Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Page 17
Húnavöllum í Húnaþingi, en síðan hafa fundir verið haldnir í
Skagafirði, Mývatnssveit og Kelduhverfi.
Á aðalfundum hefur verið venja að hafa fyrirlesara þar sem
tekin hafa verið til umræðu ýmis mál er að búskap og bú-
fræðum lúta. Hefur mörgum merkum málum verið þar hreift
og margt gagnlegt komið í dagsljósið við þau skoðanaskifti.
Að endingu er vert að geta þess að sú samkennd og þau
kynni sem verða á aðalfundum félagsins eru hreint ekki svo
lítill þáttur í að uppfylla þann part í tilgangi félagsins að
tengja saman samtök bænda í byggðum norðan fjalla.
STARFSEMI FÉLAGSINS.
Tilraunir.
Einn meginþáttur í starfi hjá Rf. hefur frá upphafi verið
ýmiskonar tilraunir sem að búskap lúta og sem að þeir sem að
tilraununum unnu álitu að gagni mættu verða fyrir bændur
og búalið á landi hér. Á árunum frá þvi 1947 og þar til
stofnsett er rannsóknarstofan 1964 er þó lítil sem engin til-
raunastarfsemi beint á vegum félagsins. Þó framkvæmda-
stjóri þess inni að tilraunum meira og minna á þessu tímabili
var það á annarra vegum svo sem Tilraunabúsins á Skriðu-
klaustri, SNE o.fl. En frá árinu 1965, eftir að rannsóknarstof-
an er komin í gagnið og fast starfsfólk aftur ráðið hjá félaginu,
hefur meira og minna verið unnið að ýmiskonar rannsóknum.
Það helsta verður hér upptalið án þess þó að kafa djúpt í
niðurstöður en vísað til greina þar að lútandi.
Áburðartilraumr. Strax á fyrsta ári rannsóknarstofunnar vakna
grunsemdir um brennisteinsskort í túnum hjá bændum hér
norðanlands. Voru því á árunum 1966 og 1967 gerðar nokkrar
tilraunir úti á túnum með brennisteinsáburð auk ýmissa at-
hugana inni á rannsóknarstofu. Niðurstaða þessara tilrauna
var sú, að allveruleg svörun fékkst fyrir brennistein, og
athuganir síðar víða um, a.m.k. Norður- og Austurland benda
til þess að brennisteinsskortur sé allútbreiddur í túnum. Frá
því þessar tilraunir voru gerðar hefur verið á boðstólnum
19