Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1969, Qupperneq 103
105
1. Jökulsárgljúfur í Öxarfiroi, frá Dettifossi og niður úr,
að meðtöldum Vesturdal, Ásbyrgi og Ástjörn.
Þetta er eitt þeirra svæða, sem þegar hefur verið rætt um,
sem fyrirhugaðan þjóðvang, m. a. í náttúruverndarráði, þótt
enn hafi ekki orðið að framkvæmdum. Hver, sem kemur í
þetta land, hlýtur að hrífast af hrikaleik og fegurð lands-
lagsins þar, og er það löngu orðið landskunnugt og meira
en það, því útlendir ferðamenn leggja nú einnig gjarnan
leið sína þangað. Þau öfl, sem mest hafa unnið að myndun
þessa sérkennlega svæðis, eru einkum Jökulsáin sjálf, sam-
fara stöðugri eldvirkni og jarðskorpuhreyfingum. Þarna hef-
ur uppbyggingin verið stórvirk, en niðurrifsöflin líka, og
má vart á milli sjá. Hvað eftir annað hefur áin verið stífluð
af eldsprungum og gígaröðum, sem hún síðan hefur grafið
sig í gegnum. Hér er því óvenjugott tækifæri til að rann-
saka jarðeldamyndanir af ýmsu tagi. Meðan á stíflunum
stóð, hefur áin grafið sér nýja farvegi, sem nú ern aftnr
þurrir að mestu. Hér má því einnig líta öll umnrerki vatns-
rofs. Loks má telja líklegt að landsig hafi víða orðið á svæð-
inu (sbr. Ástjörn) og sprungur eða gjár hafa leitt farvegi
árinnar. Bergmyndanir munu óvíða fjölbreyttari eða feg-
urri, einkum eru víða merkilegar stuðlabergsmyndanir í
gilinu. Allt svæðið er því ein samfelld jarðfræðikennslubók.
Þá er lífríki Jökulsárgilsins ekki síðra, enda þótt Jrað sé
minna kunnugt. Allir þekkja þó hinar undurfögru gróður-
vinjar, Hólmatungur og Forvaða, þar sem vatn, gróður og
berg fellur saman í eitt ólýsanlegt listaverk. Fuglalíf er auð-
ugt í gilinu og tjarnir og vötn mora af smáverum.
Yfir þessu undralandi vakir svo gamli Dettifoss, jötunn
íslenzkra fossa, konungur gilsins, hamrammur, minnandi
á Þór með hamarinn Mjölni.
Ef miðað er við línu dregna vestan Ásbyrgis og Vestur-
dals og þaðan i Svínadalsháls og að Selfossi, og að meðaltali
um eins km breiða spildu austan árinnar, verður svæðið allt
um 100 ferkílómetrar.
2. Mývatnssveit. Um Mývatnssveit er margt það sama að
segja og um Jökulsárgljúfur. Sveitin er meyland, enn að