hafa
náttúruverndarnefndirnar lítið eða ekki hafzt að, og er það
ef til vill aðalástæðan fyrir því, hve lítið hefur verið friðlýst
í sumum hlutum landsins, enda hefur náttúruverndarráð
haft forgöngu um flestar þær aðgerðir, sem framkvæmdar
hafa verið til þessa.
I þessari grein er ætlunin, að ræða nokkuð um náttúru-
verndarmál á Norðurlandi sérstaklega. Tilefnið er einkum
það, að á vori komanda er áætlað að koma á fót samtökum
um náttúruvernd á Norðurlandi. í grannlöndum vorum,
hafa slík samtök starfað lengi, og eru þar talin ómissandi
við hliðina á opinberum nefndum og ráðum, er fjalla um
þessi mál. Svo mun einnig reynast í okkar þjóðfélagi, og má
vera að nefndirnar reynist þá vinnugefnari.
Eitt af meginverkefnum slíkra náttúruverndarsamtaka
myndi vera að gera áætlun til langs tíma um þá staði eða
landsvæði, sem æskilegt væri að friðlýsa á einhvern hátt.
Það hefur víða orðið reyndin, að áætlunargerð af því tagi,
sem hér ræðir um, hefur stuðlað að verndun staðanna fyr-
irfram, jafnvel löngu áður en þeir hafa verið opinberlega
friðlýstir. Hefur þá einnig verið hægurinn hjá, að friðlýsa
staðina, ef til þess hefur komið, að þeim væri ógnað af mann-