Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Qupperneq 26
vísindalegar skýrslur í þannig formi að ekki væri aðgengilegt
bændum. Því var það að 1976 tóku Rf., Bændaskólinn á
Hólum og Tilraunastöðin á Möðruvöllum höndum saman og
ákváðu að hefja útgáfu á fjölritaröð þar sem gefnar væru út
tilraunaniðurstöður og vísindaritgerðir hverskonar sem til
féllu og yrðu þessi fjölrit fyrst og fremst send ráðunautum,
tilraunamönnum, bændaskólakennurum og öðrum meira
búfróðum. Hafa nú komið út átta hefti af þessu fjölriti. I
Ársritinu varð með þessu meira pláss fyrir aðgengilegra efni
en áður fyrir bændur, almenn umræða um landbúnað og
beinar leiðbeiningar um aðskiljanlegan vanda í búskap.
FJÁRHAGUR FÉLAGSINS
Á aðalfundi 20. júní 1953 er upplýst að bókfærð hrein eign Rf.
sé kr. 255,220 pr. 31. 12. 1952. Þá er enn i eigu félagsins
Gróðrastöðin, land og hús henni tilheyrandi að viðbættum
vélum, tækjum og öðru lausafé. Á árunum frá 1953-1963
hefur Rf. svo sem áður hefur fram komið, litið umleikis og því
ekki að vænta stórra frávika í eign, en þó er það svo að flest ár
á þessu tímabili er einhvern rekstrarafgangur. Matsverð eigna
félagsins til gangverðs þann 1. jan. 1952, samkvæmt leigu-
samningi við Tilraunaráð jarðræktar, var kr. 1.003.116 eða
allverulega miklu hærra heldur en hin bókfærða eign. Hefur
svo löngum verið og orsakast af þeirri verðbólgu, lítilli eða
mikilli, sem er í þjóðfélaginu. Samkvæmt bókum er bókfærð
eign Rf. 31. 12. 1962 orðin kr. 791.409. Á því ári, sem þá fór í
hönd, seldi Rf. fasteignir sínar á kr. 1.500.000 og í árslok þess
árs eru bókfærðar eignir, en þær eru þá nánast allar í pen-
ingum, kr. 1.696.958.
Við stofnun rannsóknarstofunnar var þegar veitt til þess kr.
300.000 af söluandvirði eigna Rf. Fór það fé fyrst og fremst til
tækjakaupa, en svo til almenns rekstrar fyrstu skrefin. Bók-
haldi er haldið aðskildu milli Rf. og Rannsóknarstofunnar til
ársins 1972, en þá er það sett undir einn hatt á nafni Rækt-
unarfélagsins, eins og eðlilegt mátti teljast þar sem rann-
sóknarstofan var alltaf á vegum Rf. 1. 1. 1978 er höfuðstóll
28