Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Blaðsíða 28
félagsins kr. 3.744.714 og er sá höfuðstóll bundinn í tækjum og
innréttingum á rannsóknarstofu á að giska 1.7 millj. í styrkt-
arsjóði um kr. 600 þúsund og inneign hjá útgáfu vegna Berg-
hlaups kr. 1.2 millj. Þar að auki ýmislegt smálegt. Skuld
félagsins við þessi áramót var svipuð upphæð og útistandandi
eign hjá búnaðarsamböndum og öðrum skuldunautum.
I töflu 4 eru sýnd framlög búnaðarsambandanna til Rf.
síðan það hóf að reka rannsóknarstofu. Einnig er þar sýnt
framlag ríkis, Búnaðarfélags Islands, launagreiðslur á þessum
árum og ýmislegt fleira.
Við stofnun rannsóknarstofunnar og seinna flutning, lagði
Rf. í allverulegan kostnað við kaup rannsóknartækja og smíði
rannsóknastofuborða. Fé í þennan stofnkostnað var að
nokkru tekið af þeim peningum sem fengust við sölu eigna
Rf., svo sem fyrr greinir, en auk þess lögðu ýmsir af mörkum
verulegar upphæðir í þessu skyni. Má þar nefna Samband
íslenskra Samvinnufélaga sem gaf Rf. í þessu augnamiði kr.
300.000. Fé þetta var hluti af gjöf sem SÍS gaf i tilefni sextugs
afmælis 1962 til jarðvegsrannsókna á Islandi.
Þá styrktu Kaupfélögin á Norðurlandi stofnun rannsókn-
arstofunnar á myndarlegan hátt og búnaðarsamböndin lögðu
allháar upphæðir, sem ætlaðar voru beint til fjárfestingar.
Ræktunarfélag Norðurlands hefur auk þessa fengið all-
marga styrki til rannsókna. Má þar fyrst nefna Vísindasjóð
Islands, sem marg oft hefur veitt styrki. Fyrst til rannsókna á
brennisteinsskorti í túnum, þá í lokaverkefni Þórarins Lárus-
sonar meðan hann var í námi. Vísindasjóður veitti einnig
styrk í rannsókn á smádýralífi í jarðvegi, sem Rf. stóð að
ásamt Náttúrugripasafninu á Akureyri. Þá hefur Vísinda-
sjóður veitt styrki til selenrannsókna. Þessi fjárstuðningur hér
síðast framtalinn hefur haft mikla þýðingu fyrir þær rann-
sóknir. Vísindasjóður Nato veitti Rf. verulegan styrk á árun-
um 1970-1972 til sérathugana á 22 bæjum á Norðurlandi og
sem fyrr er frá greint. Kaupfélag Eyfirðinga (menningarsjóð-
ur) hefur veitt Rf. styrk til bókaútgáfu og Kaupfélag Þingey-
inga til selenrannsókna.
30