Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Page 39
einn maður búi yfir jafn víðtækri þekkingu og fram kemur í
bókinni. I stuttum kafla í bókinni fjallar hann um þróun
bandarísks landbúnaðar. Kafli sá fylgir hér í lauslegri þýð-
ingu:
Hver sem lítur á bandarískan landbúnað, eins og ég, fær á
tilfinninguna að orðið hafi geysimiklar og að því er virðist
velheppnaðar breytingar. Bændabýli ævintýrisins, með fjölda
húsdýra, sem bóndinn og fjölskylda hans annaðist á akurlendi
með hafra, bygg, hey og smára og aldingarð með ávaxtatré og
grænmeti, er löngu horfið. Nær allir hestar eru horfnir, og
dráttarvélin hefur komið í þeirra stað fyrir framan plóginn, og
þær verða með hverju ári stærri og stærri; sumar hafa nú hjól,
sem eru yfir tveir metrar í þvermál og loftræst ökumannshús.
Meginhluti stórgripanna er samansafnaður á ákveðnum
svæðum þar sem þeir eru fitaðir — þar sem þúsundir gripa
eru fóðraðir með vagnhlössum af korni og fremur gætt af
jarðýtum en mönnum. Hænsnin spranga ekki lengur á hlað-
inu í leit að mat og verpa í sjálfgerð hreiður; nú er þeim safnað
í byggingarlengjur, lokuð í búrum þar sem þau fá korn og
vatn en egg og úrgangur er fjarlægður á endalausum færi-
böndum.
Akurinn, sem áður var vaxinn hinum fjölbreyttasta gróðri,
er nú yfirleitt vaxinn einni tegund. Kornið er ekki lengur
sólþurrkað en er þess í stað skorið blautt og flutt til gasþurrk-
unarofna, þaðan sem það er síðan flutt með vörubílum til
fóðurverkunarfyrirtækja — en þaðan kemur fóður handa
stórgripum og hænsnum. Áður var það tað frá gripunum, sem
færði akrinum frjómagn, nú er það aðeins úrgangur. Þess í
stað er borinn á tilbúinn áburður. Önnur tilbúin efni eru
notuð til að eyða illgresi og skordýrum, sem er ekki lengur
haldið í skefjum með sáðskiptum.
I eina tíð var ræktað land þannig, að þar voru nær allt árið
einhverjir grænir sprotar, sem teigðu sig mót sól. Nú er jörðin
yfirleitt græn yfir hásumarið, þar sem ræktaðar eru fljót-
sprottnar tegundir, sem hægt er að uppskera fljótt og koma í
verð. Fólkið er einnig farið, það er ekki lengur þörf fyrir það til
41