Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Page 33
þessum skrifum megi bregða vissu ljósi á þróun mála hér á
landi, ef betur er skoðað.
I þessari grein er ætlun mín að bregða örlitlu ljósi á þessa
umræðu með að minnast lauslega á framlag tveggja þekktra
vísindamanna í þessari umræðu. Hér er um að ræða að mínu
viti einar þær athyglisverðustu greinar um þessi mál þar sem
fjallað er fyrst og fremst um landbúnað.
Kenneth Blaxter er breskur fóðurfræðingur. Hann er for-
stöðumaður fyrir mjög stórri rannsóknarstöð í Skotlandi.
Blaxter er einn fremsti fóðurfræðingur í heimi í dag. Sérstak-
lega er hann þekktur fyrir rannsóknir á mati á orkuinnihaldi
fóðurs þar sem hann hefur birt mikinn nýjan vísdóm. Sjón-
deildarhringur hans nær þó mun víðar en að þröngu faglegu
efni, og hefur hann ritað mikið um önnur mál. Má í því
sambandi t.d. benda á grein hans Visindi og landbúnaður,
sem á sínum tíma birtist sem fjölrit frá Bændaskólanum á
Hvanneyri í þýðingu Ólafs R. Dýrmundssonar.
Arið 1976 hélt Blaxter hinn árlega minningarfyrirlestur um
John Hammond, sem haldin er á ársfundi breska búfjár-
ræktarsambandsins. Fyrirlestur þennan kallar hann The use
of resources og fjallar þar um nýtingu hinna ýmsu fram-
leiðsluþátta í breskum landbúnaði og þær breytingar sem þar
hafa orðið á. Hér á eftir verða raktar nokkrar glefsur úr
þessum fyrirlestri.
Fyrst rekur Blaxter þróun í framleiðslu á einstökum afurð-
um mælt sem hlutfall af þjóðarneyslu. Þar kemur í ljós að
lökust hefur staðan verið um 1930. I dag framleiða Bretar
sjálfir 54% af kindakjötinu, 83% af nautakjötinu, alla nýmjólk
en aðeins 10% af smjöri. Þegar síðan er litið á heildarfram-
leiðslumagnið kemur í Ijós að frá 1916 hefur nautakjötsfram-
leiðsla aukist um 10%, kindakjötsframleiðsla minnkað um
30% og smjörframleiðsla einnig um 30%. Aftur á móti kemur í
ljós að kornframleiðsla hefur þrefaldast frá upphafi aldar-
innar og framleiðsla á svínum og fiðurfénaði margfaldast.
Þá birtir Blaxter eftirfarandi töflu um hlutfall innanlands-
framleiðslu af þjóðarþörfum af einstöku næringarefnum:
35