Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Síða 19
Sumarið 1976 var gerð all umfangsmikil könnun á heilsu-
fari kúa í Eyjafirði og hugsanlegum ástæðum fyrir ýmiskonar
óhreysti. Var þetta unnið í samvinnu við Búnaðarsamband
Eyjafjarðar og kom einkum við sögu frá þeirra hálfu Guð-
mundur Steindórsson, ráðunautur. Skýrsla um þessa rann-
sókn kom út sem Fjölrit BRT nr. 2 og var hún kynnt á
ráðstefnu Búnaðarfélags íslands og Rala 1977.
Ýmsar rannsóknir. Á árunum 1970-1973 var gerð sérstök rann-
sókn á vegum Rf., þar sem valdir voru 22 bæir og þar samið
við ábúendur um sýnatöku bæði af heyi og mold úr sömu
túnspildum, auk þess sem upplýsingum var safnað um sem
flesta þætti búskapar á þessum búum. Fékkst úr þessari
rannsókn heilmikið safn talna, sem þó hefur ekki verið nándar
nær fullunnið úr enn, en margt, sem í þessari könnun kom
fram, hefur þó verið notað í þeim leiðbeiningum, sem gefnar
hafa verið hjá Rf. síðustu árin. Ymsir þættir úr þessari rann-
sókn hafa og birst beint bæði í ræðu og í riti.
Ymsar sérstakar rannsóknir á grastegundum hafa verið
gerðar, svo sem rannsókn á gæði vallasveifgrass og útbreiðsla
þess í tíu ára túnum hér á Norðurlandi og gæði snarrótar í
úthaga í mismunandi hæð yfir sjó. Niðurstaða um hið siðast-
talda birtist í Ársriti Rf. 1974.
Á árunum 1974 og 1975 var gerð á vegum Rf. könnun á
heyverkun bænda á Norðurlandi. Var sérstaklega skoðuð
súgþurrkun og allur búnaður hennar hjá allstórum hóp
bænda, einnig gerðar fyrirspurnir um alla meðferð heys á velli
og í tóft. Skýrsla um þetta birtist i Ársriti 1975. Allmikið átak
hefur verið gert í heyverkunarmálum síðan að frumkvæði
heimamanna, ráðunauta og annarra forráðamanna bænda í
hverju búnaðarsambandi.
Þá var á árunum 1975-1976 gerð tilraun í samvinnu við
Tilraunastöðina á Möðruvöllum um áhrif mismunandi
sláttutíma nokkurra grastegunda (vallarfoxgras og snarrót
o.fl.) á uppskeru, meltanleika þeirra og ýmislegt annað efna-
magn. Skýrsla um hluta niðurstaðna birtist í Fjölriti BRT nr.
21